Morgunblaðið - 05.11.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2021
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
Sérhæfð þjónusta fyrir
Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992
544 5151
tímapantanir
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Árleg sala Neyðarkalls björgunar-
sveitanna hófst formlega í gær úti
fyrir Reykjavíkurhöfn, þar sem
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís-
lands, og Eliza Reid forsetafrú tóku
þátt í æfingu á sjó með þyrlu Land-
helgisgæslunnar.
Guðni var hífður frá borði í björg-
unarskipinu Ársæli og um borð í TF-
GNA til þess að vekja athygli á fjár-
öfluninni. Eliza stýrði síðan Ársæli í
land, eftir að Guðni hafði verið tekinn
úr sjónum.
Þetta þótti vel við hæfi þar sem
Neyðarkallinn í ár er sjóbjörgunar-
maður í gulum skrúða.
„Þetta var ljúf sigling, ekki síður
ferðin upp í þyrluna, að vera hífður
þarna upp af vönu fólki og þaul-
reyndu. Og það sem situr eftir er
bara öryggistilfinning og ánægja yfir
því að vita að við eigum allt þetta frá-
bæra fólk hjá Gæslunni, í björgunar-
sveitunum. Nú bara hvet ég öll sem
geta að styrkja starf björgunar-
sveitanna með því að kaupa Neyðar-
kall, úr endurunnu plasti, og sýna það
í verki líka að við kunnum vel að meta
störf þessa fólks,“ sagði Guðni við
mbl.is þegar í land var komið.
Guðni segir brýnt að landsmenn
taki þátt í fjáröfluninni, enda sé hún
hryggjarstykki starfsemi björgunar-
sveita og tryggi aðbúnað þeirra sem
„kasta öllu frá sér og henda sér út í
óvissuna til þess að bjarga þeim sem
eru hjálparþurfi,“ eins og hann orðar
það.
Og forsetinn fer ekkert með fleipur
þegar hann talar um mikilvægi Neyð-
arkallsins. Undir þau orð tekur Otti
Rafn Sigmarsson, formaður Lands-
bjargar, og segir að björgunarsveit-
irnar gætu ekki án fjáröflunarinnar
verið. „Kostnaðurinn við Kallinn er
ekki mikill, en allur ágóði rennur
óskiptur til félagseininganna,“ segir
Otti.
- En í hvað fara peningarnir, hvað
er efst á baugi núna?
„Peningarnir fara auðvitað bara
beint í að reka sveitirnar. Til þess
þurfum við eldsneyti og við þurfum
að þjálfa fólkið okkar, svo það sé sem
best búið þegar kallið kemur. Svo
þarf auðvitað að kaupa alls kyns tæki
og tól og uppfæra það sem fyrir er.“
Morgunblaðið/Unnur Karen
Æfing Forsetahjónin tóku þátt í björgunaræfingu Landsbjargar í gær, í tilefni af sölu Neyðarkallsins í ár. Með
Guðna og Elizu Reid eru sjálfboðaliðarnir Þóra Dagný Stefánsdóttir og Valdimar Hannesson.
Fjáröflunin hryggjar-
stykkið í starfseminni
- Sala björgunarsveitanna á Neyðarkallinum er hafin
Morgunblaðið/Eggert
Neyðarkall Björgunarsveitarfólk hóf sölu á Neyðarkallinum í gær.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Niðurstaða áhættumats er að það sé
nægur tími fyrir okkur í Flugstjórn-
armiðstöðinni til að bregðast við á
réttan hátt og halda uppi öryggi verði
eldgos. Við sem sérfræðingar höfum
ekki áhyggjur af þessu,“ segir Árni
Guðbrandsson, sérfræðingur hjá
Isavia ANS. Það er dótturfyrirtæki
Isavia ohf. og annast flugleiðsögu-
hlutann innan samstæðunnar.
Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur
og prófessor emerítus, hefur lýst yfir
áhyggjum sínum af því að farþega-
flugi sé beint yfir Heklu því hún geti
gosið með mjög skömmum fyrirvara.
Hann segir stuttan fyrirvara á Heklu-
gosum gera hana að varasömu eld-
fjalli.
„Það sem Páll vísar í eru hnit jarð-
arinnar og hnitpunkturinn 64°N og
20°W. Flug sem fara yfir hafið fljúga
mikið eftir svona hnitum og þar á
meðal er þessi punktur oft notaður,“
segir Árni. Punktur þessi er rétt við
Leirubakka í Landsveit sem er í
næsta nágrenni eldfjallsins Heklu.
Árni segir að það fari eftir vindum í
háloftunum hvort margar flugvélar
leggi leið sína yfir þennan hnitpunkt
hverju sinni. Hann bendir á að far-
þegaflugvélar fljúgi á tæplega 900 km
hraða á klukkustund og séu því fljótar
að bregðast við skapist einhver hætta.
Isavia ANS gerði áhættumat árið
2016 í samvinnu við náttúruvárdeild
Veðurstofu Íslands. Áhættumatið
heitir „Möguleg áhrif af eldgosi í
Heklu með skömmum fyrirvara.“
Árni segir að samkvæmt áhættumat-
inu sé ekki talin þörf á að gera neinar
breytingar á flugferlum eða flughnit-
um vegna farþegaflugs yfir hafið og
mögulegrar vár vegna eldgoss á Ís-
landi.
Svigrúm er til að
bregðast við gosi
- Isavia ANS gerði áhættumat 2016
Hekla Einn af hnitpunktum sem
notaðir eru í flugi er nálægt Heklu.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
Steinar Ingi Kolbeins
Stjórn Eflingar fundaði í gærdag og
var afsögn Sólveigar Önnu Jónsdótt-
ur úr embætti formanns formlega af-
greidd á fundinum. Agnieszka Ewa
Ziólkowska tók við embætti for-
manns og kemur til með að gegna því
fram að næstu formanns- og
stjórnarkosningum.
Samkvæmt lögum félagsins fara
kosningar til formannsembættis og
stjórnar fram í mars á næsta ári. Á
fundinum var varaformaður kjörinn
úr stjórn félagsins og tekur Ólöf
Helga Adolfsdóttir við embættinu.
Stór verkefni fram undan
Í tilkynningu félagsins kemur
fram að þeirra bíði það mikla verk-
efni að undirbúa næstu kjarasamn-
ingsviðræður enda verði samningar
lausir í lok næsta árs. „Í þessu verk-
efni mun Efling áfram vera sterkur
málsvari verkafólks,“ sagði í tilkynn-
ingu félagsins.
Þá var snert á þeim vandræðum
sem hafa umlukið félagið undan-
farna daga í tilkynningunni.
„Stjórn Eflingar mun nú einbeita
sér að þeim verkefnum sem henni
ber að sinna. Formaður mun starfa
með skrifstofunni að því að greiða úr
þeim vandamálum sem hafa komið
upp í starfsemi félagsins. Þrátt fyrir
þann ágreining sem ratað hefur í
fjölmiðla eru stjórn og starfsfólk ein-
huga í því að tryggja þjónustu við fé-
lagsmenn Eflingar.“
Neituðu að ræða við fjölmiðla
Fjölmiðlar höfðu beðið fregna frá
fundinum í húsakynnum Eflingar frá
því að fundur hófst klukkan eitt í
gær.
Voru fjölmiðlar ítrekað beðnir um
að yfirgefa bygginguna. Meðal ann-
ars kom til tals að kalla til lögreglu.
Þegar fundi lauk tóku stjórnar-
menn að tínast út og vildi enginn
þeirra tjá sig um málefnin sem komu
þar fram. Báðust þeir allir undan því
að tala við fjölmiðla, að Guðmundi
Baldurssyni undanskildum sem
sagði þó einungis að hann gæti ekki
greint frá því hvað hefði verið rætt.
Einungis að fundurinn hefði verið
upplýsandi.
Hlupu frá blaðamönnum
Tilkynning barst þá fjölmiðlum
þar sem m.a. var greint frá því að
Agnieszka tæki við embætti for-
manns.
Þegar Agnieszka ásamt fleiri
stjórnarmönnum yfirgaf fundarher-
bergið baðst hún undan því að tjá sig
við fjölmiðla og kvaðst ekki telja sig
geta svarað neinum spurningum.
Í fyrstu reyndu þau að komast nið-
ur á jarðhæð með lyftu og voru spurð
út í fundinn á meðan beðið var eftir
henni. Þegar í ljós kom að lyftan virt-
ist ekki að koma nógu snögglega
tóku þau á rás, fóru fram hjá blaða-
mönnum og hlupu niður stigagang-
inn.
Agnieszka formaður Eflingar
- Ólöf Helga Adolfsdóttir varaformaður - Neituðu að ræða við fjölmiðla - Stefnt að því að lægja öld-
urnar innanhúss - Nýkjörinn formaður tók á rás undan blaðamönnum - Næst kosið til stjórnar í mars
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Formaður Agnieszka Ewa Ziólkowska kemur af fundi stjórnarinnar í gær.