Morgunblaðið - 03.09.2021, Side 36

Morgunblaðið - 03.09.2021, Side 36
Sinfóníuhljómsveit Íslands og RÚV efna í sjötta sinn til tónleika í beinni útsendingu frá Eldborg í Hörpu í kvöld og eiga nú í samstarfi við Þjóðleikhúsið og tónleikarnir helgaðir leikhústónlist. Listafólk Þjóðleikhússins, Sin- fóníuhljómsveit Íslands og fjöldi einsöngvara munu flytja þjóðinni leikhúsperlur og kynnar verða að vanda Guðni Tómasson og Halla Oddný Magnúsdóttir. Hljóm- sveitarstjóri er Daníel Bjarnason og munu margir ein- söngvarar stíga á svið sem og söngsveitin Fílharmonía og leikhópur Þjóðleikhússins. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og verða þeir í beinni útsendingu á RÚV og á Rás 1. Klassíkin okkar í beinni frá Eldborg Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Aríel Pétursson tók við formennsku í Sjómannadagsráði höfuðborgar- svæðisins í fyrradag, en hann var kjörinn varaformaður ráðsins á aðal- fundi þess í vor. Hann leggur áherslu á að hann taki við mjög góðu búi. „Ég er með einstaklega gott starfsfólk, samstarfið innan stjórnar er sérlega gott og fulltrúar stéttar- félaga sjómanna á höfuðborgar- svæðinu í Sjómannadagsráði eru hafsjór af fróðleik og veita okkur góðan stuðning.“ Sjómannadagsráð var stofnað 1937. Henrý Hálfdánarson stýrði ráðinu til 1961, Einar Thoroddsen var formaður í eitt ár áður en Pétur Sigurðsson sjómaður tók við 1962 og gegndi stöðu formanns til 1993. Guð- mundur Hallvarðsson var síðan í forystu til 2017, þegar Hálfdán Hen- rysson tók við keflinu, sem hann svo afhenti Aríel 1. september. Svo skemmtilega vill til að Pétur sjómað- ur var á 34. ári þegar hann tók við formennsku í ráðinu og Aríel, sem fæddist 50 árum eftir stofnun þess, verður 34 ára í nóvember. Grettistakið heillaði Tilgangur Sjómannadagsráðs var fyrst að vekja athygli á lífi og störf- um sjómanna með því að sjá árlega um hátíðarhöld sjómannadagsins í Reykjavík. Undanfarin ár hefur utanumhaldið verið í samstarfi við Faxaflóahafnir og útgerðarfélagið Brim með áherslu á að vekja athygli á samfélagslegu og þjóðhagslegu mikilvægi stéttarinnar. Fljótlega beitti ráðið sér fyrir byggingu dval- arheimilis aldraðra sjómanna. Sú starfsemi varð síðan að almennri þjónustu fyrir aldraða og auk Hrafn- istu í Reykjavík og Hafnarfirði rek- ur Sjómannadagsráð nú sex heimili með það að markmiði að veita öldr- uðum áhyggjulaust ævikvöld. Að loknu námi í Stýrimannaskól- anum var Aríel stýrimaður á tog- urum í nokkur ár. Hann fór síðan í nám til Danmerkur og útskrifaðist úr Sjóliðsforingjaskóla danska sjó- hersins í Kaupmannahöfn 2019. Hann hefur verið yfirstýrimaður á freigátum danska sjóhersins síðan fyrir utan stuttan tíma sem stýri- maður hjá Landhelgisgæslunni. Fyrir mörgum árum kynntist Ar- íel störfum Sjómannadagsráðs í gegnum vinnufélaga á sjó. Hann segist síðan hafa kynnt sér söguna og starfið æ betur og heillast af því grettistaki sem ráðið hafði lyft í þágu sjómannastéttarinnar og síðar einnig samborgaranna allra. „Þessi kraftur á bak við vinnufélaga mína heillaði mig. Helsta driffjöðrin var að gera gott í samfélaginu með hag og öryggi íbúanna að leiðarljósi og þegar ég var í náminu í Danmörku sá ég fyrir mér að ég ætti eftir að koma að störfum ráðsins og leggja lóð mitt á vogarskálina í þessu merkilega starfi.“ Langur vegur er frá störfum úti á sjó að rekstri einnar stærstu heil- brigðisstofnunar landsins en Hrafn- ista rekur um fjórðung hjúkrunar- rýma hérlendis og er með um 1.700 manns í vinnu. „Sennilega tekur styttri tíma að snúa herskipi en þessari skútu en engu að síður er ég viss um það að margt af því sem ég hef lært og þroskast í úti á sjó nýtist í þessari nýju freigátu.“ Sjóliðsforinginn tekinn við Sjómannadagsráði - Aríel Pétursson leggur lóð sitt á mikilvæga vogarskálina Fjölskyldan Frá vinstri: Jökull Orri, Aríel með Eld Hrafn á háhesti og Hrefna Marín Sigurðardóttir með Esju Marín í fanginu. Skipti Hálfdán Henrysson til vinstri afhendir Aríel Péturssyni lyklana. STILLANLEG HJÓNARÚM MEÐ BODYPRINT DÝNU EIN ALLRA BESTA HEILSUDÝNA Í HEIMI SUMARLEG SÆNGURVERASETTSÆNGURVER OG NÁTTSLOPPAR HÖFUM ÞAÐ GOTT HEIMA KERTATÍMIKósý ÚRVAL AD VÖNDUÐUM ILMKERTUM FRÁ FRANSKA MERKINU DURANCE, FULLKOMIN Á SÍÐSUMARKVÖLDUM Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 246. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Íslenska 21-árs landsliðið í knattspyrnu karla fór vel af stað í undankeppni Evrópumótsins í gær þegar það vann Hvíta-Rússland á útivelli í Brest, 2:1. Hákon Arnar Haralds- son, átján ára gamall Skagamaður sem leikur með Köben- havn í Danmörku, kom inn á sem varamaður snemma leiks og skoraði bæði mörk íslenska liðsins. »31 Hákon hetja Íslands í Brest ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.