Morgunblaðið - 03.09.2021, Side 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2021
E
f einhvern tíma hefur ver-
ið ástæða til að búa til
tölvuleik út frá kvikmynd
þá er það nú með Free
Guy. Þetta er kvikmynd fyrir
Z-kynslóðina svokölluðu, fólk fætt
milli 1997 og 2012 sem alist hefur
upp við nettengda tölvuleiki á borð
við Fortnite og Minecraft, við að
leika með og á móti fólki hvaðan-
æva. Kynslóðina sem þekkir með
nöfnum svokallaða „jútjúbera“, þ.e.
karla og konur sem hafa lífsviður-
væri sitt af því að taka upp youtube-
vídeó af sér að leika tölvuleiki og
lýsa því sem fram fer með tilþrifum
og oftar en ekki miklum ýkjum.
Sumir þessara jútjúbera eru
moldríkir og við sem eldri erum,
foreldrar hinna ungu leikmanna,
hristum höfuðið í skilningsleysi yfir
þessum nýja veruleika. Auðvitað
voru til tölvuleikir þegar ég var
barn og unglingur en þeir voru ekki
mjög raunverulegir á að líta og þeir
sem ætluðu að spila saman urðu að
vera á sama stað. Nú þurfa leik-
menn ekki lengur að hittast og fólk
getur auk þess verið annað en það
þykist vera, villt á sér heimildir.
Inn í þennan heillandi en um leið
ógnvekjandi veruleika er Frjáls
gaur skrifuð og er margoft vísað í
myndinni í þekkta tölvuleiki og þá
sérstaklega Fortnite. Þar skipta
leikendur um „skinn“, þ.e. breyta
útliti sínu og geta einnig valið úr
vopnum og öðrum tólum og far-
artækjum. Eru það oft æði skraut-
legar persónur og búnaður og börn
þekkja fyrir vikið hinar ólíku teg-
undir skotvopna og sprengjuvarpa.
Ofbeldið er líka mikið þó ekkert
blóð sjáist Fortnite, óvinir eru
skotnir úr fjarlægð og svo birtist
dróni og fjarlægir þá. Það er svo til
dæmis um sívaxandi tengsl tölvu-
leikja og kvikmynda að nú eru per-
sónur úr Free Guy komnar í fyrr-
nefndan tölvuleik og kæmi ekki á
óvart ef Lego færi líka að selja sett
tengd myndinni.
Í Free Guy segir af náunga sem
heitir Guy (Gaur) og er titillinn tví-
ræður því bæði má skilja hann sem
ákall um að frelsa þennan gaur eða
að hann sé nú þegar frjáls. Það er
hann þó alls ekki því Guy er svokall-
aður NPC í tölvuleik, persóna sem
er ekki leikmaður (NPC er skamm-
stöfun á „non playing character“) og
því aðeins persóna í bakgrunninum.
Guy er gjaldkeri í banka sem er
rændur daglega og honum þykir
ekkert athugavert við það því rán
og ofbeldi eru daglegt brauð í borg-
inni hans, Free City. Þar ríkir
stanslaust stríðsástand með tilheyr-
andi sprengingum og skothríð. Besti
vinur Guy, Buddy, er öryggisvörður
í bankanum og á meðan á ránunum
stendur liggja félagarnir á gólfinu
og ræða daginn og veginn og hvort
þeir eigi að skreppa og fá sér ís eftir
vinnu. Þetta er býsna skondið og
Reynolds er bráðfyndinn í hlutverki
hins einfalda og bláeyga Guy sem er
alltaf eins klæddur, í blárri skyrtu
og drapplituðum buxum og gerir
það sama alla daga. LilRel Howery
er líka hlægilegur í hlutverki
Buddy.
Guy dreymir um að eignast kær-
ustu og sér ákveðna draumadís fyrir
sér sem Buddy segir ímyndun eina.
Dag einn birtist þessi dís, víga-
kvendi með sólgleraugu eins og allir
„flottu“ borgarbúarnir sem eru í
raun leikmenn, fólk í raunheimum
að spila þennan ofbeldisfulla leik,
Free City. Þegar Guy tekur óvænt
upp á því að afvopna bankaræningja
og nær sólgleraugunum af honum
birtist honum nýr heimur, leikurinn
eins og hann birtist leikmönnum á
tölvuskjá með sínum bónusstigum,
auka-lífum og dóti sem hægt er að
grípa úr lausu lofti. Guy hefur ein-
hvern veginn öðlast frelsi innan
leikjarins en er eftir sem áður bara
forrituð persóna. Draumadísin hans,
Molotov Girl, er hins vegar leik-
maður, leikjahönnuður að nafni
Milly sem er í leit að ákveðnum
grunni sem hún telur framleiðanda
leikjarins, hinn illa Antwan (sem er
stórkostlega ofleikinn af Taika Wai-
titi), hafa stolið af henni og félaga
hennar, Keys, sem starfar nú fyrir
Antwan. Milly og Guy verða ást-
fangin í leiknum en sú ást gengur
auðvitað ekki upp þar sem hún er í
sýndarheimi. Þegar Antwan kemst
að fyrirætlan Milly eru góð ráð dýr
og þurfa þau Guy að reyna að koma
í veg fyrir að hann tortími Free
City.
Ég, miðaldra gagnrýnandi og
þriggja barna faðir, var orðinn frek-
ar lúinn að mynd lokinni þó ekki
hafi hún farið yfir tvær klukku-
stundir. Þegar myndin var hálfnuð
var svo mikið búið að gerast, líkt og
í tölvuleik, að mér fannst sem hún
hlyti bráðum að enda. Í því felst út-
haldsmunur minnar kynslóðar og
fyrrnefndrar Z, kynslóð sonar míns
sem fór með mér í bíó. Ég er ekki
vanur þessu mikla áreiti tölvuleikja
eins og þeir líta út í dag og verð
bara frekar lúinn af því að horfa á
þá. Fyrir börnum og unglingum er
þetta daglegt brauð og eðlilegt og
ánægjulegt áreiti og ef ekki hefði
verið fyrir skemmtilegar persónur,
líflegan leik, vel útfærð hasaratriði,
tölvubrellur og ágætt grín hefði mér
eflaust þótt nóg um Free Guy. Þau
Reynolds og Comer halda manni við
efnið og myndin heldur vel dampi
frá upphafi til enda.
Free Guy vegur salt milli tveggja
heima, hins raunverulega og tölvu-
leikjarheimsins en persónur af holdi
og blóði lifa, samt sem áður, fyrir
tölvuleikinn og eru háðar honum.
Þannig líður leikjahönnuðinum
Milly í raun betur í sýndarheim-
inum en hinum raunverulega, líkt og
eflaust mörgu ungmenninu í dag og
með góðum vilja má þarna greina
ádeilu hjá handritshöfundum á
tölvuleiki og möguleg skaðleg áhrif
þeirra. Höfundar Free Guy fara
heldur ekki leynt með á hverju þeir
eru að græða og til hverra er verið
að höfða og ekkert svo sem að því.
Allir eru jú að græða á einhverjum
þegar kemur að afþreyingu.
Sumir hafa líkt myndinni við hina
öllu betri Truman Show þar sem
Jim Carrey kemst að því að hann er
persóna í raunveruleikasjónvarpi og
að ekkert er raunverulegt og ekta,
öllu er leikstýrt og allir eru að leika
hlutverk. Eflaust upplifa margir
heiminn þannig og jafnvel eins og
þeir séu staddir í tölvuleik. Að lífið
sé bara endurtekning þar til við
deyjum og að ekkert sé raunveru-
legt. Það er vissulega efni í mun
drungalegri og þunglyndislegri
mynd en Free Guy er ágætt sumar-
léttmeti og vel heppnuð bíómynd
sem slík.
Til zetunnar boðið
Tölvuleikur Guy horfir hugfanginn á Molotov Girl í Free Guy.
Sambíóin, Laugarásbíó og
Smárabíó
Frjáls gaur/ Free Guy bbbnn
Leikstjórn: Sean Levy. Handrit: Zak
Penn og Matt Lieberman. Aðalleikarar:
Ryan Reynolds, Jodie Comer, LilRel Ho-
wery, Joe Keery og Taika Watiti. Banda-
ríkin og Kanada, 2021. 115 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Joris Rademaker
opnar myndlist-
arsýningu í SÍM-
salnum, Hafnar-
stræti 16, í dag,
föstudag, kl. 16.
Sýningin nefnist
Vöxtur og tími
og er innsetning
þar sem myndir
af höndum og
fótum lista-
mannsins eru málaðar á ríspappír
með svörtum lit og einnig fundnir
hlutir úr náttúrunni. Verkin, bæði
þau tví- og þrívíðu, mynda samtal
hvort við annað, segir í tilkynningu
og eru innblásin af vaxtarferli nátt-
úrunnar. Margt er táknrænt og
byggir titill sýningarinnar á því.
Verkin eru öll frá árinu 2020 og
þessu ári.
Joris stundaði nám í mynd- og
handmennt í Tilburg í Hollandi
1977-83 og í AKI listaakademíunni í
Enschede í Hollandi 1983-86. Hann
hefur haldið fjölmargar einkasýn-
ingar á Íslandi og erlendis.
Joris
Rademaker
Vöxtur og tími
í SÍM-salnum
Tíunda blúshátíðin á Patreksfirði
verður haldin í dag og á morgun, 3.
og 4. september og munu fjórar
hljómsveitir koma fram, þ.e. Blús-
band Þollýar, Fógetarnir, R G P
103 blús band og Johnny and the
rest. Á Patreksfirði er stórt félags-
heimili sem rúmar þann takmark-
aða fjölda sem leyfður er á fjölda-
samkomum, 200 manns, og tjald og
húsbílastæði er bak við húsið. Há-
tíðin ber yfirskriftina Blús milli
fjalls og fjöru og er nú haldin í tí-
unda sinn.
Blús milli fjalls og
fjöru í tíunda sinn
Blúsbær Blúsinn ómar á Patreksfirði.