Fréttablaðið - 18.12.2021, Side 12

Fréttablaðið - 18.12.2021, Side 12
BARÓNSTÍGUR KEFLAVÍK OG AKUREYRI 8-24 24/7 WWW.EXTRA.IS 3699kr.pk. Hallmark Gift Bags 16 stk 2499kr.stk. Q.S. Mackintosh Tin 2 kg !! VINSÆL VARA 6999kr.stk. Krinner Jólatrésfótur vara EXTRA ÓDÝRT Húsnæðis- og mannvirkjastofnun starfrækir nú faggilta mælifræðistofu og faggilta kvörðunarþjónustu á grundvelli VIII. kafla laga nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn. Hefur stofnunin hafið undirbúning að því að útvista rekstri faggiltrar mælifræðistofu og faggiltrar kvörðunarþjónustu. Vegna þessa er óskað eftir umsóknum frá aðilum sem vilja taka að sér rekstur fag- giltrar kvörðunarþjónustu eða tryggja aðgang að slíkri þjónustu þar sem öllum sem þess óska verður veittur aðgangur að rekjanlegum kvörðum og faggiltri kvörðunar- þjónustu auk þess að framkvæma almennar, ófaggiltar kvarðanir og löggildingar. Einungis kemur til greina að semja við aðila sem hefur reynslu og víðtæka þekkingu af rekstri faggiltrar mælifræðistofu og/eða faggiltri kvörðunarþjónustu. Gert er ráð fyrir því að sá aðili sem samið verður við taki yfir tímabundinn leigu- samning Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um 307 m2 húsnæði á jarðhæð að Borgartúni 21, þar sem mælifræðistofa stofnunarinnar er nú starfrækt. Jafnframt er gert ráð fyrir að sá aðili sem samið verður við skuldbindi sig til að bjóða þeim starfs- mönnum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem starfa við mælifræðistofu og faggilta kvörðunarþjónustu starf. Þá er gerð krafa um að sá aðili sem gengið verður til samninga við taki á leigu þau tæki sem eru á mælifræðistofu Húsnæðis- og mann- virkjastofnunar. Nánari upplýsingar veitir Jóhann Ólafsson framkvæmdastjóri hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Johann.Olafsson@hms.is. Óskað er eftir því að umsóknir berist til Landslaga slf., Borgartúni 26, 105 Reykjavík eða á netfangið aslaug@landslog.is eigi síðar en 6. janúar 2022. ÚTVISTUN Á REKSTRI FAGGILTRAR MÆLIFRÆÐISTOFU OG FAGGILTAR KVÖRÐUNARÞJÓNUSTU Omíkron-afbrigðið virðist ætla að skyggja á jólavertíðina víðs vegar um heiminn. Víða um lönd hafa samkomutak- markanir verið hertar. thorvardur@frettabladid.is COVID-19 Hátíðahöld um jól og ára- mót verða í skugga Covid-farald- ursins annað árið í röð, faraldurs sem er í sókn víðast hvar. Omí- kron-afbrigðið fer sem eldur í sinu um heimsbyggðina og víða um heim annar framboð af örvunar- skömmtum ekki eftirspurn. Fjölmörg ríki hafa gripið til hertra sóttvarnaaðgerða, meðal annars til- kynntu dönsk stjórnvöld um slíkt í gær. Þar hefur smitum fjölgað hratt að undanförnu og er nú fimmta hvert smit sem þar greinist af völd- um Omíkron. Aðgerðirnar taka gildi klukkan átta í fyrramálið. Í Osló í Noregi hefur herinn verið kallaður út til að aðstoða við bólu- setningar og skimanir. Í Bretlandi greindist í gær metfjöldi smita, þriðja daginn í röð. Þau voru 93 þúsund og í London greindist einn af hverjum fimmtíu íbúum með Covid í síðustu viku. Nú hafa 800 þúsund Banda- ríkjamenn látist af völdum Covid og hvergi hafa f leiri látist af þeim sökum. Af þeim eru þrír fjórðu 65 ára og eldri. Í Kanada hafa sótt- varnaaðgerðir verði hertar í mörg- um fylkjum þar sem metfjöldi smita greinist dag eftir dag. Í Suður-Afríku, þar sem vísinda- menn komu fyrst auga á afbrigðið, er smitum að fækka og ólíkt fyrri bylgj- um hefur sjúkrahússinnlögnum ekki fjölgað í takti við smitfjölda. Samkvæmt nýrri breskri rann- sókn bendir hins vegar ekkert til þess að smit af völdum Omíkron séu minna alvarleg en af Delta. Líkur á að smitast aftur af Covid séu fimm sinnum meiri af völdum Omíkron en af öðrum afbrigðum. „Samkvæmt rannsókninni eru engar sannanir fyrir því að Omí- kron sé minna alvarlegt en Delta, hvort sem horft er á fjölda þeirra sem smitast og finna fyrir einkenn- um, eða fjölda þeirra sem eru lagðir inn eftir smit,“ segir Neil Ferguson, smitsjúkdómafræðingur og ráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar, sem fór fyrir rannsókninni, í yfirlýsingu. Þó séu gögn um innlagnir „enn mjög takmörkuð“. n Covid-jól í skugga Omíkron Covid-smitum í New York fjölgar stöðugt. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Í Bretlandi greindist í gær metfjöldi smita, þriðja daginn í röð. Óvíst er um næstu skref ensku úrvals- deildarinnar þar sem rúmlega helmingur liðanna glímir við smit í leikmannahóp. 12 Fréttir 18. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.