Heilsuvernd - 01.03.1991, Síða 13

Heilsuvernd - 01.03.1991, Síða 13
EFTIR ASTHILDI E. BERNHARÐSDOTTUR SPEGILL, SPEGILL, HERM ÞÚ MÉR ... Á hin aldagamla austræna læknisfræði erindi til okkar í dag? Par sem orsaka sjúkdóma er leitað í fæðuvali sjúklings, líkamlegri hreyfingu, andlegu ástandi og umhverfi hans? Ráðleggingar um breytingar á lífsstíl væru gefnar sjúklingnum samkvæmt þeirri greiningu? í nútíma vestrænni læknisfræði eru sjúkdómar meðhöndlaðir að mestu með lyfjagjöf og skurðaðgerðum. Gengið er út frá sjúkdómseinkennum við greiningu en í austrænu fræðunum er lögð áhersla á að greina sjúkdóma áður en einkenna verður vart. Er þá dæmt um líkamlegt og andlegt ástand einstaklings með þvf að skoða andlitshluta hans og líkamsbyggingu. Líf í dag er óhugsandi án vestrænnar læknisfræði, nútímamaðurinn þrifist ekki án hennar. Næmi fyrir líkamanum eins og mörgu öðru hefur minnkað hjá okkur en ein leið til að auka næmið er tileinkun austrænna læknisfræða. Mikill áróður er í gangi í þjóðfélagi okkar fyrir forvarnarstarfi í heilbrigðismálum. Leggjast þar allir á eitt bæði leikmenn sem lærðir og hvetja fólk til breytinga á lífsstíl. Vafalaust svara margir þeirra spurningunni hér að framan játandi. Hér á eftir fer nokkur fróðleikur sem tekinn er beint úr austurlenskum fræðum um forvarnir. Leitað er að vísbendingum um hvort einstaklingar hafi tilhneigingar til að fá ýmsa sjúkdóma. Hér er að sjálfsögðu ekki um vísindalega sjúkdómsgreiningu að ræða og rétt eins og í vestrænni læknisfræði er það hlutverk kunnáttumanna að sjúkdómsgreina endanlega áður en til lækningar kemur. Lögmál austrænnar læknisfræði byggir á einfaldri kenningu um andstæða krafta er nefnast yin og yang. Samkvæmt kenningunni grundvallast allt líf á stöðugum breytingum, yin verður yang eða Yirc YAT1Q ÚTVlKKANDI SAMANDRAGANDI ÓREIÐA SKIPULAG RÓLEGHEIT HRAÐI STUTTBYLGJUR LANGBYLGJUR FRAMTlÐ FORTiÐ LÓÐRÉTT LÁRÉTT LÉTT ÞUNGT KALT HEITT DÖKKT LJÓST RAKT ÞURRT ÞUNNT ÞYKKT STÓRT SMATT BROTHÆTT HART LANGT STUTT MJÚKT HART SÚRT OG SÆTT SALTAÐ OG BEISKT LOFT, VATN JÖRÐ.ELDUR VETUR SUMAR JURTARlKI DÝRARlKI ANDLEGT LlKAMLEGT KVENKYNS O.S.FRV. KARLKYNS FLOKKA MÁ ALLT MILLI HIMINS OG JARÐAR í YIN EÐA YANG. LISTINN HÉR AÐ OFAN GETUR HJÁLPAÐ VIÐ AÐ GLÖGGVA SIG Á KENNINGUNNi. yang verður yin. Allt á sér sína andstöðu í heildinni. Án kulda yrði enginn hiti og án við- náms yrði engin hreyf- ing o.s.frv. Þegar hreyfing er samdrag- andi, í átt að jörðu er yang hið ríkjandi afl. Samdragandi afl leiðir af sér þéttleika, meiri virkni, hita, þyngd, hraða o.s.frv. Sé hreyfing í átt til útvíkkunar, frá jörðu, er yin ríkjandi aflið sem leiðir af sér minni þétt- leika, minni virkni, léttleika, minni hraða o.s.frv. Hér á eftir lítum við á hvernig sjúkdómar eru greindir í austrænu fræðunum með því að skoða andlitshluta. Er þá talað um að líffæri séu í yin- eða yang- ástandi. Skilningur á þessari kenningu er nauðsynlegur vilji fólk öðlast innsýn í fræðin. 13

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.