Morgunblaðið - 11.11.2021, Page 53

Morgunblaðið - 11.11.2021, Page 53
MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021 ✝ Guðrún Ragna Valdimarsdótt- ir, eða Stella, var fædd 22. september 1923 í Reykjavík. Hún lést á hjúkr- unarheimili Hrafn- istu, Sléttunni, 2. nóvember 2021. Stella var dóttir hjónanna Ástu Ei- ríksdóttur (f. 2.6. 1898, d. 19.8. 1976) og Valdimar Sveinbjörns Stef- ánssonar (f. 2.10. 1896, d. 14.08. 1993). Hún var næstelst í sex systkina hópi. Elstur var Guð- mundur Birgir, þá kom Stella, síðan Sesselja (Dedda), næst Er- ling, síðan Guðbjörg Kristín (Bubba) og yngstur er Stefán Gylfi. Guðbjörg Kristín og Stef- án Gylfi eru einu eftirlifandi systkinin. eru: Gunnar Óðinn Einarsson (f. 15.5. 1968) og Stella Ragna Ein- arsdóttir (f. 27.8. 1975, d. 12.10. 2011). 3) Valdimar Sveinbjörn (f. 22.2. 1951, d. 20.6. 1969). Barna- barnabörn Stellu eru níu talsins. Stella gekk í Austurbæj- arskóla, fór þaðan í Verzl- unarskóla Íslands og síðan í Húsmæðraskóla Reykjavíkur. Stella ólst upp í Reykjavík, fyrst á Laugavegi 67 og síðar á Leifs- götu 11. Stella var heimavinn- andi meðan börn þeirra Gunn- ars voru lítil en starfaði síðar við verslunarstörf. Fyrst starf- aði hún í Húsgagnahöllinni en síðan í Bláskógum. Eftir það starfaði hún í Mæðrabúðinni og að lokum í Ólympíu. Stella og Gunnar hófu búskap sinn á Leifsgötu 11 en þau flutt- ust síðar í Mávahlíð 43. Eftir andlát Gunnars fluttist Stella á Sléttuveg 17 þar sem hún bjó allt fram til mars 2020 þegar hún flutti á hjúkrunarheimilið Sléttuna þar sem hún lést. Útför Stellu fer fram í Há- teigskirkju í dag, 11. nóvember 2021, kl. 13. Stella giftist eig- inmanni sínum, Gunnari Jónssyni (f. 19.5. 1918, d. 17.3. 1987) þann 18.7. 1942. Varð þeim þriggja barna auðið: 1) Björn (f. 10.12. 1942) kvænt- ur Arndísi Ármann (f. 9.5. 1943). Börn þeirra eru: Margrét Ármann (f. 10.10. 1965) gift Halldóri Jenssyni (f. 19.1. 1964), Valdimar Ármann (f. 6.4. 1970), sambýlismaður hans er Gunnar Friðrik Eð- varðsson (f. 1.1. 1985) og Stella María Ármann (f. 10.4. 1978) gift Sigurði Stefánssyni (f. 16.9. 1976). 2) Ásta Gunnarsdóttir (f. 30.8. 1944) gift Einari Sigurðs- syni (f. 6.10. 1934, d. 10.12. 1999). Þau skildu. Börn þeirra Elsku hjartans amma mín er búin að kveðja þennan heim og er á leið í sólskinslandið að hitta afa og Valla og eflaust marga aðra sem þrá að hitta hana aftur. Amma Stella var einstök mann- eskja og vita það allir sem kynnt- ust henni. Hún var einstaklega geðgóð manneskja, hláturmild og hlý og laðaði fólk að sér enda hafa vinkonur mínar sagt að þær hafi litið á hana sem „pínulítið“ sína ömmu líka. Amma þreyttist ekki á að segja mér sögur af mér þeg- ar ég var lítil en hún var dugleg að passa mig en ég var fyrst af barnabörnunum hennar að skríða inn í þennan heim. Það er yndislegt að ylja sér við þær sög- ur núna því annars væru þær fallnar í gleymskunnar dá. Hún sagði mér oft þá sögu að ókunnugt fólk hefði haldið að hún væri mamma mín því amma var svo ungleg alla tíð að ég held að ég sé hrukkóttari en hún var und- ir það síðasta. Þegar ég eignaðist börnin mín tvö með stuttu milli- bili var amma alltaf fyrsta mann- eskjan til að koma til mín og hjálpa mér með krakkana. Þegar maðurinn minn fór í vinnuferðir erlendis flutti amma alltaf til mín því hún vissi að ég væri svo myrk- fælin og svaf uppi í rúmi hjá mér og gríslingarnir mínir á milli okk- ar. Amma var börnunum mínum mikil amma því hún var svo oft heima hjá mér og dekraði við börnin mín út í hið óendanlega enda kalla þau hana ömmu enda var hún miklu meiri amma þeirra en langamma. Við amma fórum í óteljandi gönguferðir saman með krakkana mína þegar þau voru lítil og spjölluðum þá um heima og geima og enduðum oft á kaffi- húsi. Amma var mikill göngu- garpur og gekk alla tíð í vinnuna eða nýtti strætó þar sem hún keyrði ekki bíl þrátt fyrir að vera með bílpróf. Hún hafði gaman af allri hreyfingu enda sýndi hún leikfimi og steppdans á sínum yngri árum. Hún var heldur ekki langt undan þegar krakkarnir mínir voru að keppa í samkvæm- isdansi því hún kom alltaf og fylgdist með þeim og sat helst al- veg upp við gólfið til að sjá sem best. Amma vann í Húsgagna- höllinni og í Bláskógum og undi sér vel þar. Ein af sögum ömmu var að hún hefði verið að afgreiða mann fyrir jólin sem var að kaupa kommóðu fyrir konuna sína í jólagjöf en þegar hann gekk frá kaupunum ákvað hann að kaupa tvær kommóður sem voru þá fyr- ir eiginkonuna og svo hjákonuna og hann hvíslaði í eyrað á ömmu að senda kommóðuna í leyni til hjákonunnar. Hann bað ömmu um trúnað og hún sagði okkur aldrei frá nafninu heldur sagði okkur bara þessa sögu og hló dill- andi hlátri í kjölfarið. Við héldum að amma myndi enda starfsævina sína í Mæðrabúðinni en aldeilis ekki enda höfðu foreldrar mínir þá stofnað barnafataverslun í Kringlunni á svipuðum tíma og hún hætti í Mæðrabúðinni. Amma Stella mætti upp í Kringlu eins og herforingi nokkra daga í viku og seldi barnaföt eins og enginn væri morgundagurinn og naut ég þess að vinna með henni þar um tíma. Elsku dásamlega amman mín, það sem ég sakna þín. Þú varst svo mikið best og settir þig aldrei í dómarasætið þegar við ræddum málin. Þú umvafðir mig og mína litlu fjölskyldu ást og umhyggju. Takk fyrir allt, hjartans amma mín. Hjartans knús, Margrét Ármann. Elsku fallega besta amma mín, nú ertu farin frá okkur. Einhvern veginn varstu eilíf í mínum huga og er því skrýtið að vera að kveðja þig í hinsta sinn. Betri ömmu hefði ég ekki getað hugsað mér. Þú varstu alltaf svo jákvæð og hlý. Ástin frá þér var sterk og mikil og fann maður hversu stolt og ánægð þú varst með okkur öll. Í hvert sinn sem ég hitti þig sagð- ir þú mér hversu yndisleg þér fannst ég, hve ánægð þú værir með Sigga minn og hversu fal- lega og yndislega drengi við ætt- um. Elsku besta amma mín, mér fannst svo gaman að hlusta á þig segja frá því þegar þú varst lítil stelpa og dansaðir, steppaðir og stundaðir fimleika. Þú elskaðir fallega tónlist og hlustaðir hug- fangin á hana. Þú varst algjör nagli sem varst klifrandi upp á stól langt fram á tíræðisaldur enda hélstu þér ungri með morg- unleikfimi, göngum, jákvæðni og hlátri. Þú varst alltaf svo fín til fara, vel greidd og lést sko ekki sjá þig án augabrúna. Þér fannst ekkert leiðinlegt að heyra hvað fólki fannst þú ungleg enda trúðu fæstir aldurstölunni þinni. Þú varst alltaf til í knús og kossa og vildir alltaf fá koss beint á munn- inn. Elsku besta amma mín, ég var svo stolt af þér og að fá að bera nafnið þitt. Ég sagði við þig að mig langaði að vera eins og þú enda varstu elsku besta amma mín með hjarta úr gulli. Kysstu og knúsaðu fólkið okkar hinum megin enda eru margir þar sem þú hefur saknað. Elska þig alltaf. Þín, Stella María. Elsku hjartans langamma okkar, nú ert þú farin frá okkur og í huga okkar erum við þess fullviss að langafi tekur á móti þér opnum örmum. Hjartað okk- ar er kramið þessa dagana en við erum svo heppin að eiga fullt af góðum minningum um þig sem er svo ótrúlega dýrmætt. Langamma var alltaf svo já- kvæð og lífsglöð. Okkur þótti allt- af mjög gaman að koma í heim- sókn og jákvæðnin hennar var mjög drífandi fyrir okkur. Sama í hvaða skapi maður kom í til henn- ar fórum við alltaf brosandi, glöð og steppandi kát heim. Þá var sérstaklega notalegt að sitja hjá henni, borða heimabakaðar pönnukökur og sjá hana ljóma við að segja sögur frá fimleikunum, steppdansinum og æskunni. Það var alltaf svo hreint og fínt heima hjá henni á Sléttuveginum og hafði hún gaman af því að fegra heimili sitt með skrauti og mun- um. Það var einstaklega gaman að koma til hennar yfir jólatím- ann þar sem hún skreytti heimilið sitt ákaflega vel og mikið þar sem hún var nú algjört jólabarn. Þótt jól flestra landsmanna byrji í Ikea, byrjuðu jólin okkar hjá ömmu Stellu. Amma var líka al- gjör nammigrís og elskaði hún að fara í ísbíltúra og spjalla um dag- inn og veginn. Hún amma var líka algjör drottning og sama hvert tilefnið var þá tókst henni alltaf að vera glæsilegust. Amma var einstök kona og var hennar helsti eiginleiki að hún var hjartahlý og þótti vænt um alla. Hún var klár- lega uppáhaldsmanneskja allra þar sem jákvæðni hennar og gleði smitaðist út frá henni. Við þökkum ömmu fyrir sam- fylgdina er við kveðjum hana nú í hinsta sinn og erum við þess full- viss að henni verður tekið opnum örmum á himnum. Við þökkum fyrir allt og allt. Guð blessi sál elsku lang- ömmu. Þín langömmubörn, Arndís Ármann Halldórs- dóttir, Ágúst Ármann Sig- urðsson, Björn Ármann Halldórsson, Inga Rán Ár- mann, María Ármann, Míra Katrín Stelludóttir, Tómas Ármann Sigurðsson, Valdi- mar Ármann Sigurðsson. Kynni okkar við Guðrúnu Rögnu, sem ætíð var kölluð Stella, hófust fyrir um 60 árum þegar Arndís og Björn, sonur Stellu og Gunnars heitins, fóru að stinga saman nefjum. Það voru ekki eingöngu barnabörn og barnabarnabörn Stellu sem köll- uðu hana ömmu, heldur kölluðum við öll hana ávallt ömmu Stellu. Amma Stella var sannur sól- argeisli að utan sem innan. Hún var alltaf í góðu skapi, alltaf já- kvæð og alltaf brosandi. Hún hafði einstaklega góða nærveru og var afar barngóð. Amma Stella var með okkur í öllum fjöl- skylduboðum. Hún mætti ævin- lega fyrst, alltaf vel tilhöfð og lýsti upp svæðið með sínu fallega brosi og dillandi hlátri. Amma Stella var ung í anda, bæði minnug og mannglögg. Hún var heilsuhraust og skýr í hugs- un. Þolinmóð með eindæmum. Minnisstætt er þegar hún leyfði Bjössa syni sínum að æfa á trommusettið sitt heima í stofu og oftar en ekki voru allir hljóm- sveitarfélagar hans mættir inn á stofugólf til að spila. Fyrst í stað starfaði amma Stella sem húsmóðir og dvaldi þá oft yfir sumartímann í sumarbú- stað tengdaforeldranna við Þing- vallavatn ásamt börnum sínum. Síðar hóf hún verslunarstörf og starfaði lengst af hjá Húsgagna- höllinni við góðan orðstír. Samband hennar og Ástu dótt- ur hennar var afar náið. Þær fóru ekki áfallalaust í gegnum lífið en stóðu ávallt saman í gegnum súrt og sætt og gerðu allt hvor fyrir aðra. Ásta á hrós skilið fyrir hvað hún annaðist móður sína vel. Aðr- ir fjölskyldumeðlimir voru henni einnig afar tryggir. Við þökkum fyrir allar þær yndislegu stundir sem við feng- um að njóta með ömmu Stellu og vottum fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúð. Amma Stella var einstök manneskja. Sannkölluð perla sem verður saknað. Blessuð sé minning hennar. Ágúst M. Ármann Anna María Kristjánsdóttir Magnús Ármann Sigþrúður Ármann. Guðrún Ragna Valdimarsdóttir Sálm. 86.5 biblian.is Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum sem ákalla þig. Við aðstoðum þig við gerð viljayfirlýsingar um útför þína af nærgætni og virðingu – hefjum samtalið. Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is Hinsta óskin Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför okkar hjartfólgnu BIRNU SESSELJU FRÍMANNSDÓTTUR, áður kennara á Hvolsvelli og í Hveragerði, sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn 23. október. Starfsfólki Báruhrauns á Hrafnistu eru færðar þakkir fyrir umönnun sína og nærfærni og einnig þeim ættingjum og vinum sem gáfu sér tíma frá önnum daglegs lífs til þess að heimsækja Birnu og stytta henni stundir. Matthías, Ragnheiður Málfríður Klara og Kolbrún Kristiansen tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall og útför ástkærs sonar, bróður, barnabarns, barnabarnabarns og frænda, AXELS JÓSEFSSONAR ZARIOH, sem lést af slysförum í Vopnafirði 18. maí 2020. Sérstakar þakkir til björgunarsveita og lögreglu og þeirra sem að leit hans komu. Katrín Sjöfn Sveinbjörnsd. Jósef Zarioh Brynjar Karl, Alexandra Heiða, Aðalheiður Lára og Sveinbjörn Tumi Kristjana Þráinsdóttir Önundur S. Björnsson Aðalheiður Baldvinsdóttir Mohamed Zarioh Sigrún Jóhannsdóttir og frændsystkini Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, EMILÍA LILJA AÐALSTEINSDÓTTIR frá Hrappsstöðum í Dalabyggð, síðast til heimilis í Gullsmára 9, Kópavogi, lést sunnudaginn 31. október. Kveðjustund verður frá Fossvogskirkju í dag, fimmtudaginn 11. nóvember, klukkan 15. Hlekkur á streymi: www.sonik.is/emilia. Leifur Steinn Elísson Sveinbjörg Júlía Svavarsdóttir Bjarnheiður Elísdóttir Kári Stefánsson Alvilda Þóra Elísdóttir Svavar Jensson Gilbert Hrappur Elísson Guðrún Vala Elísdóttir Arnþór Gylfi Árnason og fjölskyldur Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, INGVI THEÓDÓR AGNARSSON, Fýlshólum 5, Reykjavík, lést á hjartadeild Landspítalans 19. október. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjartadeildar Landspítalans. Margrét Bára Sigmundsdóttir Ólafur Hólm Theódórsson Erla Björk Theódórsdóttir Margrét Lísa Ingimarsdóttir Anna Lísa Ólafsdóttir Sindri Már Ingimarsson Dagmar Agnarsdóttir Kristín Agnarsdóttir Agnar Agnarsson og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.