Fréttablaðið - 18.12.2021, Síða 20

Fréttablaðið - 18.12.2021, Síða 20
Í ljósi aðstæðna var óskað eftir því að óháð nefnd á vegum ÍSÍ myndi rann- saka háttsemi stjórnar KSÍ í málinu. Mál Kolbeins opnaði á umræðuna Undir lok sumars fullyrti Guðni Bergsson í samtali við Fréttablaðið að KSÍ hefði ekki borist erindi um ofbeldis- eða kynferðisbrot vegna landsliðsmanna á tíma sínum sem formaður KSÍ. Degi síðar endurtók Guðni full- yrðinguna í Kastljósi, sem leiddi til þess að Þórhildur Gyða Arnars- dóttir steig fram og greindi frá ofbeldi af hálfu Kolbeins Sigþórs- sonar og gagnrýndi um leið vinnu- brögð KSÍ í ofbeldismálum. Máli sínu til rökstuðnings var Þórhildur með gögn sem sýndu fram á samskipti milli föður henn- ar og Guðna frá 2018, um ofbeldis- brot af hálfu Kolbeins og um þátt- töku hans í landsliðsverkefnum. Kolbeinn var annar tveggja leik- manna sem voru teknir úr lands- liðshópnum fyrir næsta verkefni og sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hann staðfesti að hafa samið við Þórhildi og vinkonu hennar vegna of beldismálsins, en fullyrti að hann kannaðist ekki við umrædd atvik sem áttu að hafa átt sér stað. Gylfi kvað þessar sögusagnir niður. Fyrrum eiginkona Ragnars lýsti yfir von- brigðum með vinnu- hætti KSÍ í skýrslu ÍSÍ. Stormasamt ár í Laugardalnum Í fyrsta íþróttaannál ársins fer Fréttablaðið yfir öll þau vand- ræði sem hafa ratað á borð Knattspyrnusambands Íslands á árinu. Athyglin var á hlutum sem áttu sér stað utan knatt- spyrnuvallarins og ásökunum um tilraun stjórnar KSÍ til að þagga niður ofbeldisbrot landsliðsmanna. Máttarstólpar gull- aldarliðs karlalandsliðsins voru sakaðir um hin ýmsu brot. Fjallað var um mál Gylfa Þórs og Ragnars í úttektarskýrslu starfsnefndar ÍSÍ sem kom út í desembermánuði. Guðni Bergsson átti hálft ár eftir af öðru kjörtímabili sínu sem formaður KSÍ þegar hann sagði starfinu lausu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Kolbeinn deilir markametinu hjá karlalands- liðinu. FRÉTTA- BLAÐIÐ/EPA Stjórnin sagði af sér Í upphafi sumars greindi kona frá kynferðisbroti, á samskiptamiðli sínum, sem átti sér stað árið 2010. Í skýrslu úttektarnefndar ÍSÍ kom fram að æðstu stjórnendur KSÍ hefðu í byrjun júní fengið upplýsingar um alvarlegt kynferðisbrot af hálfu tveggja leikmanna karlalandsliðs Íslands, eftir leik gegn Danmörku í Kaupmannahöfn 2010, frá tengdamóður fórnarlambsins, sem hefur starfað fyrir KSÍ um árabil. Tveimur mánuðum síðar vakti pistill Hönnu Bjargar Vilhjálmsdóttur á Vísi athygli, þar sem Hanna sagði KSÍ beita sér fyrir því að þagga niður ofbeldisásakanir í garð karlalandsliðsins. Um miðj- an ágúst ítrekaði Guðni við stjórn KSÍ að engin slík mál hefðu komið formlega inn á þeirra borð en það var ekki fyrr en undir lok mánaðarins sem stjórn KSÍ og starfsfólk fékk staðfestingu á að um væri að ræða málefni tveggja landsliðsmanna. Tveimur dögum síðar bauðst Guðni til að stíga tímabundið til hliðar á meðan úttekt yrði gerð á málinu, en þegar það hlaut ekki meðbyr sagði Guðni af sér. Degi síðar sagði stjórn KSÍ af sér. Grunur um heimilisofbeldi hafi átt heima á borði lögreglu Í skýrslu ÍSÍ kom fram að lögreglan hefði verið kölluð að heimili leik- manns karlalandsliðsins árið 2016 vegna gruns um heimilisof beldi. Lögreglan hefði verið kölluð til eftir ábendingar frá nágranna. Áður kom fram á vef Fréttablaðsins að um væri að ræða Ragnar Sigurðsson. Klara Bjartmarz, framkvæmda- stjóri KSÍ, staðfesti í skýrslu starfs- hóps ÍSÍ að hún hefði vitað af málinu og látið Geir Þorsteinsson, þáverandi formann KSÍ, Magnús Gylfason og Guðna Bergsson vita um málið. KSÍ hefði hins vegar ályktað að þar sem málið átti sér stað utan landsliðsverkefnis hefði KSÍ metið það sem svo að það væri í verkahring lögreglunnar. Í skýrslu ÍSÍ fullyrti Magnús, sem sat þá í landsliðsnefnd karla- landsliðsins, að hann hefði fundað með Ragnari og eiginkonu hans degi síðar og að ekkert hefði bent til þess að þetta hefði átt sér stað. Fyrrverandi eiginkona Ragnars leiðrétti þetta við ÍSÍ sama dag og skýrslan kom út og sagðist ekki hafa rætt við Magnús um málið. Geir sagði að málið hefði ekki verið „formlega á borði KSÍ og um einkalíf leikmannsins væri að ræða“, en sagði mögulegt að hann hefði ráðlagt Magnúsi um almannatengil sem gæti aðstoðað í slíkum málum. Umrædd eigin- kona lýsti yfir vonbrigðum með vinnubrögð KSÍ í málinu. Meintu ósætti neitað Í vor gaf Guðjón Þórðarson, fyrrverandi landsliðs- þjálfari, til kynna í hlaðvarpsþættinum The Mike Show, að ósætti milli Eiðs Smára Guðjohnsen og Gylfa Þórs Sigurðssonar hefði gert það að verkum að Gylfi gaf ekki kost á sér í fyrsta verkefni landsliðsins undir stjórn nýs þjálfarateymis. Gylfi kvað þessar sögusagnir niður í samtali við DV og sagði ekkert til í því að það væri ósætti milli hans og Eiðs. 20 Íþróttir 18. desember 2021 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 18. desember 2021 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.