Heilsuvernd - 01.03.1991, Side 35

Heilsuvernd - 01.03.1991, Side 35
EFTIR GUÐRUNU HJARTARDÓTTUR GETNAÐARVARNIR HVAÐ ER Á BOÐSTÓLUM? Fyrir þá sem viija lifa eðlilegu kynlífi en koma í veg fyrir ótímabæran getnað er um ýmsar leiðir að velja. Þær getnaðarvarnir sem fram hafa komið á undanförnum áratugum eru nær einvörðungu ætlaðar konum. Hafa margar þeirra látið í Ijós óánægju með þessa þróun og telja hana ýta undir að karlmönnum finnist þeir ekki bera ábyrgðina hvað þetta mál varðar. En á meðan þróun „karla-pillunnar" og „karlaklemmunnar" er ekki lengra á veg komin lendir það oft á konunni að umbera aukaverkanir pillunnar, lykkjunnar, hettunnar, sæðisdrepandi krema og langflestra annarra getnaðarvarna. Hér verður leitast við að gera nokkur skil á helstu valkostum í getnaðarvörnum sem nú eru á boðstólum hér á landi. Þær varnir sem hérlendis standa nú til boða eru pillan, lykkjan, hettan, smokkurinn og ýmsar tegundir af sæðis- drepandi kremi, froðu og stílum. Bæði kynin geta síðan farið í ófrjósemis- aðgerð en það er, eins og gefur að skilja, varanleg getnaðarvörn og er því um afdrifaríka ákvörðun að ræða. Lítum nú á hinar ýmsu gerðir getnaðarvarna og grennslumst fyrir um kosti þeirra og galla, öryggi þeirra, hvernig þær verka og hvað þær kosta. PILLAN öryggi 97-99,8% Getnaðarvarnarpillan er öruggasta getnaðarvörn sem völ er á. Hún kom fyrst á markaðinn snemma á sjöunda áratugnum og er líklega mest notaða getnaðar- vörnin í vestrænum samfélögum. Til eru nokkrar gerðir af pillunni en flestum er það sameiginlegt að þær innihalda tvær gerðir kvenhormóns. Samsetta pillan inniheldur bæði progesteron og östrogen. Báðar tegundir verka þannig að notkun þeirra kemur í veg fyrir að stýrihormónin LH og FSH myndist og berist frá heiladinglinum. Þannig stöðvast egglosið. Með því að minnka starfsemi eggjastokk- anna koma pilluhormón- in í veg fyrir að eggfrumur þroskist og losni frá eggjastokkunum sem leiðir af sér að þungun getur ekki orðið. Þetta eru mikilvægustu áhrif pill- unnar. Einnig veldur pillan breytingum á slími í leghálsi sem gerir sáðfrumum erfiðara að komast leiðar sinnar. Flestar pillutegundir eru teknar samfleytt í 21 dag, þá er tekin hvíld í viku og síðan byrjað á nýjum skammti. Kostir pillunnar eru að hún veitir konum tækifæri til að hafa meiri stjórn á því hvenær þær vilja ala barn. Hún er mjög hand- hæg, minnkar blæðingar og dregur yfirleitt úr tíða- verkjum. Hið mikla öryggi pillunnar sem getnaðar- varnar byggist á því að hún sé tekin daglega. Það má því ef til vill flokka það sem ókost á notkun pillunnar að hún krefst mikillar samviskusemi, að gleyma henni aðeins í eitt skipti getur haft mjög afdrifaríkar afleiðingar. Mikilvægt er að láta athuga blóðþrýstinginn reglulega því að pillan getur valdið hækkun á blóðþrýstingi. Alvarlegar aukaverkanir tengjast hjarta- og æða- sjúkdómum og konur sem komnar eru yfir 35 ára aldur og reykja að Ókostir pillunnar eru aukaverkanirnar, bæði vægar og alvarlegar. Af þeim vægari má telja minnkun á kynhvöt, þyngdaraukningu, bjúg, þunglyndi, höfuðverkja- köst, flökurleika, eymsl í brjóstum, útferð, sveppa- sýkingu í fæðingarvegi og útbrot í andliti. auki ættu ekki að taka pilluna vegna hættu á heilablóðfalli, blóðsega- bólgu og kransæðastíflu. Þetta á einnig við um yngri konur sem koma úr fjölskyldum þar sem þessir sjúkdómar eru algengir. Alvarleaar aukaverkanir: Helstu einkenni eru verkir 35

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.