Morgunblaðið - 03.09.2021, Side 36
Sinfóníuhljómsveit Íslands og RÚV efna í sjötta sinn til
tónleika í beinni útsendingu frá Eldborg í Hörpu í kvöld
og eiga nú í samstarfi við Þjóðleikhúsið og tónleikarnir
helgaðir leikhústónlist. Listafólk Þjóðleikhússins, Sin-
fóníuhljómsveit Íslands og fjöldi einsöngvara munu
flytja þjóðinni leikhúsperlur og kynnar verða að vanda
Guðni Tómasson og Halla Oddný Magnúsdóttir. Hljóm-
sveitarstjóri er Daníel Bjarnason og munu margir ein-
söngvarar stíga á svið sem og söngsveitin Fílharmonía
og leikhópur Þjóðleikhússins. Tónleikarnir hefjast kl.
20 og verða þeir í beinni útsendingu á RÚV og á Rás 1.
Klassíkin okkar í beinni frá Eldborg
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Aríel Pétursson tók við formennsku
í Sjómannadagsráði höfuðborgar-
svæðisins í fyrradag, en hann var
kjörinn varaformaður ráðsins á aðal-
fundi þess í vor. Hann leggur
áherslu á að hann taki við mjög góðu
búi. „Ég er með einstaklega gott
starfsfólk, samstarfið innan stjórnar
er sérlega gott og fulltrúar stéttar-
félaga sjómanna á höfuðborgar-
svæðinu í Sjómannadagsráði eru
hafsjór af fróðleik og veita okkur
góðan stuðning.“
Sjómannadagsráð var stofnað
1937. Henrý Hálfdánarson stýrði
ráðinu til 1961, Einar Thoroddsen
var formaður í eitt ár áður en Pétur
Sigurðsson sjómaður tók við 1962 og
gegndi stöðu formanns til 1993. Guð-
mundur Hallvarðsson var síðan í
forystu til 2017, þegar Hálfdán Hen-
rysson tók við keflinu, sem hann svo
afhenti Aríel 1. september. Svo
skemmtilega vill til að Pétur sjómað-
ur var á 34. ári þegar hann tók við
formennsku í ráðinu og Aríel, sem
fæddist 50 árum eftir stofnun þess,
verður 34 ára í nóvember.
Grettistakið heillaði
Tilgangur Sjómannadagsráðs var
fyrst að vekja athygli á lífi og störf-
um sjómanna með því að sjá árlega
um hátíðarhöld sjómannadagsins í
Reykjavík. Undanfarin ár hefur
utanumhaldið verið í samstarfi við
Faxaflóahafnir og útgerðarfélagið
Brim með áherslu á að vekja athygli
á samfélagslegu og þjóðhagslegu
mikilvægi stéttarinnar. Fljótlega
beitti ráðið sér fyrir byggingu dval-
arheimilis aldraðra sjómanna. Sú
starfsemi varð síðan að almennri
þjónustu fyrir aldraða og auk Hrafn-
istu í Reykjavík og Hafnarfirði rek-
ur Sjómannadagsráð nú sex heimili
með það að markmiði að veita öldr-
uðum áhyggjulaust ævikvöld.
Að loknu námi í Stýrimannaskól-
anum var Aríel stýrimaður á tog-
urum í nokkur ár. Hann fór síðan í
nám til Danmerkur og útskrifaðist
úr Sjóliðsforingjaskóla danska sjó-
hersins í Kaupmannahöfn 2019.
Hann hefur verið yfirstýrimaður á
freigátum danska sjóhersins síðan
fyrir utan stuttan tíma sem stýri-
maður hjá Landhelgisgæslunni.
Fyrir mörgum árum kynntist Ar-
íel störfum Sjómannadagsráðs í
gegnum vinnufélaga á sjó. Hann
segist síðan hafa kynnt sér söguna
og starfið æ betur og heillast af því
grettistaki sem ráðið hafði lyft í
þágu sjómannastéttarinnar og síðar
einnig samborgaranna allra. „Þessi
kraftur á bak við vinnufélaga mína
heillaði mig. Helsta driffjöðrin var
að gera gott í samfélaginu með hag
og öryggi íbúanna að leiðarljósi og
þegar ég var í náminu í Danmörku
sá ég fyrir mér að ég ætti eftir að
koma að störfum ráðsins og leggja
lóð mitt á vogarskálina í þessu
merkilega starfi.“
Langur vegur er frá störfum úti á
sjó að rekstri einnar stærstu heil-
brigðisstofnunar landsins en Hrafn-
ista rekur um fjórðung hjúkrunar-
rýma hérlendis og er með um 1.700
manns í vinnu. „Sennilega tekur
styttri tíma að snúa herskipi en
þessari skútu en engu að síður er ég
viss um það að margt af því sem ég
hef lært og þroskast í úti á sjó nýtist
í þessari nýju freigátu.“
Sjóliðsforinginn tekinn
við Sjómannadagsráði
- Aríel Pétursson leggur lóð sitt á mikilvæga vogarskálina
Fjölskyldan Frá vinstri: Jökull Orri, Aríel með Eld Hrafn á háhesti og
Hrefna Marín Sigurðardóttir með Esju Marín í fanginu.
Skipti Hálfdán Henrysson til vinstri afhendir Aríel Péturssyni lyklana.
STILLANLEG
HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
EIN ALLRA BESTA
HEILSUDÝNA Í HEIMI
SUMARLEG SÆNGURVERASETTSÆNGURVER OG NÁTTSLOPPAR
HÖFUM
ÞAÐ GOTT
HEIMA
KERTATÍMIKósý
ÚRVAL AD VÖNDUÐUM ILMKERTUM FRÁ FRANSKA
MERKINU DURANCE, FULLKOMIN Á SÍÐSUMARKVÖLDUM
Allt fyrir góðan svefn
og betri heilsu
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 246. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Íslenska 21-árs landsliðið í knattspyrnu karla fór vel af
stað í undankeppni Evrópumótsins í gær þegar það vann
Hvíta-Rússland á útivelli í Brest, 2:1. Hákon Arnar Haralds-
son, átján ára gamall Skagamaður sem leikur með Köben-
havn í Danmörku, kom inn á sem varamaður snemma leiks
og skoraði bæði mörk íslenska liðsins. »31
Hákon hetja Íslands í Brest
ÍÞRÓTTIR MENNING