Morgunblaðið - 11.11.2021, Page 62
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Tónlistarkonan ástsæla Katrín Hall-
dóra Sigurðardóttir heillaði sann-
arlega hjörtu landsmanna í hlutverki
sínu sem söngkonan Elly Vilhjálms í
söngleiknum Elly en hún hefur nú gef-
ið út sína fyrstu sólóplötu og heldur út-
gáfutónleika fyrir plötuna laugardag-
inn 13. nóvember næstkomandi í
Norðurljósasal Hörpu.
„Þetta er plata sem ég hannaði
þannig að fólk geti setið og hlustað á
lögin og flett textabókinni,“ sagði
Katrín Halldóra í viðtali í morgun-
þættinum Ísland vaknar.
„Þetta eru þessi gömlu klassísku
lög. Ég náttúrlega elska að syngja
þessi lög. Lögin hans Jóns Múla með
textum bróður hans, Jónasar Árna-
sonar, eru perlur,“ sagði hún.
„Lögin eru ekkert án þessara fal-
legu texta. Þetta eru svo fallegir textar
og fyndnir. Það er hnyttni í þeim. Ég
hefði ekki getað gefið þetta úr nema
hafa textabókina með. Þetta er bara
jólagjöfin í ár get ég sagt þér,“ sagði
Katrín Halldóra kímin en hún segir
plötuna þannig að hún geti bara rúllað.
„Svo kósí lög og allir þekkja þetta,“
sagði Katrín Halldóra sem kveðst hafa
verið í mestu vandræðum með að velja
lög á plötuna en á henni eru tíu lög.
„Þessi lög eru orðin ein af okkar
helstu dægurlögum í dag,“ sagði hún.
„Live-fílingur“ í stofuna
„Við tókum hana [plötuna] á tveim-
ur dögum í lifandi flutningi svo það er
vonandi svona „live-fílingur“ sem fólk
fær yfir til sín inn í stofu,“
sagði Katrín Halldóra sem
segir að hvert lag hafi ver-
ið tekið upp þrisvar eða
fjórum sinnum og svo hafi
besta takan verið valin á
plötuna. Þá lýsti hún töfr-
unum sem eiga sér stað
þegar öll tónlistin, hljóð-
færin og söngurinn, er tekin upp á
sama tíma í lifandi flutningi í stað þess
að skipta upptökunum niður og setja
saman síðar.
„Þarna vorum við bara öll saman en
hvert í sínu rýminu, einangruð, og tók-
um þetta upp,“ sagði Katrín.
Geisladiskurinn með „comeback“
Katrín Halldóra gaf plötuna bæði út
á streymisveitum, á geisladiski og á
von á sendingu af vínilplötum á næst-
unni. Hún viðurkennir að það hafi
komið á óvart hversu mikið geisladisk-
arnir hafi selst en hún er sem stendur
að láta framleiða fleiri.
„Ég var alveg viss um að geisla-
diskur myndi ekkert seljast í dag. En
núna er ég að láta framleiða fleiri ein-
tök vegna þess að geisladiskurinn er
með svona svakalegt „comeback“. Það
er fólk þarna úti sem á ekki „blueto-
oth“-hátalara og hlustar bara á geisla-
diska og er með geisladiskaspilara í
bílnum. Mér þykir svo vænt um þetta,“
sagði Katrín Halldóra.
Smella eins og „flís við rass“
Páll Óskar syngur með Katrínu á
plötunni í tveimur lögum en hún segir
hann sannkallaðan „gullbarka Ís-
lands“.
Syngur hann með henni
í lögunum Undir stórastein
og Ástardúett. „Við höfum
sungið saman áður og það
er eitthvað sem gerist þeg-
ar við syngjum saman.
Raddirnar okkar eru ein-
hvern veginn báðar á svip-
uðu „registeri“ og við „fraserum“ rosa-
lega svipað svo þær smella eins og flís
við rass,“ útskýrði Katrín Halldóra og
uppskar hlátur í stúdíóinu.
„Gleyma stund og stað“
Páll Óskar mun koma fram með
Katrínu á útgáfutónleikum hennar á
laugardag en hún verður einnig með
sjö manna band með sér á sviði.
„Það er öllu tjaldað til,“ sagði Katrín
Halldóra sem segir að vel verði hugað
að sóttvörnum í Hörpu.
„Það er hátt til lofts og vítt til
veggja. Allir eru með grímu. Það er
passað vel upp á fólkið,“ sagði hún en
hún hvetur fólk til að koma og gleyma
stund og stað í smá stund og njóta tón-
listarinnar.
Hægt er að nálgast miða á útgáfu-
tónleikana á tix.is. Tvennir tónleikar
verða 13. nóvember, klukkan 17:00 og
19:30, en uppselt er á seinni tón-
leikana.
Lögin ekkert án textanna
Katrín Halldóra Sigurð-
ardóttir er orðin ein
ástsælasta söngkona
landsins en hún hefur nú
gefið út sína fyrstu sóló-
plötu með klassískum
dægurlögum eftir Jón
Múla en hún segir lögin
ekki vera neitt án texta
Jónasar Árnasonar.
Tóna saman Páll Óskar syngur tvö lög með Katrínu Halldóru á plötu henn-
ar en hún segir raddir þeirra passa einstaklega vel saman.