Morgunblaðið - 31.08.2021, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3 1. Á G Ú S T 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 203. tölublað . 109. árgangur .
ÁVARP
UNDAN
SÆNGINNI ÞRÍR EFSTIR OG JAFNIR
SYNTU YFIR
EINS OG AFREKS-
KÝRIN SÆUNN
REYKJAVÍKURSKÁKMÓTIÐ 11 ÖNUNDARFJÖRÐUR 2TÓMAS OG RAGNHILDUR 28
Sitjandi stjórn Knattspyrnu-
sambands Íslands, KSÍ, hefur
ákveðið að segja af sér. Kom þetta
fram í fréttatilkynningu sem sam-
bandið sendi frá sér í gær. Guðni
Bergsson, fyrrverandi formaður
sambandsins, sagði af sér í fyrradag
í kjölfar þess að þolandi í ofbeldis-
máli steig fram og lýsti því að leik-
maður karlalandsliðsins hefði beitt
hana ofbeldi á skemmtistað árið
2017.
KSÍ hefur verið sakað um þöggun
og meðvirkni með gerendum innan
sambandsins en síðustu daga hefur
komið fram hávært ákall um gagn-
gerar breytingar á stjórn KSÍ.
„Stjórn, varafulltrúar og lands-
hlutafulltrúar hafa ákveðið að segja
af sér og munu skila umboði sínu
eigi síðar en þegar til aukaþingsins
kemur,“ segir meðal annars í frétta-
tilkynningunni en boðað verður til
aukaþings í samræmi við 13. grein
laga KSÍ, með fjögurra vikna fyrir-
vara, þar sem ný stjórn verður kjör-
in.
Styrktaraðilar sambandsins hafa
lýst áhyggjum af stöðu mála og ósk-
að eftir fundi með stjórn.
„Síðustu dagar hafa verið gríð-
arlega erfiðir og líklega þeir erf-
iðustu sem ég hef upplifað í 27 ára
starfi,“ segir Klara Bjartmarz, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, meðal annars í
samtali við Morgunblaðið. »6 & 27
Stjórn knattspyrnusambandsins segir af sér
- Klara Bjartmarz segir síðustu daga þá erfiðustu í 27 ára
starfi - Styrktaraðilar lýsa áhyggjum af stöðu mála
Morgunblaðið/Eggert
Fundur Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, í höfuðstöðvunum í gær.
Flaggað var í gær í hálfa stöng við sendiráð Banda-
ríkjanna á Engjateig. Var það gert til að minnast
þeirra þrettán bandarísku hermanna sem nýverið
féllu í sjálfsvígsárás við alþjóðaflugvöllinn í Kabúl,
höfuðborg Afganistans. Hinir látnu, ellefu karl-
menn og tvær konur, voru á aldrinum 20-31 árs.
Tveggja áratuga langri hernaðaríhlutun Banda-
ríkjanna í Afganistan lauk í gær. »13
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Minnast þeirra
þrettán sem
féllu í Kabúl
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Þegar rýnt er í fylgi flokka, sem hyggjast
bjóða fram í öllum kjördæmum í komandi
alþingiskosningum, blasir við að meiri
munur er að verða á kjördæmunum en
verið hefur. Sem
fyrr er munurinn
á höfuðborgar-
svæðinu og
landsbyggðinni
greinilegastur,
en auðvelt er að
koma auga ýmsa
strauma aðra.
Ekki er að sjá að
fjölgun framboða
hafi orðið til þess
að slétta yfir slík-
an mun með því
að gefa kjós-
endum fleiri
kosti í kjörklefanum.
Í Morgunblaðinu í dag er að finna yfirlit
yfir fylgi flokkanna í einstökum kjör-
dæmum, ásamt þingmannaútreikningi.
Þar er byggt á tölum úr þremur síðustu
skoðanakönnunum, sem MMR gerði í sam-
starfi við Morgunblaðið og mbl.is.
Meðal þess sem þar blasir við, er sterk
hægri undiralda í Suðurkjördæmi, þar
sem vinstriflokkarnir ná sér ekki á strik,
en einnig má nefna hvernig Viðreisn nær
lítilli viðspyrnu utan höfuð-
borgarsvæðisins meðan Framsóknarflokk-
urinn á við gagnstæðan vanda að etja sem
oft áður. Sömuleiðis eiga Píratar mun
minna fylgi að fagna á Norðurlandi en
annars staðar.
Það eru helst fylgisminnstu flokkarnir,
sem státað geta af sæmilega jöfnu fylgi
eftir kjördæmum, en jafnvel þeir eru allir
með eitt kjördæmi öðrum sterkara.
Misvægi
fylgis
flokka
- Mikill munur á fylgi
eftir kjördæmum
Kjördæmin
» Kjördæmin eru
mjög misfjölmenn
» Fylgi flokkanna
er einnig mjög
misskipt milli
þeirra
» Sá munur virð-
ist fremur fara
vaxandi en hitt
MMjög misjöfn staða í kjördæmunum »4
_ Verktakafyrirtækið Eykt mun
annast hönnun og framkvæmdir
við stækkun seiðaeldisstöðvar Arc-
tic Fish í Norður-Botni í Tálkna-
firði og norska fyrirtækið Eyvi sér
um tæknibúnað stöðvarinnar.
Áætlað er að kostnaður við verkið
verði um 3,5 milljarðar króna og
verður það ein af stærstu fram-
kvæmdum einkaaðila á Vest-
fjörðum. Framkvæmdir hefjast
næstu daga.
Húsnæðið verður stækkað um
4.200 fermetra og verður samtals
14.200 og kerjarými meira en tvö-
faldað því við það bætast 7.200
rúmmetrar. Framleiðslugeta stöðv-
arinnar tvöfaldast, verður 1.000
tonn sem svarar til um fimm millj-
óna 200 gramma seiða. Úr þeim
fjölda á að vera hægt að ala um
það bil 25 þúsund tonn af laxi. »9
3,5 milljarða króna
stækkun fyrir seiði
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Arctic Fish Afkastageta stöðvarinnar
í Tálknafirði verður tvöfölduð.
_ Illkynja æxli voru algengasta
dánarorsök landsmanna í fyrra en
dánartíðni illvígustu sjúkdóma hef-
ur lækkað allnokkuð á umliðnum
árum að því er fram kemur í um-
fjöllun um dánartíðni og dánar-
orsakir í fyrra í Talnabrunni Land-
læknis. Svonefnd aldursstöðluð
dánartíðni vegna illkynja æxla var
182 á hverja 100 þúsund íbúa í
fyrra. Þá hefur aldursstöðluð dán-
artíðni vegna hjartasjúkdóma með-
al karla lækkað um ríflega 55% frá
árinu 1996 en um tæplega 44% hjá
konum á sama tímabili. Er það fyrst
og fremst talið skýrast af bættum
lífsstíl og framförum í læknis-
fræðilegri meðferð. »14
Dánartíðni illvígra
sjúkdóma lækkar