Heilsuvernd - 01.03.1991, Síða 38

Heilsuvernd - 01.03.1991, Síða 38
krónur. Það eru því um 30 krónur í hvert skipti og svo verður hver að reikna sína ársnotkun (meðaltal gæti verið 2,5 x 52 vikur = 130 skipti á ári x 30 krónur = 3.900 krónur á ári). SÆÐISDREPANDI KREM, HLAUP OG FROÐA (STÍLAR) Ekki er ráðlegt að nota sæðisdrepandi efni ein og sér til getnaðarvarna. En þau geta verið mjög áhrifarík ef þau eru notuð með öðrum vörnum eins og smokki eða hettu. Sæðisdrepandi krem, hlaup og froða, sem er einnig til í formi stíla, verka þannig að um leið og sæðisfrumur komast í snertingu við efnið hætta þær að hreyfast eða drepast þannig að þær ná Ófrjósemisaðgerð á karli aldrei upp í eggjaleiðara til að frjóvga egg. Þessa getnaðarvörn er hægt að fá án lyfseðils í apótekum og kostar hver pakkning, sem endist í þó nokkur skipti, 400-700 krónur. ÓFRJÓSEMISAÐGERÐIR Öryggi: 100% Bæði kynin geta látið framkvæma á sér ófrjó- semisaðgerðir og öðlast þannig varanlega getn- aðarvörn. Um er að ræða aðgerðir þar sem leið eggsins eða sæðisfrumanna er rofin. Slíkar aðgerðir hafa því ekki áhrif á framleiðslu kynhormóna. Karlar halda áfram að framleiða sæði en án sæðisfruma og konur halda áfram að framleiða egg sem ná ekki til legsins og eyðast því upp. Innlögn á sjúkrahús er ekki nauðsynleg fyrir karla sem fara í ófrjósemis- aðgerð. Aðgerðin er fram- kvæmd undir staðdeyf- ingu og eru gerðir tveir smáskurðir á punginn og eistalyppurnar tvær skornar í sundur. Ráðlagt er að nota aðrar getnaðarvarnir þar til að tvö sýni af sæðisvökva hafa greinst sæðisfrumu- laus. Tiltölulega lítil óþæg- indi fylgja aðgerðinni. Konur sem fara í ófrjó- semisaðgerð eru venju- lega svæfðar og þurfa að vera í mesta lagi sólarhring á sjúkrahúsi. Aðgerðin sjálf tekur fimmtán mínútur. Lítill skurður er gerður neðan við nafla og aðgerðin gerð með kviðarholsspeglun- artæki þar sem eggja- leiðurunum er lokað með litlum klemmum eða rafneista. Stundum eru þeir skornir í sundur og bundnir saman. Þessi aðgerð veldur ekki mikilli vanlíðan. Mikilvægt er að þeir sem velja sér ófrjósemis- aðgerð sem getnaðarvörn séu ákveðnir í að þeir vilji ekki eignast fleiri börn um ævina því að hverfandi líkur eru á að hægt sé að gera þá frjóa á ný. Nánari upplýsingar er hægt að fá í bæklingum sem Landlæknisembætt- ið gefur út þar sem er að finna ítarlega umfjöllun um getnaðarvarnir. Á Heilsuverndarstöðinni í Reykjavík er starfrækt kynfræðsludeild og einnig eru kvensjúkdómalæknar, heimilis- og heilsugæslu- læknar og Ijósmæður iðulega tilbúin til að gefa ráð varðandi getnaðar- varnir og notkun þeirra. NÝJUNGAR „Viljum ekki gera fólk að tilraunadýrum" segir landlæknir um nýjungar á sviði getnaðarvarna. Öðru hverju koma upp einhverjar nýjungar á sviði getnaðarvarna. Stöðugt fara fram rannsóknir og tilraunir í heiminum sem miða að því að finna öruggari og þægilegri getnaðar- varnir en nú tíðkast. Lengi hefur pilla fyrir karla verið á tilraunastiginu en lítið hefur heyrst um hana á undanförnum árum. Svampurinn er ný getnaðarvörn fyrir konur og er þegar farið að auglýsa hann í kvenna- blöðum vestan hafs. Þetta er skálarlaga svampur sem inniheldur sæðisdrepandi efni. Honum er komið fyrir í leggöngunum, líkt og hettunni, en síðan fleygt eftir notkun. Svampurinn er því nokkurs konar ný útfærsla á hettunni. Vængurinn eða verndarvængurinn, eins og hann hefur verið kallaður á íslensku, er allra nýjasta uppfinningin á sviði getnaðarvarna. Verndarvængurinn er samsettur úr fimm litlum silíkonpípum sem inni- halda hormón eins og þau sem er að finna í venju- legri getnaðarvarnarpillu. Vængnum er komið fyrir í fitulagi undir húðinni á upphandlegg konunnar með einfaldri aðgerð. Þaðan dreifast hormón út um líkamann og er talið að getnaðarvörn þessi dugi í fimm ár. Hvenær sem þess er óskað er svo hægt að fjarlægja verndarvæng- inn. Þessi aðferð komst nýverið á það stig að hægt er að prófa hana. Verður hún reynd í 17 löndum næstu 5-10 árin áður en hún verður sett á almennan markað. Að sögn landlæknis er fylgst nokkuð vel með þróun slíkra nýjunga hér á landi og höfum við verið fljót að tileinka okkur notkun viðurkenndra getnaðarvarna eins og t.d. pillunnar á sínum tíma. En jafnframt tekur land- læknir fram að strangt eftirlit er með því hér- lendis hvað læknar mega gefa fólki í þessum efnum, sumt af því sem sett er á markað erlendis reynist alls ekki vera nógu gott til langs tíma eða þegar á reynir. Af þessum sökum er yfirleitt ekki farið geyst í að leyfa slíkar nýjungar, því að „þótt við séum opnir fyrir nýjungum viljum við ekki gera fólk að tilraunadýrum" segir landlæknir. 38

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.