Fréttablaðið - 18.12.2021, Blaðsíða 12
BARÓNSTÍGUR
KEFLAVÍK OG AKUREYRI
8-24
24/7
WWW.EXTRA.IS
3699kr.pk.
Hallmark Gift Bags 16 stk
2499kr.stk.
Q.S. Mackintosh Tin 2 kg
!!
VINSÆL VARA
6999kr.stk.
Krinner Jólatrésfótur
vara
EXTRA
ÓDÝRT
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun starfrækir nú faggilta mælifræðistofu og faggilta
kvörðunarþjónustu á grundvelli VIII. kafla laga nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna
og vigtarmenn.
Hefur stofnunin hafið undirbúning að því að útvista rekstri faggiltrar mælifræðistofu
og faggiltrar kvörðunarþjónustu.
Vegna þessa er óskað eftir umsóknum frá aðilum sem vilja taka að sér rekstur fag-
giltrar kvörðunarþjónustu eða tryggja aðgang að slíkri þjónustu þar sem öllum sem
þess óska verður veittur aðgangur að rekjanlegum kvörðum og faggiltri kvörðunar-
þjónustu auk þess að framkvæma almennar, ófaggiltar kvarðanir og löggildingar.
Einungis kemur til greina að semja við aðila sem hefur reynslu og víðtæka þekkingu
af rekstri faggiltrar mælifræðistofu og/eða faggiltri kvörðunarþjónustu.
Gert er ráð fyrir því að sá aðili sem samið verður við taki yfir tímabundinn leigu-
samning Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um 307 m2 húsnæði á jarðhæð að
Borgartúni 21, þar sem mælifræðistofa stofnunarinnar er nú starfrækt. Jafnframt er
gert ráð fyrir að sá aðili sem samið verður við skuldbindi sig til að bjóða þeim starfs-
mönnum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem starfa við mælifræðistofu og
faggilta kvörðunarþjónustu starf. Þá er gerð krafa um að sá aðili sem gengið verður
til samninga við taki á leigu þau tæki sem eru á mælifræðistofu Húsnæðis- og mann-
virkjastofnunar.
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Ólafsson framkvæmdastjóri hjá Húsnæðis- og
mannvirkjastofnun, Johann.Olafsson@hms.is.
Óskað er eftir því að umsóknir berist til Landslaga slf., Borgartúni 26, 105 Reykjavík
eða á netfangið aslaug@landslog.is eigi síðar en 6. janúar 2022.
ÚTVISTUN Á REKSTRI FAGGILTRAR
MÆLIFRÆÐISTOFU OG FAGGILTAR
KVÖRÐUNARÞJÓNUSTU
Omíkron-afbrigðið virðist
ætla að skyggja á jólavertíðina
víðs vegar um heiminn. Víða
um lönd hafa samkomutak-
markanir verið hertar.
thorvardur@frettabladid.is
COVID-19 Hátíðahöld um jól og ára-
mót verða í skugga Covid-farald-
ursins annað árið í röð, faraldurs
sem er í sókn víðast hvar. Omí-
kron-afbrigðið fer sem eldur í sinu
um heimsbyggðina og víða um
heim annar framboð af örvunar-
skömmtum ekki eftirspurn.
Fjölmörg ríki hafa gripið til hertra
sóttvarnaaðgerða, meðal annars til-
kynntu dönsk stjórnvöld um slíkt í
gær. Þar hefur smitum fjölgað hratt
að undanförnu og er nú fimmta
hvert smit sem þar greinist af völd-
um Omíkron. Aðgerðirnar taka
gildi klukkan átta í fyrramálið.
Í Osló í Noregi hefur herinn verið
kallaður út til að aðstoða við bólu-
setningar og skimanir. Í Bretlandi
greindist í gær metfjöldi smita,
þriðja daginn í röð. Þau voru 93
þúsund og í London greindist einn
af hverjum fimmtíu íbúum með
Covid í síðustu viku.
Nú hafa 800 þúsund Banda-
ríkjamenn látist af völdum Covid
og hvergi hafa f leiri látist af þeim
sökum. Af þeim eru þrír fjórðu 65
ára og eldri. Í Kanada hafa sótt-
varnaaðgerðir verði hertar í mörg-
um fylkjum þar sem metfjöldi smita
greinist dag eftir dag.
Í Suður-Afríku, þar sem vísinda-
menn komu fyrst auga á afbrigðið, er
smitum að fækka og ólíkt fyrri bylgj-
um hefur sjúkrahússinnlögnum
ekki fjölgað í takti við smitfjölda.
Samkvæmt nýrri breskri rann-
sókn bendir hins vegar ekkert til
þess að smit af völdum Omíkron séu
minna alvarleg en af Delta. Líkur á
að smitast aftur af Covid séu fimm
sinnum meiri af völdum Omíkron
en af öðrum afbrigðum.
„Samkvæmt rannsókninni eru
engar sannanir fyrir því að Omí-
kron sé minna alvarlegt en Delta,
hvort sem horft er á fjölda þeirra
sem smitast og finna fyrir einkenn-
um, eða fjölda þeirra sem eru lagðir
inn eftir smit,“ segir Neil Ferguson,
smitsjúkdómafræðingur og ráðgjafi
bresku ríkisstjórnarinnar, sem fór
fyrir rannsókninni, í yfirlýsingu. Þó
séu gögn um innlagnir „enn mjög
takmörkuð“. n
Covid-jól í skugga Omíkron
Covid-smitum í New York fjölgar stöðugt. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Í Bretlandi greindist í
gær metfjöldi smita,
þriðja daginn í röð.
Óvíst er um næstu
skref ensku úrvals-
deildarinnar þar sem
rúmlega helmingur
liðanna glímir við smit
í leikmannahóp.
12 Fréttir 18. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ