Heilsuvernd - 01.03.1991, Blaðsíða 45
tóbaksfyrirtæki kaupa sig
inn í kvikmyndir og
sjónvarpsþætti og hrein-
lega múta framleið-
endum.
Ég kalla sígarettuna
„verkfæri" af því að
enginn nýtir hana í byrjun
vegna eiginleikanna, þ.e.
vegna eitursins sem í
henni er. Menn kaupa ekki
sígarettur til að menga
sjálfa sig og andrúms-
loftið, heldur til að tjá sig
með þeim líkt og gert er
með varalit, dökkum sól-
gleraugum á dansleik,
barmmerkjum sem gefa
til kynna stjórnmálaskoð-
anir eða öðrum þvílíkum
verkfærum. Sígarettan
verkar þá eins og hluti af
leikgervi viðkomandi
persónu og sama má
segja um klæðnað og
ýmsa hluti sem notaðir eru sem
verkfæri til þess að byggja upp
ákveðið hlutverk, hvort sem það er
gert meðvitað eða ómeðvitað.
Unglingur sem byrjar að reykja gerir
það í hópi sem vill skera sig úr.
Sumir reykja bara til þess að herma
eftir en um leið tileinka þeir sér
ákveðna menningu sem er sköpuð
af utanaðkomandi aðilum, þ.á m.
auglýsendum og kvikmynda-
framleiðendum. Sé unglingurinn
veikur fyrir og skorti gagnrýni og
sjálfstæða hugsun verður hann
auðveldur í taumi og fylgir hópnum
án þess að kvarta.
TVENNS KONAR TILVERA
Aðferðin sem ég nota í skólastarfinu
er sú að láta nemendurna rýna í
myndir sem eru dæmigerðar fyrir
framleiðslu myndveranna. Við
búum einnig sjálf til auglýsinga-
myndir af sama toga og skeytum
þá saman ýktum dæmum sem sýna
hversu auðvelt er að blekkja fólk
með litlum tilkostnaði.
Hugsum okkur að auglýsingar
segðu sannleikann, að sígarettu-
auglýsing sýndi hrukkótta konu sem
Þessi ætti að virka!
Við gætum allt eins
verið að horfa á atriði
úr kvikmynd:
Fullkomna parið,
góða veðrið,
tryllitækið, heiti
potturinn, gítarinn
með og sígarettan í
aðalhlutverki. Hér er
draumaveröldin í öllu
sínu veldi og
sannleikurinn látinn
lönd og leið.
Hvaða samband er á
milli vörunnar og
stúlknanna í
bakgrunninum?
Það er ekkert samband
þar á milli. í stað
leiðréttingarvökvans
mætti allt eins setja inn
á myndina sjampó,
sokkabuxur, kattamat
eða sígarettur.
sjálfsvitund sína og er því í
leit að fyrirmyndum sem
geta styrkt ímynd hans og
öryggiskennd.
Hann þiggur því afurðir
myndveranna með gleði
og gagnrýnislaust.
Gagnrýnin hugsun telst
yfirleitt ekki til eiginleika
unglinga, þvert á móti eru það
hópþrýstingur og óöryggi sem
einkennir afstöðu þeirra. Það er því
á okkar ábyrgð, sem teljum okkur
þekkja muninn á réttu og röngu, að
byggja unglingana þannig upp að
þeir tileinki sér ekki hverja þá
vitleysu sem framleidd er í
gerviheimi myndveranna.
Við viljum tryggja að unglingarnir
séu sér þess meðvitaðir að
„myndveratilveran" er tilbúningur
og að þeir séu færir um að greina á
milli raunveruleikans og þeirrar
tilveru. Með það markmið í huga
hef ég unnið með þeim dagskrá
sem er ætlað að afhjúpa blekkingar
er felast í afurðum myndveranna.
Sígarettan er eitt þeirra „verkfæra"
sem oft er notað í myndbyggingu.
Ástæðurnar fyrir tilvist sígarett-
unnar í kvikmyndum eru
margvíslegar, frá sjónarhorni
Ijósmyndarans er stundum
heppilegt að hafa reyk með í
myndrammanum.
Önnur ástæða getur verið að
persóna sé látin grípa til
sígarettunnar til túlkunar á
taugaspenningi. Yfirleitt lýsir það
skorti á hugmyndaflugi leikstjóra
að nota sígarettuna sem „verkfæri"
til þess að túlka tilfinningar en
alvarlegust er sú staðreynd að
45