Fréttablaðið - 18.12.2021, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 18.12.2021, Blaðsíða 8
Það er ekki hægt að þegja yfir þessu. Stjórn- endur í sveitarfélögum eiga ekki að komast upp með að fela sig á bak við svona skýrslur. Guðsteinn Einarsson, íbúi í Borgarfirði Ef að þetta fólk hefði fengið eingreiðsluna sem það hefur verið að kalla eftir myndi það bjarga jólunum hjá ansi mörgum. Áslaug Guðný Jónsdóttir, stýra Facebook-hópsins Matarhjálp. Vinir fá sérkjör Skráning á icewear.is FUNI dúnúlpa Kr. 33.990.- GRÍMSEY hanskar Kr. 2.990.- ASOLO Falcon Kr. 29.990.- RÖKKVI göngubuxur Kr. 11.990.- Eyjaallajökull hlý dúnúlpa Kr. 48.990.- HVÍTANES Merino buxur Kr. 11 .990.- HVÍTANES Merino ungbarnagalli Kr. 8.990.- HVÍTANES Merino peysa Kr. 13.990.- Hlýjar Gjafir GERÐUR Ullarpeysa Kr. 17.990.- H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Umsóknarfrestur til 15. febrúar Sprotasjóður leik-, grunn- og framhaldsskóla Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla vegna skólaársins 2022-2023. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi. Leikskólastjórar, skólastjórar eða skólameistarar fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstakra kennara geta sent inn umsókn. Aðrir aðilar en skólar geta sótt um þróunarverkefni í samstarfi við skóla. Í þeim tilfellum skal staðfesting á þátttöku skóla fylgja umsókn. Áherslusvið sjóðsins fyrir tímabilið 2022-2023 eru verkefni sem styðja við innleiðingu menntastefnu í eftirfarandi þáttum: • Virkt nemendalýðræði • Gagnrýnin hugsun, sköpun og skilningur með áherslu á læsi • Nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn Sjá nánar í fyrstu aðgerðaáætlun Menntastefnu 2030 á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis, https://www. stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2021/09/24/ Fyrsta-adgerdaaaetlun-nyrrar-menntastefnu-kynnt-/ . Í umsókn þarf að skilgreina hvernig verkefnið tengist ofan greindum áherslum ásamt því hvernig nemendur verða virkir þátttakendur í verkefninu sjálfu. Umsóknir sem falla utan ofangreindra áherslusviða fá sérstaka umfjöllun í ljósi áhrifa verkefna á menntun og skólastarf. Umsóknir sem fela í sér samstarf skóla, skólastiga eða skóla og annarra stofnanna njóta alla jafna forgangs við úthlutun styrkja. Fyrir skólaárið 2022-2023 verða til úthlutunar allt að 55 milljónum kr. Finna má frekari upplýsingar um sjóðinn á www.rannis.is/sjodir/menntun/sprotasjodur/. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2022 kl. 15.00. Umsókn skal skilað á rafrænu formi gegnum mínar síður á rannis.is. Nánari upplýsingar veitir Skúli Leifsson, sími 5155843, sprotasjodur@rannis.is Sveitarstjórn Borgarbyggðar neitar að afhenda skýrslu eft- irlitsmanns um framkvæmd á Grunnskóla Borgarness, sem farið hefur langt fram úr áætlunum. Íbúi vonast til þess að hafa betur gegn bænum í annað skiptið. kristinnhaukur@frettabladid.is VESTURLAND Guðsteinn Einarsson, fyrrverandi kaupfélagsstjóri Kaup- félags Borgfirðinga, hefur krafið sveitarstjórn Borgarbyggðar um skýrslu vegna framkvæmda við grunnskóla bæjarins. Sveitarstjórn hefur hafnað beiðni Guðsteins, að sögn vegna hugsanlegs dómsmáls, og mun málið fara fyrir úrskurðar- nefnd. „Það er ekki hægt að þegja yfir þessu. Stjórnendur í sveitarfélögum eiga ekki að komast upp með að fela sig á bak við svona skýrslur,“ segir Guðsteinn, sem er íbúi í Borgarnesi. Skýrslan var unnin af eftirlits- manni og skilað inn 5. nóvember og sveitarfélagið hafnaði beiðni Guðsteins 1. desember. Kærði hann þá ákvörðun til úrskurðarnefndar upplýsingamála og hefur sveitar- félagið frest til 22. desember til þess að svara. Eftir að upp komu myglumál í grunnskólanum sumarið 2017 var ákveðið að fara í miklar endur- bætur og stækkun skólans. Byggður var fjölnota salur, eldhús og sett nýtt þak, loftræstikerfi, rafmagns- og pípulagnir í hluta hússins. Kostnaðaráætlun Borgarbyggðar var tæpar 690 milljónir króna en aðeins eitt tilboð barst, frá verk- takanum Eiríki J. Ingólfssyni, upp á rúmar 818 milljónir. Samkvæmt árs- reikningum árin 2017 til 2020 hefur bærinn greitt 1.449 milljónir í fram- kvæmdir á skólahúsnæðinu. Í maí lýsti Lilja Björg Ágústs- dóttir, forseti bæjarstjórnar, því á bæjarstjórnarfundi að fram- kvæmdir hefðu farið töluvert fram úr áætlun og margar ástæður lægju að baki. Húsnæðið hefði verið í verra ástandi en búist var við og verið væri að greina galla í hönnun verksins. „Leggja hefði þurft meiri vinnu í fullnaðarhönnun áður en fram- kvæmd fór af stað, til að tryggja að kostnaðaráætlun væri ítarlegri og betur gert ráð fyrir ófyrirséðum kostnaði,“ bókaði Lilja. Guðsteinn segir það augljóst mál að undirbúningurinn að verkefninu hefði ekki verið nógu góður. „Ef kostnaðaráætlunin hefði hljóðað upp á 1,5 milljarða í staðinn fyrir 700 milljónir hefði að öllum líkindum ekki verið farið af stað með verk- efnið,“ segir hann. Segist hann draga það í efa að bærinn fari í málaferli við verktakann eða hönnuðinn. Sjálfur segist hann enga beina aðkomu eiga að málinu, en vilji sýna bæjarstjórninni aðhald. „Bærinn hefur gefið það út að stjórnsýslan eigi að vera opin og upplýst. En þetta er í annað skiptið á þessu ári sem þeir segja skýrslu vera trúnaðarmál,“ segir hann. Hin fyrri var skýrsla KPMG um fjármál bæjarins, sem Borgarbyggð sagði vinnugagn sem innihéldi persónugreinanlegar upplýsingar. Úrskurðarnefnd féllst ekki á þær rök- semdir og úrskurðaði Guðsteini í vil í júlí síðastliðnum eftir að hann kærði. Fréttablaðið hefur einnig beðið um skýrsluna um Grunnskólann í Borgarnesi. Þegar þetta er ritað hefur hún ekki verið afhent. n Vill svör um umframeyðslu við uppbyggingu nýs skóla Kostnaðaráætlun var 690 milljónir en bærinn hefur greitt rúmlega 1,4 milljarða á fjórum árum. MYND/BORGARBYGGÐ birnadrofn@frettabladid.is SAMFÉLAG Áslaug Guðný Jóns- dóttir segir mikla neyð ríkja hjá fjölda fólks fyrir jólin. Hún stjórn- ar Facebook-síðunni Matarhjálp Neyðarkall, þar sem fjöldi fólks hefur falast eftir aðstoð fyrir jólin. „Margir þeirra sem hafa leitað til okkar hafa einhverra hluta vegna ekki átt rétt á aðstoð hjá hjálpar- stofnunum og verið vísað þaðan án aðstoðar. Dæmi eru um að fólk eigi engan eða sáralítinn pening, geti hvorki keypt mat né jólagjafir fyrir börnin sín,“ segir Áslaug. Í innleggi á Matarhjálp segist Áslaug hafa fengið bæði skilaboð og hringingar frá fólki sem sé við það að gefast upp vegna fátæktar. Þar biðlar hún til fólks að leggja fram hjálparhönd. „Við erum nú þegar búin að hjálpa 30 manns með mat og gjafir, en ég er enn með hérna fyrir fram- an mig lista yfir 21 manneskju sem hefur beðið um hjálp en við getum ekki hjálpað öllum,“ segir Áslaug. Hún segir að þrátt fyrir að hún geti ekki hjálpað öllum sé það vel hægt. „Ef að þetta fólk hefði fengið eingreiðsluna sem það hefur verið að kalla eftir myndi það bjarga jólunum hjá mörg um,“ seg ir Áslaug. „Ég held að ég myndi fara þarna niður eftir og kyssa hann Bjarna Ben á kinnina ef það yrði af henni.“ n Neyð ríkir hjá fjölda fólks fyrir jólin 8 Fréttir 18. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.