Morgunblaðið - 03.08.2021, Side 32

Morgunblaðið - 03.08.2021, Side 32
Tónlistarkonan Bríet hefur notið mikillar hylli meðal landsmnanna og senn er von á nýrri plötu. Af því tilefni blæs Bríet til útgáfutónleika eins og kemur fram í tilkynn- ingu frá henni: „Ég er með rosalegar fréttir, ég ætla að halda útgáfutónleika í Eld- borg í Hörpu 11. september næstkomandi. Ég er svo spennt að ég gæti fallið í yf- irlið! Markmiðið er að toga út gleði og sorg og ást og hamingju, glimmer, blöðrur og teygja allan tilfinningaskalann. Ég fæ yndislega meðspilara með mér upp á svið og krassasig mun sjá um listræna stjórnun. Meðspilarar eru Rubin Pollock, Þorleifur Gaukur, Magnús Jóhann, Magnús Trygvason og leynigestir!“ Bríet heldur útgáfutónleika í Eldborgarsalnum í september ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 215. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Breiðablik fór upp fyrir KR og upp í þriðja sæti Pepsi Max-deildar karla í fótbolta með sannfærandi 4:0-sigri á Víkingi á heimavelli í gærkvöldi. Jason Daði Svan- þórsson skoraði tvö mörk fyrir Breiðablik og þeir Gísli Eyjólfsson og Viktor Örn Margeirsson komust einnig á blað. Þrátt fyrir sigurinn er Víkingur enn með þremur stigum meira en Breiðablik og í öðru sæti, en Kópa- vogsliðið á leik til góða. Breiðablik hefur raðað inn mörkum á heimavelli í sumar og var um fimmta 4:0- heimasigur liðsins að ræða. »26 Blikar skoruðu fjögur gegn Víkingi ÍÞRÓTTIR MENNING Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Þetta er sannarlega mikill dagur. Ég hef ekki undan neinu að kvarta,“ sagði Jakobína Valdimarsdóttir á Sauðárkróki, alltaf kölluð Bína, sem fagnaði í gær 100 ára afmæli sínu. Er hún elsti núlifandi Skagfirðing- urinn og samkvæmt vefnum Lang- lífi er hún 25. elsti Skagfirðingurinn. Samkomutakmarkanir í kórónu- veirufaraldri höfðu mikil áhrif á tímamótin í gær því öllu veislu- standi með fjölskyldunni var slegið á frest til betri tíma. Það er sannar- lega ástæða til að fagna aldar- afmæli, ekki síst þar sem Bína er við ágæta heilsu en hún býr enn á heimili sínu við Skagfirðingabraut á Sauðárkróki. Heyrnin er þó farin að daprast og baðst hún undan löngu viðtali, gaf blaðamanni þó leyfi til að birta fregn um tímamótin. Hátt í 70 afkomendur Bína fæddist á Sauðárkróki 2. ágúst 1921, og ólst þar upp, næst- yngst níu systkina. Foreldrar henn- ar voru Valdimar Jónsson og Guð- rún Ólafía Frímannsdóttir. Bína var eins árs þegar móðir hennar lést úr berklum og fósturforeldrarnir voru Þorsteinn Maríus Pálsson og Jak- obína Petrea Jóhannsdóttir. Bína giftist Valgarði Einari Björnssyni bifreiðarstjóra en hann lést árið 2000, á 82. aldursári. Sam- an eignuðust þau fimm börn, fjögur þeirra komust á legg, en næstelsta barnið þeirra, Birna Ingibjörg, lést þriggja ára vegna hjartagalla. Eft- irlifandi synir Bínu eru Valgarð og Sverrir. Elsti sonurinn, Kári, lést árið 2012, sjötugur að aldri, og María lést í fyrra, 68 ára. Ömmu- börn Bínu eru 16, langömmubörnin 38 og langalangömmubörnin orðin átta, alls 67 afkomendur. Fram kom í viðtali við Bínu í Feyki, þegar hún varð 99 ára, að hún sæi ekki mikinn mun á unga fólkinu í dag og þegar hún var ung. Í dag tíðkast þó ekki að konur séu- heimavinnandi og karlarnir að framfleyta fjölskyldunni, en þannig hefði það verið í hennar tilfelli. Bína vann aldrei utan heimilisins eftir að hún gifti sig og eignaðist börn. Fram að því hafði hún verið í síld á sumrin. Haft var eftir Bínu að henni fyndist fólk verða langlífara í dag en áður. Fleiri næðu því að verða 100 ára en áður. Þegar hún hefði verið ung hefði fólk um sjötugt verið eld- gamalt í hennar huga, í dag væru sjötugir taldir á besta aldri. Í viðtalinu við Feyki í fyrra vildi hún þakka móður sinni, Jakobínu Petreu, langlífið. Hún hefði verið dugleg að gefa henni lýsi, eða tvær matskeiðar á hverjum degi þar til Bína varð 12 ára. „Þá sagði Bína stopp og lét nægja að taka eina mat- skeið upp frá því. Bína minnist þess- ara stunda með hryllingi því lýsið hafi verið volgt þar sem það var geymt á borði bak við hurð,“ sagði m.a. í Feyki. Ljósmynd/Ólöf Ösp Sverrisdóttir Aldarafmæli Jakobína Valdimarsdóttir á heimili sínu á Sauðárkróki. „Ég hef ekki undan neinu að kvarta“ - Elsti núlifandi Skagfirðingurinn varð 100 ára í gær

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.