Morgunblaðið - 11.11.2021, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 11.11.2021, Qupperneq 44
44 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021 Stjörnufræðingur- inn Þorsteinn Sæ- mundsson ritar grein í Morgunblaðið þann 8. nóvember þar sem hann veltir því fyrir sér hvort íslenskir friðarsinnar, sem minnast ár hvert kjarnorkuárásanna á Japan árið 1945, séu nægilega upplýstir um söguna. Óhætt er að róa fræði- manninn með því að fólkið sem gagnrýnir þennan stærsta einstaka stríðsglæp allra tíma er upp til hópa prýðisvel að sér í sagnfræði. Áætlað er að yfir 200 þúsund manns hafi farist í kjarnorkuárás- unum á Hiroshima og Nagasaki, en að auki lést fjöldi fólks síðar af sárum sínum eða úr sjúkdómum af völdum geislavirkni. Þrátt fyrir ólýsanlegan hrylling og blóðbað síðari heimsstyrjaldarinnar komust engar stakar árásir stríðsins í hálf- kvisti við þessa atburði. Fyrstu viðbrögð bandarískra ráðamanna og fjölmiðla við árás- unum einkenndust af hefndar- þorsta. Eyðing borganna tveggja var að margra mati réttmæt refs- ing fyrir framgöngu Japana í stríð- inu og óteljandi ódæðisverk þeirra. Ekki leið þó á löngu uns stjórnvöld í Washington áttuðu sig á afleið- ingum gjörða sinna og hófu í kjöl- farið að réttlæta árásirnar, ekki sem hefnd heldur sem óhjákvæmi- lega aðgerð sem ákveðin var með þungum huga. Henry Stimson, fyrrverandi varnarmálaráðherra BNA, ritaði snemma árs 1947 grein um hvern- ig ákvörðunin um að varpa kjarn- orkusprengjunum hefði verið tek- in. Í skrifum Stimson, sem oft er vitnað til, kom fram sú skoðun að árásirnar hefðu í raun bjargað mun fleiri mannslífum, þar sem reynt var að áætla mannfall ef til innrásar Bandaríkjahers á Japan hefði komið. Þessi túlkun er fyr- irferðarmikil í grein Þorsteins. Sagnfræðingar hafa fundið ýms- ar veilur á þessari röksemda- færslu. Bent hefur verið á að það jaðri við rasísk við- horf að fjalla um Jap- ani sem óseðjandi stríðsvélar sem berð- ust út í rauðan dauð- ann óháð allri skyn- semi. Heimildir í skjalasöfnum hafa leitt í ljós að Japanir voru á barmi upp- gjafar fyrstu daga ágústmánaðar 1945. Þar skipti mestu máli yfirvofandi þátttaka Sovétmanna í stríðinu, en stjórninni í Tókýó leist enn verr á tilhugsunina um sovéskt hernámslið en bandarískt. Einnig má leiða líkum að því að Banda- ríkjamönnum hafi verið mikið í mun að ljúka stríðinu áður en Sovétmenn blönduðu sér í leikinn fyrir alvöru, til að losna við þá frá friðarsamningaborðinu. Eftir á að hyggja er ljóst að það sem öðru fremur seinkaði uppgjöf japanska hersins voru kröfur Bandaríkjamanna um afsögn keis- arans. Slík skilyrði höfðu verið sett gagnvart evrópskum andstæð- ingum bandamanna, en í Japan hafði keisarinn hálfguðlega stöðu. Þegar á hólminn var komið féllust Bandaríkjamenn á að keisarinn héldi völdum, en líklega hefði mátt ljúka styrjöldinni mun fyrr ef sú afstaða hefði legið fyrir. En úr því að uppgjöf Japana var á næsta leiti, hvers vegna kaus þá Truman-stjórnin að beita þessu skelfilega vopni? Svarið við þeirri spurningu er margþætt. Í fyrsta lagi þyrsti marga Bandaríkjamenn í hefndir. Stríðsglæpir japanska hersins voru ærnir og litu ýmsir svo á að með þeim hefðu þeir fyr- irgert öllum rétti sínum þannig að sjálfsagt væri að víkja til hliðar al- þjóðalögum á borð við Genfarsátt- málann. Nokkuð eimir eftir af því viðhorfi í fyrrnefndri grein Þor- steins. Í annan stað hafði Manhattan- áætlunin við þróun kjarnorku- sprengjunnar kostað svimandi fjárhæðir. Hætt var við því að ein- hverjir kynnu að setja spurning- armerki við þá stjórnvísi að hafa eytt öllum þessum fjármunum, tíma og orku í miðri heimsstyrjöld til að þróa vopn sem ekki hefði verið nýtt í stríðinu sjálfu. Hefðu ekki vaknað spurningar eftir á um hvort sigur hefði unnist miklu fyrr ef peningunum hefði ekki verið só- að í vítisvél sem ekki stóð til að nota í raun og veru? Í þriðja lagi er um margt rök- réttara að líta ekki aðeins á sprengjurnar í Hiroshima og Nagasaki sem þær síðustu sem féllu í síðari heimsstyrjöldinni, heldur ekki síður sem þær fyrstu í nýrri styrjöld: Kalda stríðinu. Vit- að er að Hiroshima varð ekki fyrir valinu sem skotmark vegna hern- aðarlegs mikilvægis borgarinnar, raunar þvert á móti. Lítið hern- aðarlegt gildi hennar gerði það að verkum að borgin hafði ekki orðið fyrir viðlíka árásum og aðrar jap- anskar borgir og var því með heil- legasta móti. Skotmarkið var valið til að sýna fram á hámarkseyði- leggingu, ekki sigruðum Japönum heldur verðandi fjendum – Sovét- mönnum. Árásirnar á Hiroshima og Naga- saki voru kaldrifjaðir stríðsglæpir sem framdir voru til að senda skýr skilaboð um hernaðarlega yf- irburði Bandaríkjanna. Nið- urstaðan varð vopnakapphlaup sem enn sér ekki fyrir endann á. Af þessu kapphlaupi hefur leitt að gerð kjarnorkuvopna hefur orðið sífellt einfaldari og ódýrari. Það sem einu sinni var bara á færi öfl- ugustu risavelda með herskörum vísindamanna hefur nú verið leikið eftir af snauðum útlagaríkjum á borð við Norður-Kóreu. Það er hin ömurlega arfleifð glæpaverksins í Hiroshima fyrir rúmum þremur aldarfjórðungum. Eftir Stefán Pálsson »Kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki eru einstakur atburður í mann- kynssögunni sem rétt er að minnast. Stefán Pálsson Höfundur er sagnfræðingur og ritari Samtaka hernaðarandstæðinga. stefapal@gmail.com Lærdómurinn af Hiroshima Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að KRINGLAN - SKÓR.IS VIGOR 3.0 GÖTUSKÓR MEÐ GRIPGÓÐUM GOODYEAR SÓLA Hér eru mikilvægar upplýsingar um spila- kassa fyrir fólk sem þá notar: Spilakassar eru hannaðir af sérfræð- ingum í mannlegri hegðun. Hönnun þeirra miðar að því að nota öll tiltæk ráð til að gera kassana eins ávanabindandi og ómótstæðilega og mannleg þekking á viðfangsefninu gerir okkur kleift. Sá sem hannar mest ávanabindandi spilakassann stendur sig best í sinni vinnu. Þeir eru byggðir upp á blekkingum og tálsýnum til að hafa af þér eins mikið fé og er mögulega hægt. Það er til- gangur og virkni þeirra. Skjár kass- ans lýsir ekki innri virkni hans, skjárinn er ekki að myndbirta það sem gerist innra með honum. Skjár- inn er blekking. Þegar það virðist sem maður hafi „næstum unnið“ þá er það ekki svo heldur er markmiðið að láta þér líða þannig að „þetta sé alveg að koma“. Þú hefur enga stjórn á útkomunni, sama hvað þú gerir; sama hvort eða hvernig þú ýt- ir á skjáinn eftir að leikur er hafinn þá hefur það engin áhrif á útkom- una. Tilfinning um stjórnun er blekking. Líkurnar á vinningi eru ávallt þær sömu og þær eru þér ekki í hag. Tölvan reiknar einfaldlega tölu af handahófi með slembitölu- gjafa (e. random number generator) og það ákvarðar útkomuna í hvert sinn. Kassinn heldur ekki tölu um vinninga og tap, hann geymir ekki vinninga og er aldrei fullur eða tóm- ur af peningum. Því hver leikur í kassanum er sjálf- stæður leikur, óháður fyrri leikjum; það heitir „sjálfstæði atburða“. Því færist maður aldrei nær vinningum, það er blekking. Hann er samt hannaður til að láta þig halda að þú getir með einhverju móti haft áhrif á útkomuna; það heitir „tálsýnin um stjórn“. Fjárhættuspil eru ávallt sett upp út frá þessum tveimur reglum: Að hver leikur sé sjálfstæður atburður, óháð- ur fyrri leikjum og að þú hafir enga stjórn á útkomunni. Annars væru það ekki fjárhættuspil og þá væri hægt að læra að græða á þeim. Þá væri skynsamlegt að stunda fjár- hættuspil og naskur leikmaður gæti grætt á þeim með því að beita réttri aðferð. Það er hins vegar ekki svo, hönnuðir spilakassanna sjá til þess. Ef þú vilt hætta að spila geturðu haft samband á spilavandi@saa.is, aðstandandi einstaklings með spila- vanda á fjolskylda@saa.is og að- standendur yngri en 18 ára geta haft samband við sálfræðiþjónustu barna. Spilakassarnir blekkja Eftir Pál Heiðar Jónsson Páll Heiðar Jónsson » Spilakassarnir eru byggðir upp á blekk- ingum og tálsýnum til að hafa af þér eins mikið fé og er mögulega hægt. Það er tilgangur og virkni þeirra. Höfundur er sálfræðingur. Ég hef haft efasemd- ir um gagnsemi hinnar svokölluðu borgarlínu. Held að sú línulega of- urlausn eins og hún er kynnt, sé alls ekki það sem nútíminn er að kalla eftir í sam- göngum, hvað þá fram- tíðin. Ég ætla ekki að fjalla um fyrirferðina sem ráðgert er að borgarlínan eigi eftir að hafa í umferðinni, né fram- kvæmdakostnaðinn sem á eftir að hlaupa yfir hundrað milljarða og heldur ekki rekstrarkostnaðinn sem enginn hefur útskýrt hver eða hvernig eigi að borga. Aðrar hugmyndir má ekki ræða Ég er hins vegar hugsi yfir hvers vegna ekki megi ræða, hvað þá skoða aðrar lausnir í almennings- samgöngum. Hópur reyndra fag- og fræðimanna í samgöngum hafa reynt að kynna hugmyndir sínar um léttara, hagkvæmara og skilvirkara samgöngukerfi, en fengið lítinn hljómgrunn. Önnur hugsanleg lausn sem gæti verið viðbót við slakar al- menningssamgöngur á höfuðborg- arsvæðinu eru hugmyndir Pant, sem er sérsniðin akstursþjónusta fyrir félagsþjónustur á höfuðborg- arsvæðinu. Þjónusta sem hefur sannað gildi sitt og er rekin af Strætó. Þar skiptir sveigjanleiki, hagkvæmni og skil- virkni mestu. Útvíkkun á reyndri þjónustu Forsvarsmenn Pant hafa kynnt hugmyndir um útvíkkun á sinni þjónustu, en þær sömuleiðis hafa ekki fengið athygli hjá sveitarstjórnarfólki á svæðinu. Mér finnast þær hins vegar áhuga- verðar og skoð- unarverðar. Meðal verkefna sem Pant gæti sinnt umfram núverandi þjónustu, þ.e. akstri fyrir fatlaða og aldraða, væri akstur utan álagstíma, úthverfaakstur, akstur fyrir starfs- fólk fyrirtækja og stofnana, sjúkra- húsaakstur, akstur fyrir heimaþjón- ustu og síðan landsbyggðaakstur. Pant gæti þannig verið sú viðbót í almenningssamgöngum sem nútím- inn og framtíðin kallar eftir, með smærri bílum sem falla betur að nú- verandi samgönguinnviðum og um leið auknum sveigjanleika. Pant er auðvelt í notkun, farþegar panta sér ferðir með einföldum rafrænum hætti og Pant sér síðan um að flytja farþega sína frá nánast hvaða stað sem er til nánast hvaða staðar sem er. Auðvitað þarf að útfæra þessa útvíkkun á starfsemi Pant, en auð- velt ætti að vera að byggja á þeirri góðu og reyndu þjónustu sem fyrir- tækið hefur veitt fötluðum og öldr- uðum hingað til. Þess vegna vil ég kalla eftir því að sveitarstjórnarfólk á höfuðborgarsvæðinu skoði með opnum huga möguleikana á útvíkk- aðri starfsemi Pant. Ekki síst í því ljósi að núna virðast sveitarfélögin ekki ætla að setja neitt fjármagn í borgarlínuna í fjárhagsáætlunum sínum sem verið er að kynna, hvorki í uppbyggingu né rekstur á næstu árum. Fyrirsögn greinarinnar er auðvit- að bara skemmtilegur orðaleikur, en er ætlað að skýra áhuga minn á að fleiri útfærslur á almennings- samgöngum á höfuðborgarsvæðinu verði skoðaðar, heldur en bara ein þunglamaleg ofurlausn, sem ég held að leysi engin vandamál. Bestu sam- göngukerfin byggja á að fólk hafi frelsi til að velja sjálft sinn sam- göngumáta. Þá þarf að huga að fjöl- breytni og sveigjanleika. Skoðum hvort Pant sé hugsanlega með lausnirnar. Öll viljum við bæta al- menningssamgöngur. Eftir Örn Þórðarson » Pant gæti sinnt akstri utan álags- tíma, úthverfaakstri, akstri fyrir starfsfólk fyrirtækja og stofnana, auk sjúkrahúsa- og heimaþjónustuakstri. Örn Þórðarson Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og áhugamaður um bættar samgöngur. Pant ekki borgarlínu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.