Fréttablaðið - 18.12.2021, Qupperneq 22
Vanda tók við
Boða þurfti til aukaþings hjá KSÍ
þar sem kosin yrði ný stjórn og
nýr formaður, eftir að þáverandi
stjórn og formaður sögðu af sér.
Fráfarandi stjórn sinnti áfram
störfum að kröfu evrópska- og
Alþjóðaknattspyrnusambands-
ins til þess að koma í veg fyrir
að Ísland ætti á hættu að missa
þátttökurétt sinn á mótum
innan vébanda FIFA. Fjórum
vikum síðar var Vanda Sigur-
geirsdóttir kosin formaður KSÍ,
fyrst kvenna og fyrst kvenna til
að taka við embætti formanns í
aðildarsambandi UEFA. Vanda
er tíundi formaður KSÍ frá upp-
hafi, en hún lék á sínum tíma 37
leiki fyrir Íslands hönd.
Karlalandsliðið féll
niður um sextán sæti á
heimslistanum í ár.
Vanda er fyrsta konan
sem gegnir starfi for-
manns knattspyrnu-
sambands í Evrópu.
Einu sigurleikir karlalandsliðsins í undankeppni HM 2022 voru gegn Liechtenstein. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Eiður Smári lét af störfum sem aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins á árinu.
Vanda lék á sínum tíma 37 leiki
fyrir Íslands hönd.
Enn er beðið eftir niðurstöðu rannsóknar á máli Gylfa. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Aron Einar var ósáttur við afskiptasemi stjórnar KSÍ af landsliðsvalinu.
Handtekinn um sumarið í Bretlandi
Um miðjan júlímánuð bárust
fréttir af því að Gylfi Þór hefði
verið handtekinn í tengslum
við kynferðisbrot gegn ólög-
ráða stúlku. Rannsókn málsins
hefur staðið yfir í hálft ár, en um
miðjan októbermánuð kom fram
á vef Fréttablaðsins að rannsókn
málsins stæði yfir og að Gylfi yrði
áfram laus gegn tryggingu, en í far-
banni frá Bretlandseyjum.
Hann er ekki í leikmannahópi
Everton og hefur Arnar Þór Viðars-
son, þjálfari íslenska landsliðsins,
verið stuttorður þegar hann hefur
verið spurður út í samskipti við
Gylfa og sagst ekki hafa átt í nein-
um samskiptum við hann.
Fyrirliðinn tekinn úr hópnum
Arnar Þór Viðarsson viðurkenndi
að hafa hætt við að velja Aron
Einar Gunnarsson í landsliðið
fyrir leiki gegn Armeníu og Liech-
tenstein eftir viðræður við stjórn
KSÍ, vegna ásakana um kynferðis-
brot frá árinu 2010. Aron sendi frá
sér yfirlýsingu þar sem hann sagð-
ist vera settur saklaus til hliðar í
nýrri úti lokunar menningu KSÍ.
Kæra er á borði hjá lögreglu um
umrætt atvik en Eggert Gunnþór
Jónsson er einnig með réttarstöðu
sakbornings.
Mál aðstoðarþjálfara í brennidepli
Um mitt sumar fékk Eiður Smári
Guðjohnsen, aðstoðarþjálfari
k a rla la nd sl iðsins , sk r i f lega
áminningu vegna starfsskyldna
sinna og var settur í tímabundið
leyfi frá störfum. Var ákvörðunin
tekin eftir að myndband af honum
í annarlegu ástandi í miðbænum
birtist á samfélagsmiðlum. Í yfir-
lýsingu sinni lýsti KSÍ yfir stuðn-
ingi við Eið og sneri hann aftur í
teymið í haust. Eftir síðasta verk-
efni karlalandsliðsins ákvað KSÍ
hins vegar að nýta sér uppsagnar-
ákvæði í samningi hans eftir gleð-
skap hjá karlalandsliðinu daginn
eftir síðasta leikinn gegn Norður-
Makedóníu.
Slakur árangur karlaliðsins
Karlalandsliðið í knattspyrnu átti
í stökustu vandræðum í undan-
keppninni fyrir HM 2022 á þessu
ári.
Vandræði utan vallar leiddu
til þess að Ísland þurfti að nota
36 leikmenn í tíu leikjum og var
niðurstaðan níu stig af þrjátíu.
Tveir sigurleikir, báðir gegn Liech-
tenstein, og fimm tapleikir.
Málin sem leiddu til þess að stjórn KSÍ féll
3. júní
Lykilstjórnendur KSÍ fá bréf
um alvarlegt kynferðisbrot
tveggja leikmanna karla-
landsliðs Íslands árið 2010.
Starfsmaður KSÍ sem kemur
bréfinu áleiðis, segist tengj-
ast brotaþola.
13. ágúst
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir
sakar KSÍ um kvenfyrir-
litningu og þöggun, í pistli
á Vísi. Guðni sendir póst til
stjórnar KSÍ þar sem hann
segir erfitt að ræða málið,
sem sé viðkvæmt. Stjórn
KSÍ spyrst fyrir en Guðni
segir engin ofbeldismál inni
á sínu borði.
26. ágúst
Guðni segir í Kastljósi
að KSÍ hafi ekki borist
ábendingar um brot leik-
manna landsliðsins. Sam-
dægurs sendir starfsmaður
KSÍ, sem tengist brotaþola,
tölvupóst á starfsmenn
og stjórn KSÍ, þar sem hún
kveðst senda inn opinbera
ábendingu þar sem ekki
hafi verið hlustað á hana.
27. ágúst
Guðni viðurkennir í Kast-
ljósi að hafa farið með
rangt mál um að engin
ofbeldismál hafi ratað inn
á borð KSÍ. Sama kvöld
greinir Þórhildur Gyða
Arnarsdóttir á Rúv frá
ofbeldismáli af hálfu Kol-
beins Sigþórssonar sem átti
sér stað árið 2017.
29. ágúst
Guðni segir af sér sem
formaður KSÍ. Það er svo
tilkynnt að tveir leikmenn
hafi verið fjarlægðir úr
landsliðs hópnum fyrir
næsta verkefni.
30. ágúst
Stjórn KSÍ segir af sér og
boðar til aukaþings. Óskað
er eftir því að nefnd á
vegum ÍSÍ framkvæmi
úttekt á viðbrögðum KSÍ í
málinu.
30. september
Aron Einar er ekki valinn í
landsliðshópinn. Landsliðs-
þjálfarinn neitar orðrómi
um að stjórn KSÍ hafi
meinað honum að velja
Aron. Aron segist ekki skilja
það öðruvísi en að hann sé
settur saklaus til hliðar en
staðfestir að hann sé sak-
aður um kynferðisbrot.
4. nóvember
Lagt er til að landsliðsfólk
skrifi undir samninga sem
taki mið af siðareglum af
hálfu starfshóps sem KSÍ
skipaði fyrr á árinu, til að
endurskoða vinnuferla.
7. desember
Niðurstöður skýrslu ÍSÍ
kynntar. Staðfest er að
KSÍ hafi haft vitneskju
um fjögur mál á ellefu ára
tímabili. Niðurstaða skýrsl-
unnar segir hins vegar að
framganga stjórnarinnar,
framkvæmdastjóra eða
annarra starfsmanna KSÍ í
málinu, beri almennt ekki
einkenni þöggunar eða
nauðgunarmenningar.
Samdægurs sendir Guðni
Bergsson, fráfarandi
formaður KSÍ, frá sér
yfirlýsingu í tilefni útgáfu
skýrslunnar. Þar biðst hann
ekki afsökunar en segir
að hann hefði getað gert
betur.
22 Íþróttir 18. desember 2021 LAUGARDAGURANNÁLL KSÍ FRÉTTABLAÐIÐ 18. desember 2021 LAUGARDAGUR