Fréttablaðið - 18.12.2021, Blaðsíða 96
Því miður er það enn
fréttnæmt að svona
viðburðir séu skipu-
lagðir og samanstandi
eingöngu af kvenkyns
listamönnum.
Þetta er nánast eins og
að vera með dansara.
Söngkonan Hera Björk lofar
kósí stemningu á tuttugu ára
afmælistónleikum plötunnar
Ilmur af jólum, í Hallgríms-
kirkju á mánudaginn, þar
sem söngurinn verður tákn-
málstúlkaður með Hröðum
höndum.
svavamarin@frettabladid.is
Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona
fagnar því að tuttugu ár eru liðin
síðan jólaplatan Ilmur af jólum kom
út, með afmælistónleikum í Hall-
grímskirkju á mánudag.
„Platan kom út fyrir tuttugu
árum síðan og er búin að lifa rosa
vel síðan. Fólk segir mér að það spili
hana hver jól, sem er náttúrulega
besta gjöfin,“ segir Hera Björk.
Þegar Hera gaf út plötuna árið
2000 hafði hún nýlega sótt tákn-
málsnámskeið, þar sem hún vildi
geta tjáð sig við fjölskyldumeðlim.
„Ég var orðin ansi lunkin eftir
þessi sex námskeið,“ upplýsir Hera,
sem segist enn skilja táknmál nokk-
uð vel, en gerir grín að sjálfri sér og
segist þurfa nokkra vodkasjússa til
að rífa í sig smá kjark. „Svona eins og
með dönskuna,“ segir hún og hlær
dátt.
Andskotans tími til kominn
Eitt laganna á plötunni, Jólatími, var
túlkað og sungið í myndbandi sem
enn skýtur upp kollinum í kringum
jólin. „Það er í rauninni tengingin
mín við þennan döff-heim,“ segir
Hera.
Margrét Auður Jóhannesdóttir,
táknmálstúlkur og vinkona Heru
Bjarkar, hafði samband við hana
vegna afmælistónleikanna og lagði
til að Hraðar hendur yrðu fengnar
til að túlka þá á táknmál.
„Ég hugsaði, Jú! About bloody
time,“ segir Hera, sem hafði einmitt
lengi íhugað að láta af þessu verða.
„Það koma þrjár dásamlegar konur
frá Hröðum höndum sem ætla að
túlka tónleikana. Þetta er svo æðis-
legt og ég hlakka svo til.“
Hún segir textann dýpka við
túlkunina, þar sem innlifunin í
táknmálinu sé svo mikil. „Þetta er
nánast eins og að vera með dans-
ara.“ Hera bendir síðan á að túlk-
unin á söngnum liggi hjá hverjum
og einum, hvort sem fólk er sjáandi
og heyrandi eður ei. „Fólk nemur
textann eftir sínum skilningi, þetta
snýst um það.“
Kósí fjölskyldustund
Tónleikarnir eru einnig fjölskyldu-
stund fyrir Heru, en dóttir hennar
Þórdís Petra Ólafsdóttir, sem er í
söngnámi í Berlín, kemur fram með
móður sinni. Auk þess sem móðir
Heru, söngkonan Hjördís Geirs-
dóttir, lætur einnig til sín taka.
Stjörnupopparinn Páll Óskar
Hjálmtýsson mætir einnig til leiks
sem og ungtenórinn Ari Ólafsson
Júróvisjón-fari.
„Það er alveg æðislegt að nýta
fólkið sitt. Mamma verður með heitt
súkkulaði við innganginn ef reglur
leyfa, og vinir mínir og fjölskylda
verða sætavísur og rífa af miðum.“
Hera segir aðspurð að miklu
betur megi gera þegar táknmáls-
túlkun á menningarviðburðum er
annars vegar og kallar eftir meiru
af slíku. „Ég veit að Þjóðleikhúsið
hefur verið með eina og eina sýn-
ingu,“ segir Hera og nefnir einnig
Baggalút og einstaka kórtónleika. n
Hera Björk fangar ilminn af jólunum
Jólastemningin verður túlkuð á táknmáli á tónleikum Heru í Hallgrímskirkju
á mánudaginn og enn má nálgast miða á Tix.is. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Rauðvín frá Giljagaur
Katrín Kristjana
Hjartardóttir
stjórnarkona í
FKA
„Jólasveinninn
kom færandi
hendi enda
hlustar hann vel á
þreyttar mæður.
Stekkjastaur kom
með hljóðkút fyrir barnið og Gilja-
gaur bætti við rauðvínsflösku. Eina
sem vantar er góður maður, ætli
Bjúgnakrækir sé á lausu?“
Fékkstu eitthvað í skóinn?
n Lykilspurningin
Sveinarnir ghostuðu Geir
Geir Finnsson,
varaborgarfulltrúi
„Nei, jólasvein-
arnir ákváðu að
„ghosta“ mig
á ákveðnum
tímapunkti án
þess að útskýra
neitt!“ segir Geir,
um þá undarlegu
ákvörðun jólasveinanna að virða
hann og skóinn hans alveg að vett-
ugi og ganga jafnvel svo langt að
láta eins og hann sé ekki til. n
Giljagaur hitti í mark hjá Katrínu.
toti@frettabladid.is
Stelpurnar taka öll völd á Prikinu í
dag og kvöld þegar plötusnúðarnir
DJ Mellí og Vala Von Avalon, Mel-
korka Þorkels og Snjólaug Vala, leiða
uppákomu sem þær kalla Þokka
Galore.
„Þetta verður sem sagt viðburður
sem stendur allan daginn þar sem
það verða fimm DJ-sett og svo erum
við að vinna með listagalleríinu
Flæði sem er hérna á Vesturgötunni,
en þau verða með listamarkað á
öllum hæðum hússins,“ segir Mel-
korka Þorkelsdóttir, listakona og
plötusnúður, sem ætlar sjálf að keyra
stuðið í gang á Prikinu klukkan 16 í
dag.
„Því miður er það enn fréttnæmt
að svona viðburðir séu skipulagðir
og samanstandi eingöngu af kven-
kyns listamönnum,“ segir Melkorka
og hlær. „Þetta eru þá ég og Vala,
Karítas Óðins, sem er einmitt líka í
Reykjavíkurdætrum, Ása Kolla, sem
er algjört teknó-frík, og svo Unnur
Birna Bachman, leikkona og plötu-
snúður. Þannig að þetta er algjört
veislulænöpp,“ segir hún og hættir
á að sletta þótt hún telji víst að slíkt
sé ekki vel séð í Fréttablaðinu.
Heilmikil gaurasena
„Ég myndi segja, af því að ég hef nú
unnið sem plötusnúður hérna niðri
í bæ síðan 2016, að þessi bransi er
bara rosalega mikil gaurasena,“
segir Melkorka, þegar hún er spurð
hverju það megi sæta, árið 2021, að
það teljist enn til sérstakra tíðinda
að stelpu DJ-ar leggi undir sig sviðið.
„Þetta helst rosalega mikið í
hendur við tónlistarsenuna og gall-
inn er líka kannski að það er svona
ákveðið „attítjúd“. Maður þekkir
flottar gellur sem hefur alltaf langað
að prófa að DJ-a og segjast svo bara
hafa fengið glatað „attítjúd“ frá ein-
hverjum hljóðmanni, eða þú veist.
Ég hef nú sjálf lent í því að vera
að spila hipphopp á Prikinu og
bara verið spurð hver kenndi mér
að hlusta á svona tónlist. Skilurðu?
Þannig að það er alltaf einhvern
veginn svona óbeint verið að segja
manni, „you don’t belong“, að maður
eigi ekki samastað á senunni.
Taka sér pláss
Melkorka segist þekkja marga sem
hafi dáðst að þeim fyrir að nenna
að vera í þessum bransa. Ég bara hef
ekki nennuna til að díla við þetta
kjaftæði sem ég skil ógeðslega vel.
En það er náttúrlega glatað, þú veist,
að þetta sé svona fráhrindandi.
Þannig að ég og Vala vildum bara
búa til „space“ sem er samt ekkert
útilokandi,“ segir hún og bætir við
að þetta sé kannski ákveðin yfirlýs-
ing, eða ekki. Þetta séu bara konur
að skipuleggja skemmtun. „Svo vill
maður ekki heldur að þetta fái ein-
hvern stimpil um að þetta sé ein-
hver gellu-event. Þetta er bara list-
viðburður.“
Tröllinn sem varð jólabarn
Þegar Melkorka er spurð hvort
hægt sé að DJ-a jólalög, segir hún
ekkert mál að lauma jólalögum
saman við hipphopp-stemning-
una. „Ég er sko svona fyrrverandi
„grinch“ sem breyttist í jólabarn.
Ég byrjaði sjálf að „bömpa“ jóla-
lögunum í lok október. Líka bara
svona til að komast í gegnum
mögulegt skammdegisþunglyndi.
Bara svona forvörn.
Það er náttúrlega kannski ekki
verið að vinna mikið þar með
„house-“ og „teknó-sánd“ en ég
verð sjálf að hita upp fyrir Kar-
itas klukkan fjögur og þá er þetta
kannski lágstemmdara dæmi.
Þannig að þá ætla ég alveg að spila
jólaplötuna með Faith Evans og
meira R'n'B fönk jólaplötur. Það
er nú algjört „möst“ þegar það er
svona stutt í þetta.“ n
Reiðinnar býsn af þokka á Prikinu
Plötusnúðarnir á Prikinu
18.00 – 19.30: DJ Karítas
19.30 – 20.30: Animona
20.30 – 21.30 Ása ClubKid
21.30 – 23.00: Vala b2b Mellí
Melkorka og Snjólaug Vala ætla að ryðja sér til rúms á Prikinu í dag og fram að lokun í kvöld með Þokka Galore þar
sem þær DJ-a ásamt þremur öðrum stelpum á meðan hægt er að næla sér í listrænar jólagjafir. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
68 Lífið 18. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 18. desember 2021 LAUGARDAGUR