Morgunblaðið - 26.08.2021, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021
Karítas Ríkharðsdóttir
Inga Þóra Pálsdóttir
Þjóðaratkvæðagreiðsla um fram-
hald á viðræðum um inngöngu í
Evrópusambandið, ný stjórnarskrá
á grunni tillagna stjórnlagaráðs og
hærri veiðigjöld eru á meðal kosn-
ingaáherslna Samfylkingarinnar
fyrir alþingiskosningarnar eftir
tæpan mánuð.
Kosningaáherslur Samfylkingar-
innar voru kynntar á blaðamanna-
fundi í gær, þegar sléttur mánuður
var til kosninga, á Aurora base-
camp í Hafnarfirði og í beinu
streymi á netinu.
Deildu á ríkisstjórnina
Áherslupakki Samfylkingarinnar
ber yfirskriftina Betra líf fyrir þig,
þína fjölskyldu og komandi kyn-
slóðir, og skiptist í fjóra megin-
hluta; fjölskyldur í forgang, alvöru
aðgerðir í loftslagsmálum, sterkara
samfélag og frjálst og framsækið
Ísland.
Logi Einarsson, formaður flokks-
ins, sá um að kynna áherslunar
ásamt því að Ragna Sigurðardóttir,
forseti Ungra jafnaðarmanna,
kynnti stuttlega áherslur ungliða-
hreyfingarinnar.
Í máli þeirra beggja mátti greina
gagnrýni á störf sitjandi ríkis-
stjórnar.
Í ræðu sinni gagnrýndi Logi
ríkisstjórnina fyrir aðgerðaleysi í
loftslagsmálum. Aðspurður hvort
Samfylkingin eigi þá samleið með
Vinstri grænum, sem farið hafa
með umhverfisráðuneytið á yfir-
standandi kjörtímabili, sagði Logi í
samtali við mbl.is svo vera.
Samhljómur með VG
„Vinstri græn hafa í stefnu sinni
metnaðarfull áform í loftslagsmál-
um. Við eigum samhljóm um margt
af því sem þar er. Í samstarfi við
hægri flokk, eins og Sjálfstæðis-
flokkinn, hafa þau ekki náð nógu
miklum slagkrafti,“ sagði Logi.
Hann stendur við orð sín um að
hafna samstarfi við Sjálfstæðis-
flokkinn og segir ekki vera mál-
efnalegan grunn fyrir samstarfi
milli Sjálfstæðisflokks og Samfylk-
ingar en útilokar þó ekki samstarf
með miðjuflokkum.
Ekki markmið að leiða
Logi sagði ekki öllu skipta hvort
Samfylkingin myndi leiða ríkis-
stjórn eftir næstu kosningar heldur
vildi Samfylkingin leiða saman fé-
lagshyggjuflokka til að mynda
ríkisstjórn.
Meðal aðgerða sem Samfylkingin
boðaði, undir markmiðinu sókn gegn
sérhagsmunum, er hækkun veiði-
gjalda á útgerðir og gagnger úttekt
á núverandi fiskveiðistjórnunar-
kerfi.
Óljóst orðalag um
uppboð á kvóta
Spurður nánar út í hækkun á
veiðigjöldum sagði Logi að aðgerðin
yrði þrepaskipt og ætti að ná sér-
staklega til um tuttugu stærstu út-
gerðarfyrirtækjanna.
Þegar nánar er rýnt í kosninga-
bækling flokksins segir að taka eigi
upp sérstakt álag á útgerðir með
heimildir fyrir afla yfir fimm þúsund
þorskígildistonn á fiskveiðiári.
Þar segir sömuleiðis að kanna eigi
sérstaklega áhrif af útboði tíma-
bundinna veiðiheimilda.
Sömuleiðis boðaði formaðurinn
nýja stóreignaskatta á hreina eign
umfram 200 milljónir.
Samfylkingin boðaði það sem kall-
að var „norrænt barnabótakerfi“ þar
sem greiddar eru fullar barnabætur
til foreldra með allt að meðaltekjum.
Þannig að fjölskylda með 1.200 þús-
und krónur á mánuði, eða 600 þús-
und fyrir einstætt foreldri, með tvö
börn fengi um 54 þúsund krónur í
hverjum mánuði.
Ekki áhyggjur af könnunum
Logi sagðist ekki hafa áhyggjur af
því að Samfylkinginni hefði fatast
flugið sem hún var komin á í skoð-
anakönnunum á kjörtímabilinu og að
hún stendur nú ýmist í stað eða
lækkar á milli kannana.
Þá gaf Logi ekki mikið fyrir að
Sósíalistaflokkurinn gæti verið að
sækja í fylgi sem áður hafði mælst
hjá Samfylkingunni og sagði kosn-
ingarbaráttuna rétt vera að byrja.
„Ég er bjartsýnn, ég held að við
toppum á réttum tíma, ég held að við
náum að fella ríkisstjórnina og
mynda samstæða félagshyggju-
stjórn,“ sagði Logi.
Inntur eftir stefnu Samfylkingar-
innar varðandi heimsfaraldur Co-
vid-19 sagði Logi farsælt að fylgja
tillögum sóttvarnalæknis og sagðist
ekki vilja nýta farsóttarumræðuna
sem pólitískt bitbein.
Þó lagði Logi sérstaka áherslu á
stöðu framhaldsskólanema sem nú
fara inn í sinn annan vetur í tak-
mörkuðu skólastarfi.
„Ég legg miklar áherslu á að
skólastarf geti verið eðlilegt,“ sagði
Logi Einarsson og bætti við að erf-
iðast væri að horfa upp á ungmenni
búa við skerðingar vegna faraldurs-
ins.
ESB og ný stjórnarskrá
- Kosningaáherslur Samfylkingarinnar kynntar - Ríkisstjórnin harðlega gagn-
rýnd - Standa við að hafna samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn - Hærri veiðigjöld
Morgunblaðið/Eggert
Glaðbeittur Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, kynnti kosningaáherslur flokksins á blaðamannafundi í Aurora basecamp í gær.
2021
2021 ALÞINGISKOSNINGAR
12.995.- / St. 20-26
5 litir / Vnr.: E-764801
11.995.- / St. 20-26
2 litir / Vnr.: E-754781
ECCO BARNASKÓR
VANDAÐIR OG HLÝIR GORE-TEX KULDASKÓR
12.995.- / St. 19-26
2 litir / Vnr.: E-724131
12.995.- / St. 19-26
2 litir / Vnr.: E-754311
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
STEINAR WAAGE
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn hef-
ur birt framboðslista í fjórum kjör-
dæmum fyrir komandi þingkosn-
ingar. Guðmundur Franklín
Jónsson, formaður flokksins, leiðir
Reykjavíkurkjördæmi norður. Í
öðru sæti er Auðunn Björn Lár-
usson leiðsögumaður.
Ekki hefur verið birtur listi fyrir
Reykjavík suður en fyrr á árinu var
Glúmur Baldvinsson kynntur til
leiks sem oddviti í því kjördæmi.
Í Norðvesturkjördæmi er Sig-
urlaug Guðrún Inga Gísladóttir
verslunarmaður í fyrsta sæti, Jó-
hann Bragason rafvirki í öðru og
Hafþór Magnússon sjómaður í
þriðja sæti.
Í Norðausturkjördæmi er Björg-
vin Egill Vídalín Arngrímsson,
eldri borgari, oddviti listans. Hilm-
ar Daníel Valgeirsson fram-
kvæmdastjóri er í öðru sæti og Hal-
ina Kravtchouk yfirþerna í því
þriðja. Magnús Ívar Guðbergsson
skipstjóri leiðir listann í Suður-
kjördæmi og Inga Jóna Trausta-
dóttir öryrki er í öðru sæti.
Guðmundur
Franklín Jónsson
Glúmur
Baldvinsson
Oddvitar
frjálslyndra
Vinstri grænir verða með fram-
haldslandsfund sinn á laugardag-
inn. Um fjarfund er að ræða sem
streymt verður á netinu. Lands-
fundurinn er á vef flokksins sagður
kosningafundur, enda stutt til kosn-
inganna 25. september nk.
Á fundinum verða kosninga-
áherslur kynntar, kosið verður í
stjórn og flokksráð. Kosningarnar
verða rafrænar en landsfundar-
gleði verður frestað.
Katrín Jakobsdóttir, formaður
VG, mun ávarpa landsfundinn kl.
10:15 á laugardagsmorgun. Um
miðjan dag fer fram kosning í
stjórn VG og síðdegis á laugardag
verða kynntar ályktanir.
Rafrænn
landsfundur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vinstri græn Katrín Jakobsdóttir.