Fréttablaðið - 18.12.2021, Page 64
Jólapeysur eru ekki sérlega góðar
fyrir umhverfið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
oddurfreyr@frettabladid.is
Margir klæðast jólapeysum yfir
jólatímann, en þær eru ekki sérlega
góðar fyrir umhverfið því þær fá
yfirleitt mjög skamman líftíma og
valda plastmengun í þvotti.
Tískuiðnaðurinn veldur nær 10
prósentum af allri kolefnislosun
heims og um 20 prósent af meng-
uðu vatni koma þaðan. Mikið af
fatnaði er svo notað mjög lítið eða
ekkert áður en hann endar í land-
fyllingu. Nýleg rannsókn umhverf-
isverndarsamtakanna Hubbub
leiddi í ljós að jólapeysur voru með
verstu dæmunum um þessa sóun,
því tvær af hverjum fimm peysum
eru bara notaðar einu sinni áður en
þeim er hent. Samt eru þær keyptar
í milljónatali ár hvert.
Hubbub tók líka sýni úr 108
jólapeysum sem voru seldar í 11
ólíkum verslunum og 95 prósent
þeirra voru að hluta eða öllu leyti
úr plastefnum. Meirihlutinn var
úr akrýl, plasttrefjum sem eru
mikið notaðar í fjöldaframleidd og
ódýr föt. Rannsókn við Plymouth-
háskóla komst að þeirri niðurstöðu
að 730 þúsund örtrefjar komi úr
akrýlpeysu í hverjum þvotti, sem
er til dæmis fimm sinnum meira
en úr peysu úr blöndu af pólýester
og bómull. Þær verða því til þess að
mikið af plastmengun fer í sjóinn. n
Jólapeysur
menga mikið
Gómsætt kon-
fekt á aðvent-
unni gleður alla.
mYnd/mS
starri@frettabladid.is
Hér er einföld uppskrift að konfekti
sem gott er að eiga á aðventunni.
300 g súkkulaði
100 g rjómaostur frá Gott í matinn
100 g smjör
100 g hnetusmjör
150 g rúsínur (eða aðrir þurrkaðir
ávextir að eigin vali)
150 g döðlur
200 g hnetur að eigin vali
Saxið fyrst hneturnar og döðlurnar
og blandið saman við rúsínurnar.
Súkkulaðið er brætt og blandað
saman við rjómaostinn, smjörið og
hnetusmjörið.
Blandið öllu saman í skál og
setjið í konfektform og kælið.
Einnig má setja blönduna í form
með plastfilmu í botninum. Þegar
Konfekt með rjómaosti, hnetum og þurrkuðum ávöxtum
Elton John, Ed Sheeran og LadBaby
ætla að ná fyrsta sætinu á jólalaga-
vinsældalista Bretlands.
mYnd/SkjáSkoT
elin@frettabladid.is
Poppstjörnurnar Elton John og Ed
Sheeran hafa tekið höndum saman
með parinu og YouTube-stjörnun-
um í LadBaby um nýtt jólalag til að
freista þess að ná 1. sæti vinsælda-
listans í desember. LadBaby hefur
átt vinsælasta jólalagið síðustu ár
í Bretlandi og það er mikil keppni
um fyrsta sætið sem verður upp-
lýst um á jóladag. Keppnin um
vinsælasta jólalagið var auk þess
þráðurinn í kvikmyndinni Love
Actually.
Veðjað um sigurlagið
Svo mikill er slagurinn að veðbank-
ar hafa ekki undan að taka á móti
veðmálum um hver verður í fyrsta
sætinu. Nú eru það engir aðrir en
Elton og Ed sem ætla að bera sigur
úr býtum með fjörugu jólalagi í
gamansömum stíl. Lagið heitir
Saus age Rolls For Everyone og hægt
er að hlusta á það á YouTube.
Allur ágóði af laginu fer til góð-
gerðarmála. LadBaby leitaði til
stórstjarnanna til að afla enn meira
fjár. Enginn tónlistarmaður hefur
náð því að eiga jólasmell Bretlands
fjögur ár í röð en LadBaby gæti
orðið fyrst til þess núna. n
Syngja inn jólin
100 myndskreyttir
brandarar! Þessi bók
er happafengur
fyrir káta krakka sem
elska að hlægja. Og
nú í fyrsta skipti eru
allir brandararnir
myndskreyttir og í
lit! Þetta eru jafn stór
tíðindi og þegar
litasjónvarpið kom
fyrst til landsins!
Draugar, mörur, fylgjur,
mórar, skottur og
afturgöngur. Þessar
óvættir urðu ekki eftir í
fortíðinni heldur eru hér
enn og stundum stíga þær
út úr myrkrinu. Í þessari
bók má finna yfir 130
íslenskar draugasögur frá
nútímanum.
VARÚÐ. Lesist í
dagsbirtu!
Fimmta bókin í
þessum vinsæla
bókaflokki! Síðustu
tvö ár hafa bækurnar
verið tilnefndar af
íslenskum börnum
sem bestu þýddu
barnabækurnar.
Frábært grín sem
hvetur krakka áfram
við lesturinn.
Í þessari bók er að finna
fjölbreyttar spurningar
fyrir alla þá sem hafa
gaman af kvikmyndum
og sjónvarpsþáttum.
Hversu vel þekkirðu
frægustu leikarana?
Hvað veistu um Friends-
þættina eða Marvel-
myndirnar?
Jólagjöf sem gleður!
Léttlestrarbókin Prump.
Forvitni rekur börn áfram
og þau æfa lestur - því þau
langar til að vita meira.
Kjarnorkuprump!
KA-BÚMM! Stuttur
texti á hverri blaðsíðu
auðveldar börnum lestur
bókarinnar.
Þessi bók fjallar um
starf slökkviliðsmanna
og tækjakost þeirra.
Myndirnar lyftast upp
þegar blaðsíðunum er
flett. Bókin er listaverk
sem unun er að skoða
og fræðast á sama tíma.
Lesum og lærum!
HAHA
HAHA
Nýjar bækur í
BÓKAHILLUNA
10 kynningarblað A L LT 18. desember 2021 LAUGARDAGUR