Morgunblaðið - 08.11.2021, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2021
Blómlegt Þessi vígalegi köttur unni sér vel í gróðurhúsi húsbónda síns í Hveragerði sem fullt er af jólastjörnum um þessar mundir. Kötturinn virðist þó veita blómunum litla athygli.
Óttar Geirsson
Í nýlegri könnun
læknaráðs Landspítala
og Læknafélags Ís-
lands (LÍ) meðal lækna
sjúkrahússins kom
fram að innan við þriðj-
ungur taldi mönnun
vera fullnægjandi og
tryggja öryggi sjúk-
linga öllum stundum á
sinni starfseiningu.
Þótt áríðandi sé að
bregðast við slíku nú þegar verður
einnig að hyggja að því hvernig
tryggja má að heilbrigðiskerfið verði
sjálfbært um læknisþjónustu þegar
til lengri tíma er litið.
LÍ hefur unnið að gerð spálíkans
fyrir mannaflaþróun lækna á Íslandi
til ársins 2040. Miðað við forsendur í
dag er útlit fyrir að gjá myndist milli
eftirspurnar og framboðs á læknum
á komandi árum. Þannig eru vís-
bendingar um að það muni vanta 128
lækna árið 2030, 213 árið 2035 og 251
lækni árið 2040 ef ekkert verður að
gert. Þessi svipmynd kemur ekki á
óvart þó í dag sé fjöldi lækna á
hverja 100.000 íbúa nálægt meðal-
lagi hjá Evrópuþjóðum samkvæmt
tölfræði Eurostat frá árinu 2018.
Það er vel þekkt staðreynd að aðeins
hluti landsmanna hefur sinn heim-
ilislækni og aðgengi að sérgreina-
þjónustu hefur verið að skerðast og
biðlistar að lengjast, bæði hjá opin-
berum heilbrigðisstofnunum og
sjálfstætt starfandi sérgreinalækn-
um. Ástandið skv. spá-
líkaninu mun aðeins
halda áfram að versna.
Við gerð mannafla-
spárinnar er horft til
ýmissa þátta, t.d.
breytinga á aldurs-
samsetningu þjóð-
arinnar. Spáin gerir
ráð fyrir því að 65 ára
og eldri vegi þyngra í
eftirspurn eftir heil-
brigðisþjónustu en þeir
sem eru yngri. Mann-
fjöldaspá Hagstof-
unnar er lögð til grundvallar fyrir
hlutfall 65 ára og eldri af heildar-
mannfjölda á komandi árum. Þá er
tekið mið af áætluðum breytingum í
læknahópnum. Þar skiptir meg-
inmáli nýliðun í hópnum og aldurs-
dreifing. Fjöldi íslenskra lækna sem
lýkur námi frá Háskóla Íslands og
frá erlendum háskólum. Hlutfall
þeirra sem stunda framhaldsnám
hérlendis og þeirra sem kjósa að
fara utan til framhaldsnáms. Hlut-
fall þeirra sem setjast að erlendis.
Þá er horft til núverandi aldurs-
samsetningar læknahópsins og hlut-
falls þeirra sem fara á eftirlaun á
næstu árum. Bæði þeirra sem starfa
á Íslandi og hópsins erlendis sem nú
dvelur þar í námi og við störf. Hægt
er að skoða mismunandi svipmyndir
í mannaflaþróun með aðstoð líkans-
ins.
Sérnám á Íslandi
Þegar horft er til framtíðar er
lykilatriði að íslenskt heilbrigð-
iskerfi sé sjálfbært um mannauð á
hverjum tíma. Á nýafstöðnum aðal-
fundi LÍ var samþykkt áskorun til
heilbrigðisyfirvalda um að tryggja
og skilgreina framlag til kennslu- og
vísindaþáttar heilbrigðiskerfisins í
fjárlögum með skýrum hætti. Þar
skiptir uppbygging framhaldsnáms í
sérgreinum læknisfræðinnar miklu
máli.
Sérnám í læknisfræði á Íslandi
hefur þróast hratt á undanförnum
árum. Nú er sérnám veitt í mörgum
grunngreinum lækninga á Íslandi í
samræmi við alþjóðleg gæðaviðmið.
Læknum í sérnámi á Íslandi hefur
fjölgað hratt á undanförnum árum,
eða um að minnsta kosti 40% frá
árinu 2015, og enn meira ef aðeins er
horft til viðurkennds sérnáms. Þetta
er afar jákvæð þróun, sem tryggir
vaxandi hæfni og sjálfbærni í mönn-
un til framtíðar. Í síðasta kjara-
samningi lækna var m.a. tekið tillit
til þessarar þróunar og launhækk-
anir þessa hóps voru umfram aðra
læknahópa til að styðja við þessa
þróun og uppbyggingu. Kostnaður
sem tengist sérnámi lækna felst að
langmestu leyti í launakostnaði. Til
þessa hefur ekki verið um sérstakar
fjárveitingar að ræða heldur hefur
sérnám verið misvel skilgreindur
hluti daglegs rekstrar hlutaðeigandi
stofnana. Úr því þarf að bæta.
Nauðsynlegt er að skilgreina fjár-
magn til sérnáms lækna, ekki síst
svo hægt sé að stýra því hvernig
fjárveitingar eru nýttar í samræmi
við þarfagreiningar, mannaflalíkön
og gæðaeftirlit, en einnig til að
tryggja að tímabundnar sveiflur í
rekstri íslenskra heilbrigðisstofnana
hafi ekki ófyrirsjáanleg áhrif á
mönnun heilbrigðiskerfisins á næstu
áratugum.
Alþjóðlegur samanburður
Líkan LÍ og mannaflaspá bendir
til að miðað við hækkandi hlutfall
einstaklinga í aldurshópum sem
þurfa meira aðgengi að heilbrigðis-
þjónustu gæti skapast alvarlegur
skortur á læknum á komandi árum
og áratugum á Íslandi. Við því þarf
að bregðast og krefst virkrar íhlut-
unar stjórnvalda. Fram hjá því verð-
ur ekki horft að ófullnægjandi fjár-
mögnun og mönnun, auk vaxandi
álags, bitnar á þekkingar- og ný-
sköpunarmöguleikum. Rannsókna-
tækifæri og vísindastarf eru talin
mikilvægur þáttur í framhaldsnámi
sem þarf að standast alþjóðlegan
samanburð eins og sérnámi lækna.
Að meta nýjungar og rannsóknir er
lúta að meðferð og greiningu er hluti
af grunnfærni sem krafist er af
læknum. Með uppbyggingu sérnáms
lækna búum við til sterkt þjónustu-
og þekkingarsamfélag háskóla- og
heilbrigðiskerfisins og stuðlum að
sjálfbærni og tryggjum mannauð til
framtíðar.
Eftir Reyni
Arngrímsson
» Spálíkan til 2040
bendir til vaxandi
læknaskorts. Áhrif á
sjálfbærni heilbrigðis-
kerfisins og skert að-
gengi að þjónustu er
svipmynd sem blasir við.
Reynir Arngrímsson
Höfundur er formaður Læknafélags
Íslands.
Hvað þarf marga lækna á Íslandi –
mannaflaspá til 2040