Heilsuvernd - 01.03.1991, Side 28

Heilsuvernd - 01.03.1991, Side 28
Besta fæði fyrir fólk með sveppi... Aldrei ætti að gefa sýklalyf nema gefa acidophilus-gerla á eftir. Þessari ráðleggingu er einkum beint til lækna, sem flestir vita þetta en trassa venjulega. leiðbeiningar þar að lútandi. Aftur vísa ég í bókina „Migrenbyltingin". Besta fæðið fyrir fólk með sveppi er sennilega grænmeti, rótarávextir, sérstaklega gulrófur sem taldar eru mjög æskilegar, hnetur og möndlur, hýðishrísgrjón, sólblómafræ og ýmis önnur fræ, fiskur og e.t.v. kjöt fyrir þá sem ekki eru jurtaætur. Sumir bæta mjólkurvörum við þetta, sérstaklega AB-mjólk. Aðrir telja hana of súra. Sjálfsagt má bæta hinu og þessu við þennan lista en það geta lesendur sjálfir gert og læt ég því staðar numið. EFTIRMÁLI Hér hefur í stuttu máli verið reynt að draga saman mikið efni og bera það á borð fyrir lesendur í alþýðlegum búningi. í lokin verða settir hér fram nokkrir minnispunktar. 1. Sveppasýking er alvarlegur sjúk- dómur og miklu algengari en flestir, einnig læknar, hafa talið en leynir sér oft bak við margs konar ólík einkenni. 2. Aðalástæða þess að sveppasýking hefur færst svo mjög í vöxt á síðari tímum er óhófleg og oft ógætileg notkun ýmissa lyfja sem annaðhvort drepa „vinsamlegan" gerlagróður í þörmum fólks eða veikla ónæmiskerfið svo að sveppurinn nær að þrífast. Þessi lyf eru sýklalyf, sterar af cortison-gerð og getnaðarvarnarpillur ásamt nokkrum gigtar- og ofnæmilyfjum. Þar við bætist allt of mikil neysla sætinda sem örvar mjög vöxt sveppagróðurs í þörmum. 3. Candida-sveppurinn myndar eitur- efni sem berast út í blóðið og valda þar m.a. bjögun á ónæmiskerfinu með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. A Nystatin og nokkur önnur lyf, þ.á m. „náttúruleg efni", hafa reynst vel við að eyða sveppunum, bæði innvortis og útvortis. Þegar sveppunum hefur verið eytt hverfa sjúkdómseinkennin oft fljótlega. 5. Nauðsynlegt er að gróðursetja „vinsamlegan" þarmagróður í stað candida-sveppsins þegar honum hefur verið útrýmt. Mjólkurgerillinn lactobacillus acidophilus og nokkrir aðrir gerlastofnar hafa reynst vel í þeim tilgangi. Sé þess ekki gætt er hætt við að candida-sveppurinn nái fljótlega yfirhöndinni á nýjan leik þegar lyfjagjöf er hætt. 6. Aldrei ætti að gefa sýklalyf nema gefa acidophilus-gerla á eftir. Þessari ráðleggingu er einkum beint til lækna, sem fiestir vita þetta, en trassa venjulega. 7. Sé um langvarandi sýklalyfjagjöf að ræða, getur verið nauðsynlegt að nota samhliða sýklalyfinu nystatin eða eitthvert annað efni sem hindrar útbreiðslu candida-sveppsins. LOKAORÐ HÖFUNDAR Dr. Truss, sá er þessar upplýsingar eru að mestu fengnar frá, kynnti niðurstöður margra ára rannsókna á þessu sviði á ráðstefnu við Huxley- rannsóknarstofnunina í Boston árið 1981 og sagði þá að æskilegt hefði verið að bíða með að birta niðurstöðurnar í nokkur ár í viðbót til þess að þær yrðu enn öruggari og þetri. Hann taldi þó að málefnið væri svo brýnt að ekki mætti draga lengur að kynna þessar rannsóknir almenningi og læknum. Síðan eru nú liðin 10 ár og dómur reynslunnar kominn á margt það sem Dr. Truss hélt fram í skýrslum sínum og greinum sem gert hafa hann heimsfrægan. Þegar ég skrifaði fyrst um þetta efni í Hollefni og heilsurækt árið 1984 fékk ég heldur kaldar kveðjur frá sumum læknum. Nú, sjö árum seinna, get ég verið nokkuð ánægður þegar litið er yfir þessi ár. Þó að e.t.v. sé varla hægt að segja að full viðurkenning sé fengin á þeim hugmyncjum sem þessi grein byggist á, eru þær þó teknar alvarlega af mörgum læknum og almenningi. Ekki síður er þó mikilvægt, að ég hef sjálfur sannfærst um að þessar hugmyndir eru réttar og að hér er á ferðinni eitt mesta heilsufarslega vandamál vorra tíma. í því trausti að sannfæring mín sé rétt lýk ég þessari grein. Ævar Jóhannesson. 28

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.