Morgunblaðið - 11.11.2021, Side 41

Morgunblaðið - 11.11.2021, Side 41
FRÉTTIR 41Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hringdi í gær í Pútín, forseta Rúss- lands, og hvatti hann til að beita sér svo stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi hættu að senda flóttafólk frá Mið- Austurlöndum að landamærum Pól- lands. Rússar hafa áður lagt til að ESB veiti Hvítrússum efnahags- stuðning svo þeir geti tekist á við flóttamannavandann. ESB tekur það ekki í mál þar sem Hvítrússar hafi sjálfir skapað vandann til að ögra ESB-ríkjunum. Íhugar sambandið að herða þær refsiaðgerðir gegn Hvíta-Rússlandi sem í gildi eru vegna mannréttindabrota í landinu. Aðstæður í skóglendinu á milli Pól- lands og Hvíta-Rússlands, þar sem þúsundir flóttamanna frá Mið-Aust- urlöndum hafast við, versna með hverjum deginum. Vetur er að ganga í garð af fullum þunga með hitastigi undir frostmarki, en fólkið, þar á meðal fjöldi barna, kemst hvorki inn fyrir landamæri Póllands né er því leyft að snúa aftur heim. Flóttafólkið dvelur í tjöldum og hefur takmarkaðan matarforða. Nokkrir hafa þegar látist og óttast er að fleiri muni ekki lifa dvölina af. Engu að síður streymir flóttafólk enn að landamærunum með hjálp stjórn- valda í Minsk sem þannig hefna fyrir refsiaðgerðir Evrópusambandsins. Framganga þeirra hefur sætt harðri gagnrýni vestrænna stjórnvalda. Pólsk stjórnvöld sögðu í gær að þau hefðu náð að handsama tugi flóttamanna sem komist hefðu ólög- lega inn í landið frá Hvíta-Rússlandi síðasta sólarhringinn. Víða á landa- mærunum eru margfaldar gadda- vírsgirðingar til að hindra för flótta- manna en þeir hafa beitt klippum á þær til að komast leiðar sinnar. Pólskir landamæraverðir hafa svar- að með táragasi og viðvörunarskot- um. Flóttamennirnir vilja flestir kom- ast áfram til Þýskalands og hafa nær sjö þúsund náð þangað frá því straumurinn að landamærunum hófst fyrir nokkrum mánuðum. Fjölmiðlum hefur reynst mjög erf- itt að afla fregna frá svæðinu vegna fréttabanns sem Pólverjar hafa sett. Íhuga refsiaðgerðir á flugfélög Meðal þess sem ESB íhugar nú til að stöðva flóttamannastrauminn er að beita flugfélög, sem flytja flótta- fólkið til Hvíta-Rússlands frá Mið- Austurlöndum, refsiaðgerðum. ESB hefur löngum verið gagnrýn- ið á margt í stefnu hægristjórnarinn- ar í Póllandi, þar á meðal afstöðu til flóttafólks, en nú virðist sambandið ekki eiga annan kost en að standa með Pólverjum vegna þess hvernig flóttamannastrauminn hefur borið að og vegna þeirra áhrifa sem það mun hafa víðar í Evrópu ef hvítrússnesk stjórnvöld verða látin komast upp með framferði sitt. Hvítrússar reiða sig sem fyrr á stuðning stjórnvalda í Moskvu. Aðstæður versna stöðugt - Þúsundir flóttamanna streyma að landamærum Póllands og Hvíta-Rússlands - Angela Merkel hvetur Pútín til að beita sér og stöðva aðgerðir Hvítrússa AFP Flóttafólk Sextán manna kúrdísk fjölskylda frá Írak, þar á meðal sjö ung börn, eitt fimm mánaða gamalt, er á með- al fjölda flóttamanna í skóglendi við landamæri Póllands og Hvíta-Rússlands. Þau hafa dvalið þar í þrjár vikur. Lögmenn Don- alds Trumps, fyrrverandi for- seta Bandaríkj- anna, hafa áfrýj- að niðurstöðu alríkisdómara frá því á þriðju- dag um að af- henda skuli rannsóknar- nefnd Banda- ríkjaþings öll skjöl sem tengjast fundum og ráðagerðum í Hvíta hús- inu frá 6. janúar sl. þegar æstur múgur fylgismanna Trumps réðst til inngöngu í þinghúsið. Nefndin rannsakar hvort Trump og ráð- gjafar hans hafi borið ábyrgð á árásinni í þeim tilgangi að ógilda úrslit forsetakosninganna. BANDARÍKIN Reynir að stöðva afhendingu skjala Donald Trump Þingið í Nuuk á Grænlandi sam- þykkti í fyrradag að banna alla vinnslu úrans í landinu. Fyrirtæki í eigu kínverskra stjórnvalda hefur verið með áform um að grafa eftir úrani í Kvanefjeldet á suðvest- urhluta landsins Auk úrans er þar marga eftirsótta málma að finna. Úran er meðal annars notað til kjarnorkuvinnslu. Fyrirhugaður námugröftur hefur verið afar um- deildur og var helsta hitamálið í þingkosningum í landinu fyrr á þessu ári. Námusvæðið er í helsta landbúnaðarhéraðinu og hafa íbúar þar lýst áhyggjum af áhrifum úr- anvinnslu á matvælaframleiðsluna. GRÆNLAND Þingið bannar alla vinnslu úrans KVÖLDOPNUN Á GARÐATORGI 11. NÓV. VERIÐ VELKOMIN Á GARÐATORG Í GARÐABÆ Opið til 20:00 í verslunum Frábær stemning Tilboð og léttar veitingar Lifandi jazz á Te & kaffi frá kl. 20 til 22 Skemmtilegar verslanir og frábærir matsölustaðir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.