Morgunblaðið - 05.11.2021, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2021
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tónskáldið og píanóleikarinn Anna Gréta Sig-
urðardóttir hefur gert það gott í heimi djassins
í Svíþjóð þar sem hún hefur verið búsett í sjö
ár, nánar tiltekið í Stokkhólmi. Hefur hún þar
hlotið bæði verðlaun og tilnefningar til verð-
launa, hlaut til að mynda hin þekktu og virtu
verðlaun kennd við Monicu Zetterlund fyrir
tveimur árum sem eru veitt ungum og upp-
rennandi djasstónlist-
armönnum. Má einnig
nefna að Anna kom
fram við afhendingu
Nóbelsverðlaunanna í
fyrra og í mars á þessu
ári var henni boðið að
halda tónleika í tón-
leikahöll Stokkhólms,
Stockholm Concert
Hall. Þar mun hún einnig fagna útgáfu fyrstu
sólóplötu sinnar, Nightjar in the Northern
Sky, sem kom út fyrir skömmu, á næsta ári.
Frekar feimin til að byrja með
Anna hefur verið virk sem tónskáld og var
m.a. valin í að semja verk fyrir stjörnupíanó-
leikarann Bobo Stenson og Norrbotten Big
Band haustið 2019. Nú flytur hún eigin lög og
texta á fyrstu sólóplötunni, leikur á píanó og
syngur.
Anna er þaulreynd í píanóleik en söngnum
hefur hún ekki spreytt sig á að ráði fyrr en nú
og liggur því beinast við að spyrja hana hvort
það hafi reynst henni auðveld ákvörðun eða
hvort hún hafi þurft að peppa sig upp í að koma
fram sem söngkona,. „Já, já, það var alveg svo-
lítið þannig. Ég fékk þessa hugmynd sumarið
2019, var búin að vera að gæla við að semja lög
með texta og hugsaði með mér að ég ætti að
prófa að syngja þetta sjálf. Ég var frekar feim-
in með þetta fyrst, sendi þetta á systur mína og
hún peppaði mig áfram,“ svarar Anna og segist
í framhaldi hafa haft samband við upptöku-
stjórann Alfreð Finnbogason sem vann svo
plötuna með henni.
Blaðamaður hrósar Önnu fyrir fallegan söng
og spyr hvort hún hafi hlotið einhverja söng-
kennslu eða -leiðsögn. „Nei, í rauninni ekki, ég
sá mest um þetta sjálf,“ svarar Anna, þakkar
hrósið og nefnir svo að Ragnheiður Gröndal,
sem syngi bakrödd með henni í einu lagi, hafi
aðeins hjálpað henni við söngupptökurnar.
„Þetta var mjög gefandi og lærdómsríkt ferli,
myndi ég segja,“ bætir Anna við og á þar við
upptökuferlið í heild sinni.
Spennandi tækifæri
Anna segist hafa farið í marga hringi með
það hvernig hún ætti að vinna plötuna, velt því
fyrir sér hvort hún ætti að vera ein við píanóið
eða með hljómsveit. Hún hafi viljað gera eitt-
hvað með öll þessi lög sín og texta og á endan-
um hafi hljómsveit orðið fyrir valinu og platan
tekin upp eins og djassplata, hljóðfæraleik-
ararnir saman í einu rými í Sundlauginni. All-
ur hljóðfæraleikur var tekinn upp „live“ og
söngupptökum síðar bætt við.
Hljómsveitin var ekki skipuð neinum auk-
visum, þeim Einari Scheving á trommur,
Skúla Sverrissyni á bassa, Hilmari Jenssyni á
gítar, Sigurði Flosasyni á saxófón, Magnúsi
Trygvasyni Eliassen á trommur og Johan
Tengholm á kontrabassa. Þess má geta að sá
síðastnefndi er unnusti Önnu og Sigurður faðir
hennar. Anna er beðin um að lýsa tónlistinni
og segir hún alltaf erfitt að lýsa eigin tónlist.
„Ég myndi segja að þetta sé djass undir áhrif-
um frá „singer/songwriter“, poppi og „indie“,“
segir hún en þýska djassútgáfufyrirtækið
ACT gefur plötuna út og segir Anna það eitt af
þeim merkari í slíkri útgáfu í Evrópu. „Það var
frábært að komast á samning hjá þeim því þeir
skrifa ekki upp á marga samninga á ári,“ segir
Anna. Hún er spurð út í dreifinguna á plötunni
og segir Anna hana mjög góða í Þýskalandi og
að plötunni verði einnig dreift í Evrópu. „Það
er spennandi að fá tækifæri til að dreifa þessu
betur,“ segir Anna en þeir sem vilja hlusta á
plötuna rafrænt geta fundið hana á streymis-
veitum, þeirra á meðal Spotify.
Á auðvelt með að fela sig
Titill plötunnar vísar til sjaldséðs fugls,
náttfara, sem flýgur um himininn í norðri.
„Mér finnst þetta fallegt orð,“ segir Anna um
heiti fuglsins. Hún segist hafa eytt töluverðum
tíma í kófinu á Gotlandi sem sé mikið fugla-
skoðunarsvæði. „Kærastinn minn, Johan
Tengholm, er mikill fuglaskoðari og ég hef
svona aðeins dregist inn í þetta. Við vorum
mikið þar að skoða fugla og m.a. að vinna við
fuglamerkingar,“ segir Anna. Á Gotlandi hafi
þau séð hinn sjaldséða náttfara og henni hafi
þótt fuglinn ágætismyndlíking fyrir leitina að
hinu sérstaka, líkt og gert er í fuglaskoðun og í
listinni. „Maður vonast til að upplifa eitthvað
sérstakt eða einstakt, svolítið eins og þegar
leitað er að ástinni líka,“ bendir Anna á. Erfitt
sé að koma auga á náttfara sem eigi auðvelt
með að fela sig.
En er platan kannski um fugla? „Nei, titil-
lagið er kjarninn í plötunni en svo er farið um
víðan völl í textunum. Þeir eru frekar persónu-
legir, um alls konar sambönd, lífið og tilver-
una, um tímann og svo er eitt lag um andvöku,
það heitir „Sleepless“,“ svarar Anna og er
spurð að því hvort andvaka hafi hrjáð hana
mikið. „Já, ég hef aldrei átt auðvelt með að
sofna, alveg frá því ég var lítil,“ svarar hún
kímin. Hugsanirnar eigi það til að láta hana
ekki í friði þegar hún leggi höfuðið á koddann.
Útgáfutónleikar plötunnar fara fram í febrúar
í Stokkhólmi og vonast Anna til að geta líka
haldið tónleika á Íslandi. Heimasíðu hennar
má finna á vefslóðinni annagreta.is.
Gefandi og lærdómsríkt ferli
- Nightjar in the Northern Sky er fyrsta sólóplata Önnu Grétu Sigurðardóttur - Titillinn vísar
í fuglinn náttfara - Syngur eigin texta - Listin er leit að hinu sérstaka líkt og fuglaskoðun
Ljósmynd/Birna Ketilsdóttir Schram
Hæfileikarík Anna Gréta Sigurðardóttir hefur hlotið verðlaun fyrir listsköpun sína og er bæði hæfileikaríkur píanóleikari og söngkona.
Ferðagarpurinn Erró nefnist sýning sem opnuð
hefur verið í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi.
„Ferðalög eru einkennandi fyrir líf og list Er-
rós. Hann stundaði listnám í Reykjavík, Ósló, Ra-
venna og Florence þar til hann settist að í París
árið 1958 eftir nokkurra mánaða dvöl í Ísrael.
Mörg ferðalög fylgdu þar á eftir og má nefna
sögulegar ferðir til New York í Bandaríkjunum,
Moskvu í þáverandi Sovétríkjunum og Havana á
Kúbu. Ferðalög Errós gegna mikilvægu hlut-
verki í tilurð verka hans. Hvert sem hann fer
sankar hann að sér hundruðum mynda. Hann
nýtir þær í samklippuverk sem smám saman
verða að málverkum. Hugmyndin um ferðalög og
tilfærslur birtist í mörgum verkum, þar sem hann
notar mótíf eins og flugvélar, eldflaugar, lestir,
fugla, hesta eða jafnvel ofurhetjur,“ segir í tilkynningu. Öll verkin eru í eigu
Listasafns Reykjavíkur en sýningin var fyrst sett upp í Listasafninu á Ak-
ureyri fyrr á þessu ári. Sýningarstjóri er Danielle Kvaran.
Ferðagarpurinn Erró í Hafnarhúsi
Ferðalag Eitt verka Errós
sem sjá má á sýningunni.
Breytingar nefnist þriðja árlega
samning Vatnslitafélags Íslands
sem opnuð hefur verið í Galleríi
Gróttu á Eiðistorgi á Sel-
tjarnarnesi. „Alls voru sendar
inn um 200 myndir og í dóm-
nefndinni voru þrír listamenn
sem hafa unnið með vatnsliti.
Dómnefndina skipuðu Daði
Guðbjörnsson, Lóa Hjálmtýs-
dóttir og Lena Gemzøe. Þeim
var falið að velja 63 verk með þemað að leiðarljósi en líka með það að
markmiði að verkin mynduðu góða heild og að þau sýndu vel þá fjöl-
breytni sem vatnsleysanleg efni á pappír geta kallað fram,“ segir í
kynningu. Vatnslitafélag Íslands var stofnað í febrúar 2019. Félagar
eru nú 211 talsins á aldrinum 27 til 95 ára og eru ýmist atvinnumenn
eða áhugamenn í listinni.
Vatnslitafélag Íslands með Breytingar
Fjölbreytni Samsett mynd af nokkrum
verkum eftir félaga í Vatnslitafélagi Íslands.