Morgunblaðið - 03.09.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.09.2021, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2021 3. september 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 126.0 Sterlingspund 173.57 Kanadadalur 100.12 Dönsk króna 20.037 Norsk króna 14.52 Sænsk króna 14.616 Svissn. franki 137.42 Japanskt jen 1.1431 SDR 179.37 Evra 149.0 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 179.7877 « Hrein staða þjóðarbúsins sem hlut- fall af landsframleiðslu var 36,6% við lok annars ársfjórðungs. Batnaði stað- an talsvert frá lokum fyrsta ársfjórð- ungs þegar staðan var 34,1%. Hrein staða þjóðarbúsins var 1.120 millj- arðar króna og hefur aldrei í sögunni verið betri. Þannig voru erlendar eignir 4.566 milljarðar króna en erlendar skuldir alls um 3.445 milljarðar. Kemur þetta fram í nýbirtum þjóð- hagsútreikningum Seðlabanka Íslands. Af erlendum eignum var mest bundið í verðbréfum eða 2.378 milljarðar og þá var gjaldeyrisforðinn 856 milljarðar. Bein fjárfesting nam 780 milljörðum og önnur fjárfesting 544 milljörðum. Af skuldunum vógu verðbréf þyngst eða 1.564 milljörðum króna, bein fjár- festing 1.002 milljörðum og önnur fjár- festing 868 milljörðum. Afleiður stóðu undir 12 milljörðum af erlendum skuld- um. Það sem helst hafði áhrif til bættrar erlendrar stöðu milli fjórðunga var að virði eigna hækkaði um 78 milljarða vegna gengis- og verðbreytinga og skulda um 1 milljarð. Hrein fjár- magnsviðskipti bættu erlenda stöðu um 16 milljarða en erlendar eignir hækkuðu um 15 milljarða vegna fjár- magnsviðskipta en skuldir lækkuðu um 2 milljarða. Verð á erlendum mörk- uðum hækkaði um 8% milli fjórðunga og verð á bréfum á innlendum hluta- bréfamarkaði um 9,4%. Gengi krón- unnar hækkaði um 1,5% miðað við gengisskráningarvog. Erlendar eignir þjóð- arbúsins aldrei meiri STUTT BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Rekstrarafkoma Orkusölunnar, sem er dótturfyrirtæki RARIK, versnar talsvert milli ára ef marka má árshlutareikning móðurfélagsins sem nú hefur verið birtur. Þar má sjá að tekjur Orkusölunnar námu tæpum 2,4 milljörðum á fyrri hluta ársins (nefnt Raforkusala undir starfsþátta- yfirliti RARIK) en nam rúmum 2,9 milljörðum króna yfir sama tímabil í fyrra. Samdráttinn má að stórum hluta rekja til þess að RARIK var með úr- skurði kærunefndar útboðsmála skikkað gegn eigin vilja til að ráðast í útboð á raforkukaupum vegna svo- kallaðs dreifitaps sem verður í öllum kerfum þeirra fyrirtækja sem hafa með raforkuflutning að ræða. Innri salan skreppur saman Í reikningum RARIK eru kaup fyrirtækisins frá dótturfélaginu, Orkusölunni, merkt sérstaklega sem „innri sala“ og námu kaupin 350 millj- ónum króna á fyrri hluta síðasta árs en aðeins 48 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Stærstan hluta samdráttarins má rekja til þess að í útboði sem RARIK réðist í á síðastliðnu ári varð Orka náttúrunnar hlutskörpust þegar kom að sölu á orku til að mæta fyrrnefndu orkutapi í dreifikerfinu. Þegar niðurstaða útboðsins lá fyrir og ljóst að ON hefði boðið betur en Orkusalan og aðrir þátttakendur í út- boðinu sagði í frétt á vef RARIK að tilboð ON hefði falið í sér 4,08 kr./ kWst. og að miðað væri við að við- skiptin fælu í sér afhendingu orku sem næmi 80 GWst/ári. Gróflega má því áætla að heildarkaupin nemi 330 milljónum á ári, þótt töpin í kerfum RARIK geti samkvæmt heimildum numið á bilinu 50 til 100 GWst/ári. Samkvæmt upplýsingum frá RARIK má þó ekki rekja allan samdráttinn í „innri sölu“ til þess að ON reyndist hlutskarpast í dreifitöpum. Þannig hafi breytingar einnig orðið á starf- semi fyrirtækisins á Höfn í Horna- firði þar sem hitaveita var tekin í notkun í stað raf- og olíukyndingar sem leiddi óhjákvæmilega til raforku- viðskipta innan fyrirtækisins. Samdráttur í almennum tekjum Í árshlutareikningi RARIK má einnig lesa að tekjur frá öðrum við- skiptamönnum en móðurfélaginu hafi dregist talsvert saman hjá Orkusöl- unni. Þannig námu tekjur af þeim hluta starfseminnar 2.594 milljónum á fyrri árshelmingi 2020 en 2.314 milljónum í ár. Allt leiðir þetta til þess að rekstr- arafkoma Orkusölunnar reynist já- kvæð um 260,5 milljónir á fyrstu sex mánuðum þessa árs en var 459,5 milljónir í fyrra. Jafngildir það 43% samdrætti. Útboðið reynist högg á tekjur Orkusölunnar Morgunblaðið/Einar Falur Raforkusala Kærunefnd útboðsmála þvingaði RARIK í útboð í fyrra. - Rarik var þvingað til að bjóða orkukaup út - Dótturfélag missir spón úr aski Tekjumyndun hjá RARIK Heimild: Árshlutareikningur RARIK Fyrri árshelmingur 2021 Raforkudreifing Raforkusala Annað Samtals Tekjur frá viðskiptamönnum 5.057.453 2.313.964 835.7 8.207.117 Innri sala 7.515 47.995 75.016 130.526 Tekjur samtals 5.064.968 2.361.959 910.716 8.337.643 Rekstrarafkoma starfsþátta 1.196.809 260.505 -350.041 1.107.273 Fyrri árshelmingur 2020 Raforkudreifing Raforkusala Annað Samtals Tekjur frá viðskiptamönnum 4.702.081 2.593.926 874.203 8.170.210 Innri sala 6.163 349.460 83.397 439.02 Tekjur samtals 4.708.244 2.943.386 957.600 8.609.230 Rekstrarafkoma starfsþátta 872.452 459.525 -292.86 1.039.117 Allar fjárhæðir í þúsundum króna ON eykur umsvifin » Á sama tíma og samdráttur verður hjá RARIK reynist vöxt- ur hjá ON. » Samkvæmt árshlutareikn- ingi OR námu tekjur frá þriðja aðila af orkusölu og fram- leiðslu 7,9 milljörðum á fyrri hluta árs. » Hækkar sá liður í reikn- ingnum um rúmar 900 millj- ónir. » Má gera ráð fyrir að útboð RARIK eigi þar hlut að máli. Skeljungur hefur gengið til einkavið- ræðna við Sp/f Orkufelagið í Færeyj- um um sölu á dótturfélagi sínu þar í landi, P/F Magn. Samkvæmt tilkynn- ingu til Kauphallarinnar nemur sölu- verðmætið um 12,4 milljörðum og að teknu tilliti til yfirtöku skulda er salan metin á 10 milljarða. Er það 6,3 millj- örðum hærri fjárhæð en bókfært virði félagsins. Sp/f Orkufelagið var stofn- að í febrúar síðastliðnum af Ben Arabo, Teiti Nolsøe Poulsen og Tommy Næs Djurhuus. Þar er ekki um nýgræðinga í orkugeiranum að ræða. Arabo var stjórnarformaður Atlantic Petroleum um nokkurra ára skeið og er nú stjórnarformaður BankNordik. Poulsen er fjármála- stjóri Lundin Energy og starfaði áður hjá Det Norsk Oljeselskap ASA. Djurhuus er hins vegar forstjóri og eigandi viðskiptaferðaskrifstofunnar Alpha Travel Int. Hlutabréf Skeljungs hækkuðu um 7,4% í viðskiptum gærdagsins í kjöl- far þess að tilkynnt var um söluferlið. Morgunblaðið/ Kristinn Magnússon Olíufélag Skeljungur er skráður í Kauphöll Íslands og er markaðsvirði fyrirtækisins 25,2 milljarðar króna og hefur hækkað um 45% á árinu. Nýtt félag vill kaupa P/F Magn - Verðmiðinn sagður 10 milljarðar kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.