Strandapósturinn - 01.10.2007, Page 25
Á árunum 1711-1738 er Sr. Jón Pálsson prestur á Prestsbakka.
Af sumum talinn íyrsti prestur er sat staðinn. Þó stendur í Sjáv-
arborgarannál um árið 1647: „Vígðist séra Teitur Einarsson til
Hrútafjarðarþinga eftir séra Þórð Jónsson og reisti bú á Prests-
bakka,,. Síðan 1711 hefur Prestsbakki verið prestsetur, að frátekn-
um árunum 1904-1920 er þáverandi prestur Sr. Eiríkur Gíslason
sat á Stað í Staðarhreppi V-Hún og þjónaði Prestsbakkasókn það-
an. Þau ár og allt til 1927 bjó bróðir Sr. Eiríks, Kiistján Gíslason á
Prestsbakka. Síðast voru á Prestsbakka Sr. Ágúst Sigurðsson og
kona hans Guðrún Lára Ásgeirsdóttir frá 1990 til 2002. Sátu þau
staðinn af mikilli rausn og sóma, stórbættu útlit bæjarins og um-
hverfi allt. Var snyrtimennska þeirra og fáguð umgengni á staðn-
um rómuð og vakti mikla eftirtekt.
Það er álit margra heimamanna að þessi bær hafi í upphafi
heitið Bakki enda staðhættir þannig að hann stendur á allháum
sjávarbökkum, en nafnið síðan lengst í Prestsbakki eftir að þarna
verður kirkjustaður og prestsetur. Hvenær það gerist nákvæmlega
er ekki vitað. Um 1200 lætur Pálljónsson biskup í Skálholti (1155-
1211) taka saman skrá þar sem taldar eru upp kirkjur og kirkju-
staðir í biskupsumdæminu, hún byrjar á Langanesi við aust-
urmörk biskupsdæmanna og svo er haldið suður og vestfxr um,
þar er síðast getið um Bakka í Hrútafirði (ekki Prestsbakka) en
Skálholtsbiskupsdæmi endaði við Hrútafjarðará sem kunnugt er.
Þar tók Hólabiskupsdæmi við.
I þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar er að finna þjóðsöguna um
Bakkadrauginn. Þar er svo mælt að í fyrndinni hafi bærinn Bakki
staðið norðar með sjónum, nálægt hólum þeim er nefnast Hellis-
hólar en verið fluttur þangað sem hann er nú sökum reimleika.
Það styður einnig þessa tilgátu um nafngiftina að áin sem rennur
hjá túngarði á Prestsbakka er alltaf kölluð Bakkaá og dalurinn
sem hún rennur eftir er ævinlega nefndur Bakkadalur.
Svo virðist samkvæmtjarðarbók frá 1709 að Prestsbakki hafi átt
allan nyrðri árbakkann á móti Hrafnadal. Syðri árbakkinn er frá
sjó fyrst í landi Ljótunnarstaða svo Jónssels og fremst á Bær allan
austurhluta Bakkadals.
Hinn eiginlegi Bakkadalur byijar við Hrafnadal og liggur það-
an í suðurátt. Hann er afluktur af hæðum og ásum þannig að
23