Morgunblaðið - 08.11.2021, Síða 16

Morgunblaðið - 08.11.2021, Síða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2021 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf SÍMI 587 2000 · KLETTHÁLSI 2, 110 REYKJAVÍK · WWW.TOPPBILAR.IS LAND ROVER DISCOVERY SPORT Aksturstölva Bluetooth Bakkmyndavél Fjarlægðarskynjarar aftan Dráttarbeisli Hiti í framsætum Hæðarstillanlegt sæti ökumanns ISOFIX festingar í aftursætum USB tengi Loftkæling Rafdrifnar rúður Rafdrifnir hliðarspeglar Vökvastýri ABS hemlakerfi Hraðastillir Spólvörn Stöðugleikakerfi Reyklaust ökutæki Aðgerðahnappar í stýri Regnskynjari Rafdrifin handbremsa Lykillaus ræsing Fjarlægðarskynjarar framan Leðurklætt stýri Gírskipting í stýri Raðnúmer 397148 Ekinn 53 Þ.KM Nýskráður 11/2018 Næsta skoðun 2022 Sjálfskiptur Dísel Sjálfskipting Fjórhjóladrif Verð kr. 5.690.000 Forvarnadagur gegn einelti á vinnustöðum er í dag, 8. nóvember. Undanfarin ár hefur fé- lagslegt vinnuumhverfi hlotið aukna athygli og mikilvægi þess verið undirstrikað. Vandamál á borð við einelti, of- beldi og áreitni á vinnu- stöðum hafa orðið sýni- legri og í kjölfarið hefur krafan um að þeir skapi góðan félagslegan aðbúnað aukist. Að skapa gott félagslegt vinnuum- hverfi er aðkallandi verkefni sem vinnustaðir þurfa að horfast í augu við, enda hafa þeir bæði lagalega og samfélagslega skyldu til að stuðla að öryggi, betri heilsu og vellíðan starfs- fólks. Menning vinnustaða Góð vinnustaðamenning er for- senda þess að viðhalda og stuðla að öruggum og heilbrigðum sam- skiptum á vinnustöðum. Hún setur ákveðin viðmið um hvers sé vænst af starfsfólki og hvernig sé viðeigandi að hegða sér, tjá tilfinningar og eiga samskipti við aðra. Vinnustaðamenn- ing felur ekki aðeins í sér þær hug- myndir og hefðir sem eru uppi á yfir- borðinu og hægt er að sjá til dæmis í hegðun, samskiptum, framkomu og ákvarðanatöku. Hún geymir einnig þær upplifanir og þær tilfinningar sem geta kraumað undir yfirborðinu og erfiðara er að bera kennsl á. Nei- kvæðar tilfinningar og ósögð orð, sem finna sér ekki viðeigandi farveg og krauma undir niðri, geta haft áhrif á menninguna og skapað vandamál sem vinnustaðir fá aftur og aftur í fangið. Þau gildi og viðmið sem menning vinnustaða heldur á lofti geta stuðlað að góðum eða slæmum siðum á vinnu- stöðum og haft veruleg áhrif á fé- lagslega vinnuumhverfið. Alvarleg vandamál eins og einelti og áreitni eru því miður enn hluti af þeim raun- veruleika sem blasir við okkur í vinnuumhverfinu og getur verið af- sprengi neikvæðrar vinnustaðamenn- ingar. Félagslega vinnuumhverfið getur vafist fyrir fólki, enda upplifun og líð- an einstaklinga margslungið og flókið fyrirbæri. Það er vissulega ekki hægt að stjórna tilfinningum og upplif- unum annarra, en það er hægt að ramma inn og stýra samskiptum og skipulagi vinnuumhverfisins, svo þar rúmist síður einelti, áreitni og ofbeldi. Skipulag Skipulag og hönnun vinnurýmis getur falið í sér áhættu og álag sem getur leitt til neikvæðrar vinnumenn- ingar og óheilsusamlegs vinnuum- hverfis. Það er því afar mikilvægt að vinnustaðir skoði hvaða áhrif vinnu- skipulag, dreifing verkefna og verk- lag hefur á öryggi, heilsu og vellíðan starfsfólks. Stuðla þarf að því að vinnutími, vaktafyrirkomulag, ein- hæfni og/eða fjölbreytni verkefna styðji við þann félagslega aðbúnað sem leitast er við að skapa. Innan vinnustaða starfar fólk með ólíka reynslu saman í ólíkum teymum og hópum. Því þarf einnig að taka mið af samsetningu starfshópa og upp- byggingu teyma og huga vel að und- irbúningi og innleiðingu breytinga á vinnustöðum, enda vinnustaðir í stöð- ugri þróun. Góð nýliðafræðsla og sí- menntun eru dæmi um aðgerðir sem geta lagt grunninn að góðri vinnu- staðamenningu og góðu félagslegu vinnuumhverfi. Samskipti Margar leiðir eru færar að því markmiði að stuðla að jákvæðum og uppbyggilegum samskiptum á vinnu- stöðum. Mikilvægt er að vinnustaðir setji sér viðmið eða samskiptagildi í samvinnu við starfsfólk og leggi þann- ig grunninn að sameiginlegum skiln- ingi á þeim þáttum sem skipta máli í félagslega vinnuumhverfinu. Gott upplýsingaflæði og skýrar boðleiðir þurfa að vera til staðar til að tryggja árangursríka miðlun á þeim menningarlegu áherslum sem sam- mælst hefur verið um að skapa. Opin- ská umræða um hefðir á vinnustaðn- um getur opnað augu starfsfólks fyrir samskiptavanda, einelti og/eða öðrum vandamálum sem geta grasserað í vinnuumhverfinu. En stöðugt samtal getur auk þess lyft upp þeim gildum og viðmiðum sem sóst er eftir að festa í sessi. Regluleg starfsmannasamtöl, formleg eða óformleg snerpusamtöl eða spjall um verkefni eða líðan fólks eru mikilvægur liður í því að stuðla að sameiginlegum skilningi á því sem skiptir máli svo hægt sé að bregðast við vandamálum og bæta vinnuum- hverfið. Heilbrigður ágreiningur getur skapað frjósaman jarðveg fyrir nýjar hugmyndir en línan yfir í neikvæð samskipti getur verið þunn. Því þurfa allir að þekkja mörkin þannig að þeir geti gert athugasemdir ef ekki er starfað samkvæmt þeim samskipta- gildum sem sammælst hefur verið um að fara eftir. Vinnustaðir þurfa að styðja við starfsfólk og veita uppbyggilega end- urgjöf þar sem tekið er markvisst á ágreiningi og niðurrifi áður en í óefni er komið. Forvarnir Allir vinnustaðir eiga að hafa við- bragðsáætlun við einelti, áreitni og of- beldi og tryggja að starfsfólk þekki til viðeigandi ferla og boðleiða ef slík mál koma upp. Mikilvægt er að stjórn- endur fái þjálfun í því að takast á við ágreining og valdbeitingu í vinnuum- hverfinu og að taka erfið samtöl, því það lærist ekki af sjálfu sér. Það er ekki alltaf auðvelt að upp- ræta óæskileg samskipti eða hefðir sem skapast hafa á vinnustöðum og hefjast handa við að skapa nýjar, en forsenda þess að vel takist til er þátt- taka allra sem starfa á vinnustaðnum. Það er enginn einn sem breytir vinnustaðmenningu, það er sameigin- legt verkefni stjórnenda og starfs- fólks að skapa menningu þar sem ein- elti, áreitni og ofbeldi fær ekki að þrífast. Vinnueftirlitið heldur ráðstefnuna Vinnuvernd – ávinningur til framtíðar á Grand hóteli 19. nóvember nk. þar sem meðal annars verður fjallað um félagslegt vinnuumhverfi. Sjá nánar á www.vinnueftirlitid.is. Sættum okkur ekki við einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustöðum Eftir Margréti Ingólfsdóttur og Svövu Jónsdóttur » Það er enginn einn sem breytir vinnu- staðmenningu. Það er sameiginlegt verkefni stjórnenda og starfs- fólks að skapa menn- ingu þar sem einelti, áreitni og ofbeldi fær ekki að þrífast. Margrét Ingólfsdóttir Margrét er sérfræðingur hjá Vinnu- eftirlitinu og Svava sviðsstjóri heilsu- og umhverfissviðs Vinnueftirlitsins. Svava Jónsdóttir Nýliðnar kosningar hafa minnt okkur á, hvers konar vandamál geta komið upp vegna flókinna reglna um kjördæmaskipan og út- hlutun þingsæta. Ef landið væri eitt kjör- dæmi myndu slík vandamál hverfa eins og dögg fyrir sólu. Þetta hefur alla tíð ver- ið augljóst, en þingmenn hafa þráast við að breyta kerfinu nema að tak- mörkuðu leyti. Fyrir fjórum áratugum, nánar til- tekið árið 1983, var gerð tilraun til að fá þessu breytt. Þá var safnað undir- skriftum og þær afhentar Alþingi. Þessi undirskriftasöfnun virðist nú að mestu gleymd. Hér skulu rifjuð upp nokkur atriði, en ítarlegra yfirlit er að finna á vefsíðunni: http://halo.internet.is/jofnun.html. Árið 1972 var samþykkt þings- ályktunartillaga á Alþingi um mynd- un stjórnarskrárnefndar til að vinna að heildarendurskoðun stjórn- arskrárinnar og var sjö manna nefnd kosin af Alþingi til að sinna því verki. Tíu árum síðar bárust fréttir af því að starfi þessarar nefndar væri senn lokið og frumvarps væri að vænta. Af því tilefni tóku nokkrir einstaklingar sig til og sömdu áskorun til nefnd- arinnar . Þar sagði m.a.: „Almennur kosningaréttur, þar sem atkvæði allra mega sín jafnt, er forsenda hins sanna lýðræðis. Þetta grundvallarmarkmið má nálgast eftir mismunandi leiðum, en ein þeirra er þó einföldust að okkar dómi. Hún er sú, að landið allt verði gert að einu kjördæmi.“ Þessi áskorun var afhent Gunnari Thoroddsen þáverandi forsætisráð- herra 28. október 1982. Morgunblaðið birti frétt af málinu 30. október og lét fylgja textann af áskoruninni, sem und- irrituð var af tíu mönn- um. Þeir efndu síðan til blaðamannafundar 27. janúar 1983 þar sem til- kynnt var um fyrirhug- aða skoðanakönnum um kjördæmamálið. Sökum kostnaðar myndi könn- unin takmarkast við suðvesturhorn landsins, en tíumenningarnir lýstu áhuga á að ná til annarra landshluta. Skömmu fyrir fundinn hafði birst í Morgunblaðinu grein þar sem fram hafði komið að „léttvægustu“ þing- mennirnir hefðu minna en 700 at- kvæði á bak við sig en þeir „gildustu“ hátt á 5. þúsundið. Í dreifibréfi sem sent var út eftir fundinn var almenningi gefinn kostur á að segja álit sitt á því hvort eða hvernig ætti að breyta stjórn- arskránni til að ná meiri jöfnuði í at- kvæðisrétti. Alls bárust 15.037 svör. Af þeim töldust 14.968 gild. 90% þátt- takenda vildu jafna kosningaréttinn að fullu. Eins og við var að búast var þátttakan mest í Reykjavík og Reykjaneskjördæmi. Ekki hafði þetta framtak nein sjáanleg áhrif á það frumvarp sem Gunnar Thorodd- sen lagði fram á sama tíma um breyt- ingar á stjórnarskrá og þar með kosningalögum. Í dag, fjórum áratug- um síðar, er vandamálið enn óleyst. Baráttan fyrir jöfn- un kosningaréttar Eftir Ragnar Ingimarsson Ragnar Ingimarsson »Ef alþingismenn hefðu komið til móts við óskir landsmanna um jafnan kosningarétt hefði mátt komast hjá vandræðum í kjölfar síð- ustu kosninga Höfundur er prófessor emeritus. ragnargi@simnet.is Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.