Morgunblaðið - 03.08.2021, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 2021
Pepsi Max-deild karla
Breiðablik – Víkingur R........................... 4:0
Staðan:
Valur 14 9 3 2 25:13 30
Víkingur R. 15 8 5 2 22:16 29
Breiðablik 14 8 2 4 33:18 26
KR 14 7 4 3 24:14 25
KA 13 7 2 4 19:9 23
FH 13 5 3 5 18:17 18
Leiknir R. 14 5 2 7 15:19 17
Keflavík 13 5 1 7 17:22 16
Fylkir 14 3 5 6 17:25 14
Stjarnan 14 3 4 7 14:23 13
HK 14 2 4 8 14:26 10
ÍA 14 2 3 9 13:29 9
Lengjudeild karla
ÍBV – Afturelding .................................... 2:0
Staðan:
Fram 13 11 2 0 36:10 35
ÍBV 14 9 2 3 27:13 29
Fjölnir 14 7 2 5 19:16 23
Kórdrengir 12 6 4 2 19:14 22
Vestri 14 7 1 6 23:27 22
Grindavík 14 5 5 4 26:28 20
Þór 14 5 4 5 29:24 19
Grótta 14 5 2 7 28:28 17
Afturelding 13 4 4 5 27:26 16
Selfoss 14 3 3 8 21:32 12
Þróttur R. 14 3 1 10 25:33 10
Víkingur Ó. 12 0 2 10 15:44 2
Þýskaland
B-deild:
Holstein Kiel – Schalke........................... 0:3
- Hólmbert Aron Friðjónsson var ekki í
leikmannahópi Holstein Kiel.
- Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik-
inn með Schalke og var fyrirliði.
C-deild:
Dortmund II – Mannheim....................... 1:1
- Kolbeinn Birgir Finnsson lék allan leik-
inn með Dortmund.
Rússland
CSKA Moskva – Lokomotiv Moskva ..... 1:2
- Hörður Björgvin Magnússon hjá CSKA
er frá keppni vegna meiðsla.
Belgía
Royal Union St. Gilloise – Club Brugge 0:1
- Aron Sigurðarson var ekki í leikmanna-
hópi Royal St. Gilloise.
Rúmenía
CFR Cluj – Chindia Targoviste ............. 1:0
- Rúnar Már Sigurjónsson var ekki í leik-
mannahópi Cluj.
Danmörk
Viborg – Midtjylland............................... 0:2
- Elías Rafn Ólafsson var allan tímann á
bekknum hjá Midtjylland og Mikael And-
erson er frá keppni þar sem hann smitaðist
af kórónuveirunni.
AGF – Randers......................................... 1:2
- Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 72
mínúturnar með AGF.
OB – Köbenhavn ...................................... 0:2
- Aron Elís Þrándarson var ekki í leik-
mannahópi OB.
- Hákon Arnar Haraldsson var ekki í leik-
mannahópi Köbenhavn.
Silkeborg – AaB....................................... 0:0
- Stefán Teitur Þórðarson lék seinni hálf-
leikinn með Silkeborg.
SönderjyskE – Nordsjælland ................. 0:2
- Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á
sem varamaður á 66. mínútu hjá Sönder-
jyskE.
B-deild:
Esbjerg – Helsingör ................................ 1:3
- Ísak Óli Ólafsson lék allan leikinn með
Esbjerg en Andri Rúnar Bjarnason var
ekki í leikmannahópnum.
Fremad Amager – Horsens.................... 1:4
- Ágúst Eðvald Hlynsson kom inn á sem
varamaður á 61. mínútu hjá Horsens.
Lettland
Riga – Daugavpils ........................... Frestað
- Axel ÓskarAndrésson leikur með Riga.
Hvíta-Rússland
Gomel – BATE Borisov........................... 2:2
- Willum Þór Willumsson var ekki í leik-
mannahópi BATE Borisov.
Bandaríkin
North Carolina – Orlando Pride ........... 1:1
- Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan
leikinn með Orlando.
Houston Dash – Gotham......................... 1:1
- Andrea Rán Hauksdóttir kom inn á sem
varamaður á 81. mínútu hjá Houston.
New York RB – New England ............... 2:3
- Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 74
mínúturnar með New England.
New York City – Columbus Crew ......... 4:1
- Guðmundur Þórarinsson lék fyrstu 64
mínúturnar með New York.
Inter Miami – CF Montréal..................... 2:1
- Róbert Orri Þorkelsson var allan tímann
á bekknum hjá Montréal.
Ólympíuleikarnir
Karlar, 8-liða úrslit:
Spánn – Fílabeinsströndin .................frl. 5:2
Japan – Nýja-Sjáland...................... 0:0 (4:2)
Brasilía – Egyptaland .............................. 1:0
Suður-Kórea – Mexíkó............................. 3:6
Konur, undanúrslit:
Bandaríkin – Kanada ............................... 0:1
Ástralía – Svíþjóð ..................................... 0:1
4.$--3795.$
Harry Kane, markaskorarinn mikli
í herbúðum enska knattspyrnu-
félagsins Tottenham Hotspur og
landsliðsfyrirliði Englands, mætti
ekki á æfingu hjá Tottenham í gær-
morgun eins og gert hafði verið ráð
fyrir. Kane var búinn að vera í fríi
eftir að hafa leitt enska landsliðið
til silfurverðlauna á Evrópumótinu
í sumar og átti að mæta á sína
fyrstu æfingu á undirbúnings-
tímabilinu í gær.
Framherjinn vill yfirgefa Totten-
ham og hefur verið orðaður við
Manchester City.
Landsliðsfyrir-
liðinn skrópaði
AFP
Bless Harry Kane vill kveðja
Tottenham og róa á önnur mið.
Knattspyrnudeild KA hefur gengið
frá samningi við danska varnar-
manninn Mark Gundelach. Leik-
maðurinn lék síðast með HB Køge í
B-deild heimalandsins. Gundelach,
sem er 29 ára gamall bakvörður,
þótti efnilegur á sínum tíma og lék
með öllum yngri landsliðum Dan-
merkur. Hann hefur leikið með
Nordsjælland, SønderjyskE og
Roskilde, ásamt Køge. Hann lék
með Nordsjælland í Meistaradeild
Evrópu. Akureyrarliðið er í fimmta
sæti Pepsi Max-deildarinnar með
23 stig.
Ljósmynd/Haukur Gunnarsson
Akureyri KA-menn hafa samið við
varnarmann frá Danmörku.
Danskur varn-
armaður í KA
BREIÐABLIK – VÍKINGUR 4:0
1:0 Jason Daði Svanþórsson 34.
2:0 Jason Daði Svanþórsson 38.
3:0 Viktor Örn Margeirsson 48.
4:0 Gísli Eyjólfsson 55.
MM
Jason Daði Svanþórsson (Breiðabliki)
M
Damir Muminovic (Breiðabliki)
Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki)
Gísli Eyjólfsson (Breiðabliki)
Kristinn Steindórsson (Breiðabliki)
Viktor Örn Margeirsson (Breiðabliki)
Andri Rafn Yeoman (Breiðabliki)
Kwame Quee (Víkingi)
Dómari: Erlendur Eiríksson – 7.
Áhorfendur: 648.
FÓTBOLTINN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Breiðabliki líður hvergi betur en
heima hjá sér. Kópavogsliðið sýndi
það enn og aftur er liðið valtaði yfir
Víking úr Reykjavík á heimavelli í
Pepsi Max-deild karla í fótbolta í
gærkvöldi, 4:0. Breiðablik hefur nú
unnið fimm af sjö heimaleikjum sín-
um með sömu markatölu. Breiðablik
hefur alls unnið sex af sjö leikjum í
deildinni á Kópavogsvelli og þar af
síðustu sex.
Markatalan er ekki af verri end-
anum; 22:2. Aðeins KR og Valur
hafa skorað fleiri mörk, heima og
heiman, í sumar en Breiðablik hefur
gert á heimavelli.
Víkingur byrjaði ágætlega í Kópa-
voginum og skapaði sér fín færi í
upphafi leiks. Það var því eins og
blaut tuska í andlit gestanna þegar
Jason Daði Svanþórsson skoraði tvö
mörk á fjögurra mínútna kafla eftir
rúmlega hálftíma leik. Víkingur náði
sér ekki á strik eftir það.
Miðað við leikinn í gær er það
ótrúleg tilhugsun að Víkingur sé enn
með þremur stigum meira en
Breiðablik og í öðru sæti, einu stigi á
eftir toppliði Vals. Blikar eiga að
vísu leik til góða. Ljóst er að Evr-
ópuævintýri Breiðabliks er að gefa
liðinu byr undir báða vængi.
„Víkingar fengu óþægilegan skell
í kvöld, sem gæti reynst dýrkeyptur
í toppbaráttunni. Enginn ætti hins
vegar að afskrifa Blika úr meist-
arabaráttunni, sér í lagi ef þeir halda
áfram að spila eins og þeir gerðu
megnið af leiknum,“ skrifaði Stefán
Gunnar Sveinsson m.a. um leikinn á
mbl.is.
_ Jason Daði Svanþórsson er
kominn með sex mörk í tólf leikjum í
deildinni í sumar og er markahæstur
í Breiðabliksliðinu.
_ Viktor Örn Margeirsson skor-
aði sitt þriðja mark í deildinni í sum-
ar. Hann hefur aldrei skorað eins
mikið á einu tímabili.
Breiðablik
óstöðvandi í
Kópavogi
Ljósmynd/Kristinn Steinn
Mark Jason Daði Svanþórsson fagnar öðru marki sínu í gærkvöldi.
- Sjötti heimasigurinn í röð - Fóru
illa með Víking í toppbaráttuslag
ÍBV styrkti stöðu sína í öðru sæti
Lengjudeildar karla í fótbolta með
2:0-heimasigri á Aftureldingu á
laugardaginn var.
Erfitt verkefni varð enn erfiðara
fyrir Aftureldingu á 8. mínútu þeg-
ar Oskar Wasilewski fékk beint
rautt spjald. ÍBV nýtti sér liðsmun-
inn því Breki Ómarsson skoraði
fyrsta mark leiksins á 23. mínútu.
Ellefu Eyjamönnum gekk illa að
ganga frá Aftureldingu og hefðu
Mosfellingar með smá heppni getað
jafnað metin. Allt kom þó fyrir ekki
og Seku Conneh gulltryggði sigur
ÍBV með marki í uppbótartíma.
ÍBV er í öðru sæti með 29 stig, sex
stigum á eftir Fram og sex stigum á
undan Fjölni. Afturelding er í ní-
unda sæti með 16 stig.
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Fögnuður Eyjamenn fagna marki vel og innilega á Hásteinsvelli.
ÍBV í góðum málum
Takist karlaliði Breiðabliks í fót-
bolta að slá skoska liðið Aberdeen
úr leik í Sambandsdeild Evrópu bíð-
ur leikur við annaðhvort AEL Li-
massol frá Kýpur eða Qarabag frá
Aserbaídsjan í umspilseinvígi um
sæti í riðlakeppninni. Breiðablik
mætir Aberdeen á heimavelli næst-
komandi fimmtudag og ytra viku
síðar.
Nokkur Íslendingalið voru svo
einnig í pottinum.
Sigurvegararnir úr viðureign
Bodø/Glimt, sem Alfons Sampsted
leikur með, og Prishtina frá Kósóvó
mæta sigurvegurunum úr viður-
eign Mura frá Slóveníu og Zalgiris
Vilníus frá Litháen. Alfons og fé-
lagar höfðu betur gegn Íslands-
meisturum Vals í síðustu umferð.
Sigurvegararnir úr viðureign
Hammarby, sem Jón Guðni Fjólu-
son leikur með, og Cukaricki frá
Serbíu mæta sigurvegurunum úr
viðureign Újpest frá Ungverjalandi
og Basel frá Sviss.
Sigurvegararnir úr viðureign
Rosenborg, sem Hólmar Örn Eyj-
ólfsson leikur með, og Domzale frá
Slóveníu mæta franska liðinu Ren-
nes, svo fátt eitt sé nefnt. Nánar má
lesa um dráttinn í Sambandsdeild-
inni, sem og Evrópudeildinni og
Meistaradeildinni á mbl.is/sport.
Breiðablik til Kýpur
eða Aserbaídsjan
Morgunblaðið/Unnur Karen
Kópavogur Leikmenn Breiðabliks
fagna marki gegn Austria Wien.