Strandapósturinn - 01.10.2007, Page 26
hvergi sést í dalinn fyrr en að
er komið. Það gengur dálítið
fell sem nefnt er Hrafnadals-
borg út í dalsmynnið og lokar
dalnum nær alveg. Austan við
fellið rennur áin í þröngu gili
og þar fyrir neðan er allhár
foss nefndur Hrafnadalsfoss,
þangað gengur lax, og ef áin
er nógu vatnsmikil þá gengur
fiskur upp fyrir fossinn. Nokkru
norðan við fossinn beygir svo
áin í austur og kemur til sjávar
sunnan við túngarðinn á Prest-
bakka. Austan við fossinn í
landi Ljótunnarstaða í grasi
grónum slakka eru fornar rúst-
ir og tættur, þær nefnast Sel. I Jóhann Matthíasson til vinstri, og
gegnum slakkann rennur læk- Sigurður Lýðsson í Bakkaseli með
ur er nefnist Sellækur og fyrir verðlaunahrútinn Glanna frá
ofan er klettur sem í daglegu Bakkaseli á milli sín.
tali er kallaður Seltindur.
Sennilega hefur þetta verið sel frá Ljótunnarstöðum. Núna er
þarna veiðihús sem tilheyrir Bakkaá.
Vestur af Hrafnadalsborg gengur ás sem er lægri en sjálf borg-
in, þar stendur gamli Hrafnadalsbærinn nokkuð hátt og hlær við
sól. Vestur frá bænum hækkar landið, þar eru hæðir, næst er
Hrafnadalsfell svo tekur við Jafnafell, norður af því er Jafnavatn,
enn vestar og norðar er svo Merkisstapi en hann skiptir merkjum
milli jarðanna Hrafnadals, Stóru-Hvalsá og Kollsá.
Túnstæðið er hallandi mót suðri og allbratt sumsstaðar. í jarða-
bókÁ.M. og P.V. frá 1709 segir um Hrafnadal „I heimalandi sýnist
hafa verið gamalt býli, kallað Kotdalabær. Þar sést til tófta en ei
grant til girðinga. Veit enginn nær byggst eða eyðilagst hafi.“ Nú
þekkir enginn þetta forna bæjarstæði lengur. Frá Hrafnadal horf-
ir maður suður yfir Bakkadal þar sem Bakkaá liðast eftir eyrunum
fýrir sunnan borgina. Til vesturs er þröngur dalur út úr Bakkadal,
Síðustu bændumir í Bakkadal.
24