Morgunblaðið - 08.11.2021, Síða 15

Morgunblaðið - 08.11.2021, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2021 Blómlegt Þessi vígalegi köttur unni sér vel í gróðurhúsi húsbónda síns í Hveragerði sem fullt er af jólastjörnum um þessar mundir. Kötturinn virðist þó veita blómunum litla athygli. Óttar Geirsson Í nýlegri könnun læknaráðs Landspítala og Læknafélags Ís- lands (LÍ) meðal lækna sjúkrahússins kom fram að innan við þriðj- ungur taldi mönnun vera fullnægjandi og tryggja öryggi sjúk- linga öllum stundum á sinni starfseiningu. Þótt áríðandi sé að bregðast við slíku nú þegar verður einnig að hyggja að því hvernig tryggja má að heilbrigðiskerfið verði sjálfbært um læknisþjónustu þegar til lengri tíma er litið. LÍ hefur unnið að gerð spálíkans fyrir mannaflaþróun lækna á Íslandi til ársins 2040. Miðað við forsendur í dag er útlit fyrir að gjá myndist milli eftirspurnar og framboðs á læknum á komandi árum. Þannig eru vís- bendingar um að það muni vanta 128 lækna árið 2030, 213 árið 2035 og 251 lækni árið 2040 ef ekkert verður að gert. Þessi svipmynd kemur ekki á óvart þó í dag sé fjöldi lækna á hverja 100.000 íbúa nálægt meðal- lagi hjá Evrópuþjóðum samkvæmt tölfræði Eurostat frá árinu 2018. Það er vel þekkt staðreynd að aðeins hluti landsmanna hefur sinn heim- ilislækni og aðgengi að sérgreina- þjónustu hefur verið að skerðast og biðlistar að lengjast, bæði hjá opin- berum heilbrigðisstofnunum og sjálfstætt starfandi sérgreinalækn- um. Ástandið skv. spá- líkaninu mun aðeins halda áfram að versna. Við gerð mannafla- spárinnar er horft til ýmissa þátta, t.d. breytinga á aldurs- samsetningu þjóð- arinnar. Spáin gerir ráð fyrir því að 65 ára og eldri vegi þyngra í eftirspurn eftir heil- brigðisþjónustu en þeir sem eru yngri. Mann- fjöldaspá Hagstof- unnar er lögð til grundvallar fyrir hlutfall 65 ára og eldri af heildar- mannfjölda á komandi árum. Þá er tekið mið af áætluðum breytingum í læknahópnum. Þar skiptir meg- inmáli nýliðun í hópnum og aldurs- dreifing. Fjöldi íslenskra lækna sem lýkur námi frá Háskóla Íslands og frá erlendum háskólum. Hlutfall þeirra sem stunda framhaldsnám hérlendis og þeirra sem kjósa að fara utan til framhaldsnáms. Hlut- fall þeirra sem setjast að erlendis. Þá er horft til núverandi aldurs- samsetningar læknahópsins og hlut- falls þeirra sem fara á eftirlaun á næstu árum. Bæði þeirra sem starfa á Íslandi og hópsins erlendis sem nú dvelur þar í námi og við störf. Hægt er að skoða mismunandi svipmyndir í mannaflaþróun með aðstoð líkans- ins. Sérnám á Íslandi Þegar horft er til framtíðar er lykilatriði að íslenskt heilbrigð- iskerfi sé sjálfbært um mannauð á hverjum tíma. Á nýafstöðnum aðal- fundi LÍ var samþykkt áskorun til heilbrigðisyfirvalda um að tryggja og skilgreina framlag til kennslu- og vísindaþáttar heilbrigðiskerfisins í fjárlögum með skýrum hætti. Þar skiptir uppbygging framhaldsnáms í sérgreinum læknisfræðinnar miklu máli. Sérnám í læknisfræði á Íslandi hefur þróast hratt á undanförnum árum. Nú er sérnám veitt í mörgum grunngreinum lækninga á Íslandi í samræmi við alþjóðleg gæðaviðmið. Læknum í sérnámi á Íslandi hefur fjölgað hratt á undanförnum árum, eða um að minnsta kosti 40% frá árinu 2015, og enn meira ef aðeins er horft til viðurkennds sérnáms. Þetta er afar jákvæð þróun, sem tryggir vaxandi hæfni og sjálfbærni í mönn- un til framtíðar. Í síðasta kjara- samningi lækna var m.a. tekið tillit til þessarar þróunar og launhækk- anir þessa hóps voru umfram aðra læknahópa til að styðja við þessa þróun og uppbyggingu. Kostnaður sem tengist sérnámi lækna felst að langmestu leyti í launakostnaði. Til þessa hefur ekki verið um sérstakar fjárveitingar að ræða heldur hefur sérnám verið misvel skilgreindur hluti daglegs rekstrar hlutaðeigandi stofnana. Úr því þarf að bæta. Nauðsynlegt er að skilgreina fjár- magn til sérnáms lækna, ekki síst svo hægt sé að stýra því hvernig fjárveitingar eru nýttar í samræmi við þarfagreiningar, mannaflalíkön og gæðaeftirlit, en einnig til að tryggja að tímabundnar sveiflur í rekstri íslenskra heilbrigðisstofnana hafi ekki ófyrirsjáanleg áhrif á mönnun heilbrigðiskerfisins á næstu áratugum. Alþjóðlegur samanburður Líkan LÍ og mannaflaspá bendir til að miðað við hækkandi hlutfall einstaklinga í aldurshópum sem þurfa meira aðgengi að heilbrigðis- þjónustu gæti skapast alvarlegur skortur á læknum á komandi árum og áratugum á Íslandi. Við því þarf að bregðast og krefst virkrar íhlut- unar stjórnvalda. Fram hjá því verð- ur ekki horft að ófullnægjandi fjár- mögnun og mönnun, auk vaxandi álags, bitnar á þekkingar- og ný- sköpunarmöguleikum. Rannsókna- tækifæri og vísindastarf eru talin mikilvægur þáttur í framhaldsnámi sem þarf að standast alþjóðlegan samanburð eins og sérnámi lækna. Að meta nýjungar og rannsóknir er lúta að meðferð og greiningu er hluti af grunnfærni sem krafist er af læknum. Með uppbyggingu sérnáms lækna búum við til sterkt þjónustu- og þekkingarsamfélag háskóla- og heilbrigðiskerfisins og stuðlum að sjálfbærni og tryggjum mannauð til framtíðar. Eftir Reyni Arngrímsson » Spálíkan til 2040 bendir til vaxandi læknaskorts. Áhrif á sjálfbærni heilbrigðis- kerfisins og skert að- gengi að þjónustu er svipmynd sem blasir við. Reynir Arngrímsson Höfundur er formaður Læknafélags Íslands. Hvað þarf marga lækna á Íslandi – mannaflaspá til 2040

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.