Fréttablaðið - 18.12.2021, Blaðsíða 34
Hún sá
alltaf eftir
að hafa
ekki
numið
myndlist.
Sæunn
Hún var
sjálfstæð
kona á
þessum
tíma sem
konur voru
í raun og
veru ekki
svo sjálf-
stæðar.
Katrín Lilja
Á jóladag verður fluttur á
Rás 1 fyrsti þáttur af fjórum
um Sonju de Zorilla en þær
Sæunn Gísladóttir og Katrín
Lilja Jónsdóttir vildu vita
meira um þessa merkilegu
konu sem lést stuttu eftir að
þær komu í heiminn.
Katrín Lilja heldur úti
Lestrarklefanum, vef-
síðu þar sem fjallað
er um bækur, og þar
er Sæunn Gísladóttir
reglulega með pistla. Það var Sæunn
sem las ævisögu Sonju sem kom út
árið 2002, skrásett af Reyni Trausta-
syni og skrifaði umfjöllun um hana
fyrir síðuna. Það varð til þess að
Katrín las bókina líka og voru þær
sammála um að ný kynslóð yrði að
fá tækifæri til að kynnast þessari
merku konu. Eins langaði þær að
vita meira um líf hennar og arfleifð.
Ekki síst hvað varð um margra millj-
arða sjóðinn sem hún skildi eftir sig
og lítið hefur heyrst af.
Þættirnir urðu alls fjórir og verða
f luttir dagana 25. til 28. desember
en Sæunn segir að auðveldlega hefði
mátt hafa þá fleiri.
Sonja ólst upp í Reykjavík til 15
ára aldurs þegar hún fór fyrst út
fyrir landsteinana, þá til sumar-
dvalar í Danmörku, til að jafna sig á
mænuveiki og þar með voru örlögin
ráðin en Sonja var friðlaus þegar
hún kom aftur heim.
„Hana langaði aftur út í heim og
fékk þá að fara í húsmæðraskóla í
Danmörku. Eftir það fær hún að fara
til frændfólks í Noregi og kemur svo
ekki heim í 35 ár.“
Leiðir Sonju lágu næst til Þýska-
lands, London og Parísar og þegar
seinni heimsstyrjöldin braust út
ætlaði hún aftur heim í gegnum
Bandaríkin en ílengdist þar og bjó
næstu áratugina í New York.
Sérfræðingur í samræðulist
Faðir Sonju, Ólafur Indriði Benja-
mínsson, var íslenskur en móðir
hennar, María Emilie Wendel, af
þýskum ættum.
„Faðir Sonju var ættaður frá
Hesteyri en móðir hennar var frá
Þingeyri þar sem pabbi hennar var
þýskur kaupmaður. Hún er því af
millistéttarættum en pabbi hennar
vann sig upp í tign hjá tengdaföður
sínum,“ útskýrir Sæunn og segir
Sonju því alda upp við betri kjör og
aðstæður en marga af hennar kyn-
slóð, hjá millistéttarkaupmanna-
fjölskyldunni.
„En auður hennar kemur ekki
þaðan, þó að þetta hafi gefið henni
tækifæri á að fara út í heim.“
Katrín bætir við að Sonja hafi
lifað af peningum foreldra sinna á
meðan hún dvaldi við nám í Dan-
mörku og Þýskalandi. „En þegar hún
kemur til Bretlands er ekkert hægt
að senda peninga á milli landa.“
„Hún er greinilega úrræðagóð
því hún fer að skrifa tískupistla frá
Heimsborgarinn Sonja de Zorilla
Katrínu Lilju og Sæunni lék forvitni á að vita meira um lífshlaup og arfleifð Sonju de Zorilla og ekki síst hvað varð um auð hennar. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
París fyrir Morgunblaðið,“ segir
Sæunn. „Í upphafi kemst hún þó
ekki inn á stærstu tískusýningarnar
enda þarf sambönd til þess. Hún
gefst þó ekki upp og dettur meðal
annars í hug að reyna fyrir sér
sem módel. En á endanum komst
hún á tískusýningar hjá stórum
nöfnum eins og Coco Chanel í gegn-
um vinskap og er bara að spjalla við
hana í partíum eftir sýningar. Þetta
þótti okkur merkilegt, þarna er
tvítug kona frá Íslandi, sem hefur
svo mikla trú á sjálfri sér að henni
tekst að koma sér inn. Enda flestir
viðmælendur okkar sammála um
að hún hafi verið algjör sjarmör og
sérfræðingur í samræðulist.“
Tískuheimurinn og Wall Street
Sæunn bendir á að þetta hafi ekki
aðeins gilt um einn stað heldur hafi
Sonja hreinlega alls staðar stillt sér
upp í innstu raðir.
„Þegar hún er 18 ára í Þýskalandi
kynnist hún broddborgaralífinu,
svo í London kemst hún strax inn
í kreðsuna hjá ríkum Rússum og í
París eru það aftur ríku Rússarnir
og bóhemarnir sem hún er mest
í kringum. Í New York er hún svo
fljót að koma sér inn á Wall Street
og kynnast listafjárfestum.“
Katrín er sammála, „Hún hafði
ótrúlegt lag á að koma sér inn alls
staðar og notaði líklega útlitið líka
til þess enda leit hún út eins og kvik-
myndastjarna,“ segir hún og bætir
við: „Hún lærði tískuteikningu og
ætlaði sér alltaf að starfa í tísku-
heiminum sem hún hafði brenn-
andi áhuga á.“
Það voru þó fjárfestingar á verð-
bréfamarkaðinum í New York sem
áttu eftir að gera Sonju vellauðuga.
„Það byrjaði á því að ríkur Rússi
býður henni í hádegisverð, en ríkir
Rússar voru miklir örlagavaldar í
hennar lífi. Í þessum hádegisverði
er John Loeb, frægur fjárfestir í New
York, og á milli þeirra myndast
vinasamband. Loeb kennir Sonju
að fjárfesta og ég hef litið svo á að
hún hafi viljað læra að fjárfesta til
að geta líka verið listakona,“ segir
Katrín. „Hún sá ekki fram á að geta
haldið uppi sama lífsstíl sem hungr-
aður listamaður, því ákvað hún að
taka þessar fjárfestingar alla leið og
þéna þannig peninga.“
Sæunn bætir við: „Pabbi hennar
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
var hennar stærsta fyrirmynd.
Hann átti að verða forstjóri Eim-
skipafélagsins 1929 en fékk slag og
varð sjúklingur sem henni fannst
erfitt að horfa upp á. Hún fékk
þannig góð ráð úti en var líka slung-
in viðskiptakona og tengdi þetta allt
við pabba sinn og hans áhrif.“
„Hún sá alltaf eftir að hafa ekki
numið myndlist,“ bætir Sæunn við.
„Samtíðarkona hennar og vin-
kona var Louisa Matthíasdóttir sem
bjó líka í New York svo Sonja var
alltaf með tengsl inn í listamanna-
heiminn.“
„Þær Sonja og Louisa kynntust
fyrst í Kaupmannahöfn og áttu því
langt vinasamband,“ segir Katrín og
bendir á að Sonja hafi málað tölu-
vert af portrettmyndum. „Þær voru
af börnum, eiginmanni hennar og
John Loeb en ég veit ekki hvar þessi
verk eru niðurkomin í dag.“
Afþakkaði bónorð Onassis
Sonja kvæntist Victoriano Alberto
Zorilla, argentískum Ólympíumeist-
ara í sundi, árið 1948. „Hún kynnt-
ist Alberto í gegnum vini en hún
stundaði alla helstu skemmtistaði
New York-borgar á þessum tíma og
kynntist þar meðal annars Aristotle
Onassis,“ segir Sæunn og bætir við
að Sonja hafi átt í ástarsambandi
við gríska skipakónginn um tíma
sem hafi endað á því að hann bað
hennar en hún afþakkaði.
„Hún taldi þau Aristotle ekki
efni í hjón. Enda var hún gríðarlega
upptekin af því að ráða sér og sínu
lífi sjálf og segir í bókinni að með
Alberto hafi hún ráðið ferðinni.“
„Það var svo árið 1946 að ástir
tókust skyndilega með Sonju og
Alberto, vini Aristotle, en um sam-
band þeirra Sonju og Alberto eru
ýmsar pælingar,“ segir Katrín.
„Þó að samband þeirra hafi verið
óhefðbundið í okkar skilningi ríkti
greinilega á milli þeirra mikil ást og
gagnkvæm virðing,“ segir Sæunn.
„En þau áttu þó hvort sína íbúðina
á Flórída þar sem þau vörðu sumar-
fríum.“
„Og í stórri íbúð þeirra í New York
áttu þau hvort sitt svefnherbergið,“
bætir Katrín við.
„Hann var mikið heima og stund-
aði æfingar enda gamall sundkappi
en hún var meira fyrir samkvæmis-
lífið,“ segir Sæunn spurð að hvernig
34 Helgin 18. desember 2021 LAUGARDAGURFréttablaðið