Heilsuvernd - 01.03.1991, Page 37
í ganglimum (kálfa eða
læri), bólgur í fótleggjum
eða ökklum, verkir í
brjóstkassa, hósti, mæði,
óvenju slæm höfuðverkja-
köst með svima, máttleysi
og náladofa, sjón- eða
taltruflanir og slæmir
kviðverkir.
Finni konan til einhverra
þessara einkenna ætti hún
tafarlaust að leita læknis.
Pillan getur valdið ófrjó-
semi en algengara er þó
að hún valdi tímabundinni
ófrjósemi þar sem eggja-
stokkarnir virðast þurfa
nokkra mánuði til að jafna
sig svo að konan verði
jafnfrjósöm og fyrr.
Þó eru skiptar skoðanir á
þessum aukaverkunum
og margir læknar vilja
gera lítið úr þeim og telja
að jákvætt viðhorf og rétt
tegund af pillunni eigi að
geta leyst vanda hverrar
konu. En það er auðvitað
konunnar sjálfrar að
ákveða hvað hún tekur inn
og hvaða áhættu hún vill
taka með eigin líkama.
Eina haldbæra ráðið fyrir
konur, sem einhverra
hluta vegna líður ekki vel
af pillunni, er að nota aðra
getnaðarvörn.
Pillunni er yfirleitt
úthlutað í þriggja mánaða
skömmtum og kostar
slíkur skammtur 600-1.400
krónur eftir tegund.
Á ársgrundvelli þýðir það
2.400-5.600 krónur.
Lykkjunni komið fyrir.
Aðgerðin er
sársaukaiítil en oftast
veldur lykkjan þó
óþægindum fyrstu
dagana eða jafnvel
vikurnar.
LYKKJAN
Öryggi: 98,5%
Lykkjan var fundin upp
snemma á öldinni. Hún
vakti litla athygli til að
byrja með og það var ekki
fyrr en um 1950 að farið
var að líta á hana sem
hagnýta getnaðarvörn.
Lykkjan er getnaðarvörn
úr plasti og koparþræði
sem komið er fyrir í legi
konunnar í þeim tilgangi
að breyta
I e g s I í m -
h ú ð i n n i
þannig að
f rjóvgað
egg nái
ekki að
f e s t a s t
þar. Eggið
visnar og
leysist upp
í leginu.
Hún truflar
einnig frjóvgun. Koparinn
eykur á öryggi lykkjunnar
og auðveldar ísetningu
hennar þannig að konur
þola hana betur. Hann
veitir líka vissa vörn fyrir
bakteríusýkingu. Læknir
kemur lykkjunni fyrir í legi
konunnar.
Kostir lykkjunnar eru að
hún er nokkuð örugg getn-
aðarvörn. Þegar henni
hefur verið komið fyrir
þarf varla að hugsa meira
um hana í 1-2 ár fyrir utan
það að konan þreifar öðru
hverju fyrir koparþræðin-
um til þess að kanna hvort
lykkjan sé á réttum stað.
Verkun hennar er ein-
göngu bundin við legið.
Ókostir lykkjunnar eru að
hún eykur oft blæðingar
og stundum orsakar hún
aukablæðingar á miðju
tíðabilinu. Stundum eykur
hún einnig tíðaverki.
Lykkjan getur valdið bólgu
í legi sem síðan færist upp
í eggjaleiðarana þar sem
hún gæti hugsanlega
valdið varanlegri ófrjó-
semi.
Konur með
I y k kj u n a
sem finna
til sárra
v e r k j a
neðarlega í
kviðarholi
s a m f a r a
útferð, hita
og blæð-
i n g u m
eiga tafar-
laust að leita til læknis.
Má sem dæmi nefna að
eggjaleiðarabólga er allt
að sjö sinnum algengari
hjá konum sem aldrei hafa
eignast börn og eru með
lykkjuna heldur en hjá
þeim sem notað hafa
pilluna. Þetta leiðir til þess
að læknar eru oft tregir til
að láta barnlausar konur
hafa lykkjuna.
Best er að koma lykkjunni
fyrir strax að loknum
blæðingum. Konur sem
eru nýbúnar að eignast
börn geta fengið lykkjuna
5-6 vikum eftir fæðingu.
Sá möguleiki er fyrir hendi
Ýmsar gerðir lykkju
að lykkjan geti losnað og
er hættan mest á fyrstu
mánuðunum eftir ísetn-
inguna.
Lykkjan kostar yfirleitt um
2.500 krónur og með
heimsókn til sérfræðings
sem kostar 900 krónur
gerir það 3.400 krónur á
ári. Ef konan er með
lykkjuna í tvö ár gerir það
1.700 krónur á ári að
meðaltali.
HETTAN
Öryggi: 97%
(sé sæðisdrepandi krem
notað með)
Hettan er skálarlaga úr
þunnu gúmmíi eða plasti
sem fest er á sveigjan-
legan hring. Henni er
komið fyrir uppi í leg-
göngunum stuttu fyrir
samfarir þannig að hún
fellur að leghálsopinu og
kemur í veg fyrir að sæðið
nái að komast inn í legið.
Hún er fremur óörugg
getnaðarvörn ef ekki er
notað sæðisdrepandi
krem eða froða sem borin
eru á hettuna áður en
henni er komið fyrir.
Ekki má líða lengri tími en
3 klukkustundir frá því að
hettunni er komið fyrir og
þar til að samfarir eiga sér
stað. Líði lengra frá þarf
að bæta sæðisdrepandi
efni við það sem fyrir er
og eru stílar bestir til þess.
Konan verður að vera með
hettuna í sér í a.m.k. sex
stundir eftir samfarir,
36
Mikilvægt er að hettan sé
hæfilega stór fyrir
viðkomandi. Læknir sér
um að mæla fyrir stærð
hettunnar og slíkt þarf að
endurtaka eftir barnsburð
og ef konan þyngist eða
léttist mikið, er þá miðað
við fimm kíló til eða frá.
Hettuna þarf að þvo og
þurrka vandlega eftir
notkun og einnig þarf að
fylgjast vel með hvort
nokkur göt hafi myndast
á henni.
Kostir hettunnar eru
helst þeir að hún hefur
mjög litlar aukaverkanir,
ef nokkrar, og hefur hún
engin áhrif á ánægju fólks
af kynlífinu, hvorki karla
né kvenna.
Ókostir eru helst þeir að
sumum konum finnst
Hettan
Hettan fellur yflr leg-
hálslnn og er sett upp
af konunnl sjálfri fyrlr
samfarlr.
kannski þvingandi að
þurfa að koma hettunni
fyrir.
Fylgjast þarf vel með að
hettan sé í lagi og helst
þarf að mæla fyrir nýrri á
eins til tveggja ára fresti.
Einstaka kona eða karl
hafa ofnæmi fyrir efninu
sem hettan er gerð úr en
afar sjaldgæft er að fólk
hafi ofnæmi fyrir hinum
sæðisdrepandi efnum.
Kostnaður við hettuna er
900 krónur fyrir heimsókn
til sérfræðings og hettan
sjálf kostar 800 krónur.
Síðan bætist við kostn-
aður vegna kaupa á
sæðisdrepandi efnum og
fer það að sjálfsögðu eftir
notkun hversu mikill sá
kostnaður er.
SMOKKURINN
Öryggi: 94-98%
(sé sæðisdrepandi krem
notað með).
Smokkurinn er eina
getnaðarvörnin sem
karlmönnum stendur til
boða fyrir utan ófrjó-
semisaðgerðir.
Smokkurinn á sér langa
sögu en það er ekki fyrr
en á síðustu áratugum
sem framfarir í fram-
leiðslu hans hafa gert
hann að nokkuð öruggum
valkosti.
Smokkurinn er framleidd-
ur þannig að glerstöng er
dýft ofan í fljótandi
gúmmíefni sem síðan
storknar. Fínu dufti er
sáldrað á gúmmíið til að
koma í veg fyrir að það
límist saman og eins er
gjarnan sett sleipiefni til
að gera notkun hans
auðveldari.
Sumar tegundir eru
einnig framleiddar með
sæðisdrepandi kremi
sem eykur öryggi þeirra
til muna.
Notkun smokksins er
auðlærð og auðveld en
honum er einfaldlega
rúllað upp á getnaðarlim-
inn þegar fullri stinningu
er náð.
Helstu kostir smokksins
eru þeir að engar auka-
verkanir fylgja notkun
hans, hversu handhæg
notkun hans er og hversu
auðfáanlegur hann er.
Allar lyfjaverslanir selja
smokkinn en hann má
einnig fá víða annars
staðar eins og á
almenningssalernum, á
veitingahúsum, á bensín-
sölum og í sumum stór-
mörkuðum. Hver sem er
getur keypt smokkinn og
er hann því hentugur fyrir
þá sem veigra sér við að
fara til læknis og biðja
um getnaðarvarnir eins
og t.d. unglingar.
En smokkurinn er ekki
bara getnaðarvörn heldur
er hann einnig besta
vörnin gegn allskyns
sjúkdómum sem smitast
við samfarir, fyrir konur
jafnt sem karla. Þetta
gildir fyrir sjúkdóma eins
og klamydíu, lekanda,
herpes og síðast en ekki
síst alnæmi eða eyðni. Þá
er einnig talið líklegt að
smokkurinn veiti vörn
gegn leghálskrabba-
meini.
Fyrir fólk sem hefur ekki
fundið sér fastan ból-
félaga eða hefur hrein-
lega ekki áhuga á því, er
smokkurinn tvöföld vörn
sem vert er að nýta sér.
Ókostir við notkun
smokksins eru fáir.
Karlmenn kvarta undan
því að gúmmíið dragi úr
ánægju þeirra af kynlífi.
Eins finnst sumum
vandræðalegt að standa
í einhverri uppátroðslu
þegar ástarleikurinn
stendur sem hæst. En þar
sem þetta er eina
getnaðarvörnin sem
karlmenn eiga völ á dugir
ekki annað en að gera
jaað besta úr málunum.
Öryggi smokksins bygg-
ist á því að hann sé rétt
notaður. Það er mikil-
vægt að nota hann frá
upphafi samfara, en ekki
bara á lokasprettinum.
Þá er nauðsynlegt að
karlmaðurinn dragi lim-
inn út úr leggöngunum
fljótlega eftir sáðlát til
þess að koma í veg fyrir
að sæðið renni út úr
smokknum og komist
þannig inn í leggöngin.
Einnig má auka öryggi
smokksins mikið með því
að nota annaðhvort
smokka sem framleiddir
eru með sæðisdrepandi
kremi eða þá að konan
notar sæðisdrepandi
krem samhliða því að
maðurinn notar smokk-
inn.
Kostnaður við smokkinn
fer að sjálfsögðu eftir
notkun því að smokkur-
inn er einnota getnaðar-
vörn. Til eru margar og
misjafnar tegundir en
algengt verð á pakka með
12 smokkum er um 350
37