Heilsuvernd - 01.03.1991, Síða 9

Heilsuvernd - 01.03.1991, Síða 9
og næringarmaskar. Æskilegt er að nota hreinsimaska og næringarmaska einu sinni til tvisvar í viku en rakamaska má nota oftar. María segir mikilvægt að nota hreinsimaska því að hann hreinsar í burtu hornlagsfrumur sem setjast á ysta lag húðarinnar og draga í sig þau krem sem ættu að fara inn í húðina. Þessar frumur verka eins og þerripappír sem leiðir af sér að kremin verka ekki eins vel og þau ættu að gera. Djúpverkandi krem eru tiltölulega ný á markaðinum. Þau ganga dýpra niður í húðina en önnur krem og færa líf í húðfrumurnar og örva þær til starfsemi. Nútímakonan þarf að huga að mörgu í notkun krema og gæta þess að nota þau á réttan hátt. DAGLEG UMHIRÐA Við daglega umönnun húðarinnar ráðleggur María notkun djúpverkandi krema áður en dagkrem eru borin á. Því næst kemur farðinn eða „meikið", fyrir þær sem það nota, og er mikilvægt að litur þess sé með sama litblæ og húðin. Að þessu loknu er hægt að setja kinnalit og gott er að Ijúka snyrtingunni með því að nota laust, þunnt púður. Eins og sjá má er mikið framboð af hreinsi- og snyrtivörum fyrir húðina og þó hefur ekki verið talað um vörumerkjamarkaðinn en hann er mikill frumskógur sem vandratað er um, en ráðlegast er að hver og einn finni einhvern sem treystandi er til að gefa góð ráð í þeim efnum. Snyrtistofur nota iðulega ákveðin vörumerki og gefa viðskiptavinum kost á að reyna þau. Það er síðan á valdi hvers og eins að velja og hafna og finna út hvað best hentar. Fyrir þær konur sem nota farða að staðaldri er mikilvægt að læra að nota réttar vörur, bæði hvað varðar gerð og liti. Á förðunar- og litgreiningarnámskeiðum má læra meðferð farða en mestu varðar þó að læra að rækta heilbrigði og ferskleika húðarinnar því að ástandi hennar verður aldrei leynt með farða. Við komumst alltaf að sömu niðurstöðu, nefnilega þeirri að ekkert getur komið í staðinn fyrir hollt mataræði og heilsusamlegt líferni. 9

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.