Strandapósturinn - 01.10.2007, Page 54
10. Haldið þér að eitthvað af góssinu svo sem ull og aðrar þurrar
vörur yrðu nú fluttar og geymdar í kring liggjandi bæjum að
betur forvarist [geymist] en í skipinu?
Svör: OV:Já, ef því verður við komið. JE: Eg hef ei komið á skipið
og get ei svarað því. SJ: Þar kann ég ekkert um að segja.
11. Haldið þér að góssið forvarist [geymist] ekki betur í skipinu?
Svör: OV: Það get ég ei uppá víst sagt. JE: Eg veit það ekki. SJ: Það
veit ég ei.
12. Ef bjóða ætti upp þá vöru sem í skipsskrokknum er, og skips-
skrokkinn sjálfan, haldið þér að menn geti vel framkvæmt þá
forrettningu á þeim stað sem skipið er nú?
Svör: OV: Plássið er slétt en það er undirkomið veðráttu hvort
menn geta framkvæmt forretninguna. JE: Það er langt síðan
ég kom þar en mig minnir að þar séu sléttar fjörur og grundir.
SJ: Þar er slétt á land upp hvar sagt er að skipið liggi, en grófar
koma þar fannir á vetrum þá illa fellur.
13. Er þar í landi hentugt pláss til að sortéra, deila og númera það
sem er í skipsskrokknum?
Svör: OV: Plássið er slétt. JE: Það er upplýst í næstundanförnu
andsvari svo vítt minnið tillætur. SJ: Eins og ég sagt hefi, og ei
betra.
14. Sýnist yður mögulegt að flytja á hestum stórt eða smátt frá
skipsskrokknum í geymslu til bæja?
Svör: OV: Það sýnist mér ófært. JE: Bágt flnnst mér það, nema að
Dröngum, þó ekki nema í snjólausri og klakalausri jörð. SJ:
Slæmur er vegur til þess. Kleifar eru vondar á leiðinni.
15. Teljið þér, að verði nú auction [uppboð] framkvæmt, að það
verði viðkomendum til skaða?
Svör: OV: Þar get ég ekkert umsagt. Spursmálið er mér of þungt.
JE: Þar get ég ekkert um borið. SJ: Já, ef illa vill til. Það getur
komið þar svo mikill snjór á einni nóttu að góssið muni liggja
allan veturinn.
16. Haldið þér að hafís komist inn þar sem skipið nú liggur?
Svör: OV: Eg er því ei vel kunnugur en kunnugir segja að ís komi
þar ei. JE: Þegar ég þekkti til kom þar ekki hafís svo langt inn
á fjörðinn. SJ: Hafís veit ég ekki til að komið hafi þar inn á vetr-
ardag því fjörðinn leggur strax með lagís.
52