Heilsuvernd - 01.04.1957, Qupperneq 35
HEILSUVERND
31
laukur skorií5 i jafna bita og steikt létt á pönnu, sett i pott með
svolitlu vatni og soðið meyrt. Þá er rifnum osti blandað út í, svo
að myndist eins og sósa. Ekki má sjóða í grænmetinu eftir að
osturinn kemur saman við, þvi að þá verður hann seigur.
Grænmetisbúðingur í eggjasósu:
Grænmetið brytjað og soðið í 5 mínútur, sett i smurt eldfast
fat, 2 egg þeytt og blandað saman við þau 8 matsk. af mjólk og
3 teskeiðar af hcilhveiti, vítamon. — Jafningnum hellt yl'ir græn-
metið í mótinu og bakað í ofni, þar til jafningurinn er stifur. —
Borinn fram með lieitum kartöflum, lirærðu smjöri og hráu
grænmetissalati.
Eplasnjór:
1 diskur eplamauk eða eplagrautur (nota má aðra ávaxta-
grauta), 2 eggjahvítur, vaniiludropar, smákökur. Notaðar eru
leifar af eplagraut.
Hann er hrærður vel, eggjahvíturnar eru stifþeyttar og hrærð-
ar saman við eplagrautinn. Hrært i 10 mín., bar til þetta er orðið
létt og likist smjöri. Sett í skál og borðað með smákökum. Ef
maður vill, er þeyttur rjómi hafður ofan á. Eplasnjó má nota i
kramarhús í staðinn fyrir rjóma.
Hcilhveitibrauð:
Vi kg. 'heilhveiti, nál. 3 og % dl. mjólk, 2 hnefar liveitiklíð,
40 grömm smjörlíki, 1% matskeið þurrger.
Velgið mjólkina og bræðið smjörlikið i henni. Hrærið gerið út
með dálitlu af volgu vatni. Vætið i með mjólk, smjörliki og geri.
Hnoðið eða sláið deigið slétt og sprungulaust, en gerið það ekki
seigt. Látið deigið lyfta sér, hnoðið, mótið og látið það lyfta
sér á ný.
Salat með steik:
1 salathöfuð, 2 tómatar, agúrkubiti, steinselja. — Sósan: 2
msk. matarolía, 2 msk. vatn, 1 msk. tómatkraftur, safi úr
Vi sítrónu.
Salatið þvegið, látið siga af þvi og það skorið í langa strimla.
Tómatarnir þvegnir og skornir í þunna báta, gúrkurnar skornar
i þunnar sneiðar og steinseljan söxuð. Þvi sem fara á i sósuna
blandað saman og það þeytt eða hrist saman í lokuðu glasi, svo
matarolían blandist vel saman við hinn vökvann. Sósunni bland-
að saman við og salatið sett í skál. Skreytt með salatblöðum og
hreðkum.