Heilsuvernd - 01.03.1991, Page 16
Augnlok
Á augnlokum er annaðhvort
einföld eða tvöföld húðfell-
ing. Fólk á vesturlöndum er
yfirleitt með tvöfalda húð-
fellingu sem lýsir yin-ástandi.
Einföld húðfelling lýsir þá
yang-ástandi.
Blikki maður oft augunum
bendir það til þess að líkam-
inn sé að reyna að losa sig við
umfram-yin. Eðlilegt er að
blikka augunum fjórum sinn-
um á mínútu eða fimmtándu
hverja sekúndu. Lítil börn
blikka ekki augum og
heilbrigður maður á að
komast af án þess að blikka í
margar mínútur.
Hægt er að hafa betur í
samningaviðræðum ef starað
er á andstæðinginn án þess
að blikka auga!
Áberandi rauður litur í
augnhvítunum bendir til
slæms ástands lifrarinnar.
Búið er að ofgera lifrinni með
óhóflegri neyslu matar,
sérstaklega dýraafurða.
Bólgin augnlok vitna um
steina í gallblöðrunni. Bólgan
hverfur um leið og
gallsteinarnir.
Dökkbrúnn litur undir augum
bendir til of mikils yang-
ástands nýrnanna og vanda í
móðurlífi.
Bólga undir augum bendir til
nýrnasteina. Myndun gall-
steina eða blóðtappa gæti líka
verið í uppsiglingu.
Fjólubláir eða dökkbláir
baugar undir augum sýna
blóðstöðnun, líklega af
völdum of mikillar neyslu á
ávöxtum, sykri og kjöti.
Útstæð augu benda til yin-
ástands og truflunar í
skjaldkirtli.
Bólur innan á augnlokum
vitna um of mikið eggja-
hvítuefni í líkamanum en þær
birtast og hverfa tiltölulega
fljótt.
Litur innan á augnlokunum
ætti að vera rauður, hvítur
litur bendir til blóðleysis.
Augabrúnir
Breiðar og þykkar augabrúnir
eru yang en þunnar yin.
Óhófleg neysla matar
sérstaklega sykurs þynnir
augabrúnirnar og smám
saman hverfa þær. Þegar
þannig er ástatt hjá fólki
bendir það til að hætta sé á
krabbameini.
Nef
Nefið getur sagt okkur mikið
um ástand okkar. Með því að
minnka matarneyslu getum
við séð nef okkar minnka.
Langt og háreist nef er yin.
Stutt nef vitnar um gott
líkamlegt atgervi.
Lítið og uppbrett nef sýnir
sterkt yang.
Miðja nefsins sýnir ástand
hjartans.
Stækkað nef (óhófleg neysla
matar og drykkjar) sýnir
stækkun hjartans.
Nasirnar sýna ástand
lungnanna. Því stærri sem
nasirnar eru því betra. Litlar
nasir benda til viðkvæmra
lungna. Vel lagaðar nasir bera
karlmennsku vitni.
Nef sem er annaðhvort fitugt
eða skínandi sýnir óhóflega
neyslu á dýrafitu. Rauð
graftarbóla uppi á nefi sýnir
of háan blóðþrýsting og
hættu á hjartasjúkdómi.
Munnur
Munnur ætti að vera í álíkri
vídd og nefið, aðeins minni
þó hjá konum. Lítill munnur
sýnir lífsþrótt, yang-ástand.
Stór munnur sýnir hið
andstæða og að á fósturstigi
hafi skort samdragandi afl til
mótunar. Nú til dags hafa
flestir stóra munna en
stækkun þeirra er merki um
að meltingarfærin eru veik-
byggðari en áður.
Myndist láréttar línur milli
munns og nefs þegar við
brosum bendir það til
veikleika í kynfærum. Hjá
karlmönnum ber það vitni
veikrar kynorku en hjá konum
truflana í tíðahring. Orsökin