Morgunblaðið - 03.08.2021, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 03.08.2021, Blaðsíða 13
Afganistan Uppflosnun fólks vegna stríðsátaka er alvarlegt vandamál. Bandaríkjamenn og Bretar sögðu í gær, að talibanar kunni að hafa framið „stríðsglæpi“ í Afganistan. Sökuðu þeir uppreisnarmenn um „fjöldamorð“ á íbúum borgarinnar Spin Boldak við landamærin að Pakistan sem féll nýlega í hendur talibönum. „Í Spin Boldak í Kandahar stóðu talibanar að fjöldamorði á óbreytt- um borgurum í hefndarskyni. Þessi morð gætu flokkast sem stríðs- glæpir,“ sagði m.a. í sameiginlegri yfirlýsingu sendiráða Bandaríkj- anna og Bretlands í Kabúl. AFGANISTAN Talibanar sakaðir um stríðsglæpi FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 2021 Vegna fjölda eftirspurna höfum við framlengt tilboðið! Kynntu þér meira á www.sleepy.is Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Pólverjar veittu hvítrússnesku frjálsíþróttakonunni Krystsinu Tsimanouskayu hæli af mannúðar- ástæðum eins og hún hafði leitast eftir en fleiri ríki buðust til að skjóta yfir hana skjólshúsi eftir að hún lenti í útistöðum við fararstjóra sína á Ól- ympíuleikunum í Tókýo sem hún sagði hafa reynt að koma henni úr landi í Japan. Tsimanouskaya „er komin í beint samband við pólska stjórnarerind- reka í Tókýó. Hún hefur fengið vega- bréfsáritun af mannúðarástæðum. Pólland mun gera allt sem nauðsyn- legt er talið til að hún geti áfram stundað íþrótt sína,“ sagði varautan- ríkisráðherra Póllands, Marcin Przydacz. Bað Japani um hjálp Tékknesk stjórnvöld blönduðu sér í málefni Tsimanouskayu og buðu henni sömuleiðis hæli en hún sóttist sjálf eftir að komast til Póllands. Hún gisti á flugvallarhóteli í Tókýó síðastliðna nótt eftir að hafa beðið japanska embættismenn um hjálp til að komast hjá því að verða neydd um borð í flugvél á leið heim til Hvíta- Rússlands. Hin 24 ára Krystsina Tsimano- uskaya átti að vera á ólympíuleik- vanginum í gær og keppa í 200 metra hlaupi en varð í staðinn miðpunktur átakamikilla diplómatískra þrátta um framtíð hennar. Tékkneski utanríkisráðherrann, Jakub Kulhanek, sagði Tékkland reiðubúið að bjóða henni hæli. „Jap- anskir embættismenn voru að stað- festa við okkur að hvítrússneska íþróttakonan Krystsina Tsimano- uskaya hafi þegið boð okkar um hæli. Taki hún því munum við liðsinna henni eins og frekast er unnt. Ól- ympíuleikarnir snúast ekki um stjórnmál og aðgerðir stjórnar Alex- anders Lukashenko eru virkilega svívirðilegar,“ sagði Kulhanek. Áður sögðu óháð hvítrússnesk samtök, sem styðja andóf íþrótta- manna, að Tsimanouskaya væri að reyna komast til Póllands. „Krystsina Tsimanouskaya hefur lagt fram skjöl til að fá pólitískt hæli í Póllandi,“ sagð Alexandr Opeikin, leiðtogi samtakanna BSSF, við AFP. „Það er allt í lagi hjá henni, hún stendur sig vel. Aðstæður af þessu tagi eru mikið álag, ekki bara á íþróttamenn heldur alla sem verða fyrir barðinu á því.“ Japanskir embættismenn og fulltrúar Alþjóða ólympíunefndar- innar (CIO) sögðu að íþróttamaður- inn væri í öruggu skjóli og ætti í samskiptum við yfirvöld. „Hún sannfærði okkur um að hún teldi sig hólpna og örugga. Hún varði nóttinni í öryggi á flugvallarhóteli,“ sagði Mark Adams, talsmaður CIO, við blaðamenn í Tókýó í gær. Hann sagði að nefndin myndi ræða við hana aftur í gær til að setja sig inn í mál hennar. „Við viljum vita hvað hún vill aðhafast og munum styðja hana í því.“ Bætti Adams því við að Flóttamannaráð Sameinuðu þjóð- anna (UNHCR) hefði aðkomu að máli Tsimanouskayu. Hún hefur haldið því fram að for- svarsmenn ólympíuhóps Hvíta- Rússlands hafi reynt að senda hana heim eftir að hún gagnrýndi Frjáls- íþróttasamband Hvíta-Rússlands fyrir að skrá hana til keppni í boð- hlaupi í Tókýó án þess að hafa gert henni viðvart um það. „Í ljós kemur að okkar miklu yfirmenn ákveða hlutina alltaf fyrir okkur,“ sagði Tsimanouskaya á samfélagsvefnum Instagram en færsla sú var síðan tekin út. Í seinni færslu sagðist hún aldrei myndu hafa brugðist svo hart við hefði henni verið tilkynnt um málið fyrirfram, það verið útskýrt og hún spurð hvort hún gæti hlaupið 400 metrana. „Þeir kusu að gera allt á bak við mig,“ bætti hún við. Talsmenn BSSF sögðu fyrirsvars- menn hvítrússneska liðsins hafa reynt að vísa Tsimanouskayu úr landi. Í öðru myndbandi ákallaði Tsimanouskaya CIO og bað nefnd- ina að skerast í leikinn. „Það er legið í mér og þeir eru að reyna koma mér úr landi gegn vilja mínum,“ sagði hún. Hvítrússneska ríkissjónvarpið gagnrýndi Tsimanouskayu og sagði framkomu hennar í Tókýó „stór- hneyksli“. Adams sagði að CIO hefði krafið ólympíunefnd Hvíta-Rússlands um tæmandi skriflega skýrslu um málið. Hefur CIO í nokkrum atriðum geng- ið gegn hvítrússnesku nefndinni undanfarna mánuði. Kreppa í Hvíta-Rússlandi Kosning Lukashenko til sjötta kjörtímabils á forsetastóli í ágúst í fyrra hefur kallað alvarlegustu kreppu yfir landið í manna minnum. Kjörinu var mótmælt á götum úti vikum og mánuðum saman en Lu- kashenko svaraði andstæðingum sínum með harkalegum aðgerðum. Í desember bannaði CIO Luka- shenko og son hans frá ólympískum viðburðum vegna aðgerða gegn íþróttamönnum eftir pólitískum skoðunum. Í mars neitaði CIO að viðurkenna formennsku Viktors Lu- kashenko í ólympíunefndinni, emb- ætti sem faðir hans hafði haldið frá 1967. Hann var bannaður frá leik- unum í Tókýó. AFP Hvít-Rússi Tsimanouskaya komin í skjól í sendiráði Póllands í Tókýó. Hvítrússneskum hlaup- ara boðið hæli í Póllandi - Hugðust bola Tsimanovskayu um borð í flugvél er flytti hana til Hvíta-Rússlands Að minnsta kosti átta manns hafa far- ist í gróðureldum í suðurhluta Tyrk- lands. Hafa þeir lagt baðstrandabæi í rúst og hrakið ferðamenn flótta. Eldarnir höfðu logað í sex daga í gær og lítið útlit fyrir að þeim væri að linna. Yfirvöld sögðu að tekist hefði að hemja 130 elda á þessum tíma en mik- ið álag hefur verið á slökkvisveitum. Víðar loga gróðureldar en í Tyrk- landi því í gær börðust hermenn við að bæla gróðurelda í hluta Grikk- lands, á Spáni og Ítalíu. Á Ítalíu var við 1.500 eldblossa að etja á sunnu- deginum einum. Í borginni Pescara slösuðust að minnsta kosti fimm manns sem voru í hópi fólks er neyddist til að flýja bað- strandabyggð og heimili sín. Þurfti að flytja mörg hundruð manns á brott. Í Grikklandi urðu íbúar fimm þorpa á Pelopsskaga að yfirgefa heimili sín og flýja elda. Gríska veðurstofan seg- ir að búast megi við allt að 45°C loft- hita þar í landi í vikunni. Hvassviðri og hitabylgja sem hækkar úr öllu valdi yfir Suður-Evr- ópu hafa kynnt undir eyðileggingar- bálum. Sérfræðingar segja að lofts- lagsbreytingar auki bæði tíðni slíkra elda og ákefð. Verst er ástandið í Tyrklandi með- fram ströndum Miðjarðarhafs og Eyjahafs en þar er mikið um ferða- þjónustu. Þaðan flúði fólk á bátum og tóku varðskip tyrknesku strandgæsl- unnar þátt í að flytja gesti á brott. Á gervihnattarmyndum má sjá að um 100.000 hektarar skóglendis hafa orðið bálinu að bráð í Tyrklandi síð- ustu sjö dagana. Í gær glímdu sveitir slökkviliðsmanna af landi og úr lofti við elda við borgirnar Marmaris og Koycegiz. ESB bauðst í fyrradag til að senda flugvélar sérbúnar til slökkvistarfs. agas@mbl.is Eldar ógna bað- strandabyggð - Skógareldar víða illviðráðanlegir AFP Eldar Hörfað undan eldum í Mugla við Marmaris í Tyrklandi í gær. Hundrað ára fv. fangavörður í Sachsenhausen, útrýmingarbúðum nasista í Oranienburg norður af Berlín, er nógu heilsuhraustur til að mæta fyrir rétt í október, að sögn saksóknara. Hann er ákærður fyrir að hafa „vitandi og viljandi“ aðstoðað við morð á föngum í búðunum milli 1942 og 1945. Sérstaklega er um að ræða aðstoð hans við aftökusveitir við morð á sovéskum stríðsföngum 1942. Lögmaður fjölda fórnar- lamba fangavarðarins segir í blaðinu Welt am Sonntag að margir þeirra séu á svipuðu reki og vörð- urinn og ætlist til að hann gjaldi fyrir gjörðir sínar. agas@mbl.is ÞÝSKALAND AFP Sachsenhausen Hliðið að búðunum. 100 ára fyrir rétt vegna fjöldamorða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.