Morgunblaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 11
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021
Mörkin 6 - 108 Rvk.
s:781-5100
Opið: 11-18 virka daga
12-15 laugardaga.
www.spennandi-fashion.is
GEFÐU HLÝJU Í JÓLAGJÖF
B E R N H A R Ð
L A X D A L
Skipholti 29b • S: 551 4422
LAXDAL ER Í LEIÐINNI
TRAUST
Í 80 ÁR
Ítalskar
hágæða
ullar-
kápur
Skoðið
laxdal.is
Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 | Við erum á facebook
Skyrta
Kr. 9.400
Peysa
Kr. 9.500
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Fæst í
netverslun
belladonna.is
Falleg náttföt sem fara vel í jólapakka
Skoðið // hjahrafnhildi.is
Vinsælu
dúnúlpurnar
frá MosMosh
komnar aftur
í svörtu og
dökkbláu
Verð 45.980
XS-XXL (34-46/48)
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Smáhýsi í Aðalvík þurfa ekki að
víkja. Úrskurðarnefnd umhverfis-
og auðlindamála hefur úrskurðað í
tveimur málum er varða meintar
óleyfisframkvæmdir á Látrum í
Aðalvík. Svæðið er hluti af frið-
landinu á Hornströndum.
Annars vegar var hafnað kröfu
um að felld verði úr gildi ákvörðun
byggingarfulltrúa Ísafjarðarbæjar
um að synja kröfu um að viðbygg-
ing við svonefnt Sjávarhús á Látr-
um í Aðalvík verði fjarlægð. Hins
vegar var hafnað kröfu um að fella
úr gildi ákvörðun bygging-
arfulltrúans um að synja kröfu um
að fimm smáhýsi, sem staðsett eru
í fjörukambinum á Látrum í Að-
alvík verði fjarlægð.
Athugasemdir og kærur
Í lýsingu ÚUA í málinu varð-
andi smáhýsin kemur fram að
kærandi hafi um langt skeið komið
á framfæri athugasemdum við Ísa-
fjarðarbæ vegna meintra óleyf-
isbygginga, þ.e. svonefnds Sjáv-
arhúss, viðbyggingar við það hús,
sem og smáhýsa/áhaldahúsa í
fjörukambinum. Nefndin hefur
sömuleiðis áður haft til úrlausnar
mál kæranda er þetta varðar og
eru nefndir úrskurðir frá síðustu
árum.
Í kærunni er bent á að leyfi
allra landeigenda þurfi til að raska
friðlandinu. Beri byggingarfulltrúa
að leita leiðsagnar Umhverfisstofn-
unar áður en veitt sé leyfi til fram-
kvæmda. Það hafi ekki verið gert
og byggingarleyfi vegna smáhýs-
anna ekki verið gefið út.
Í úrskurðinum segir m.a. að
telja verði það mat byggingarfull-
trúa að beita ekki þvingunarrú-
ræðum stutt efnislegum rökum.
Þar segir einnig að þótt leyfi Ust.
þurfi til allrar mannvirkjagerðar á
Látrum hafi stofnunin ekki nýtt
sér þvingunarúrræði sem hún hafi
samkvæmt lögum til að knýja á
um úrbætur vegna smáhýsanna.
Stofnuninni sé þó kunnugt um þau.
Smáhýsi
þurfa ekki
að víkja
- Deilt í Aðalvík
Barnavernd Reykjavíkur lauk máli
starfsmannsins sem ásakaður var
um að hafa brotið kynferðislega á
barni á leikskólanum Sælukoti án
athugasemda. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá lögmanni leikskól-
ans en þar segir að starfsmaðurinn
hafi verið sendur í leyfi eftir að
ásakanirnar voru lagðar fram. Að-
standendur hafa kært málið til lög-
reglu en umræddur starfsmaður
starfar ekki lengur á Sælukoti.
Fyrrverandi starfsfólk hefur
kallað eftir því að Sælukoti verði
tafarlaust lokað eða að gerðar
verði róttækar breytingar á starfs-
háttum leikskólans.
„Hópur fyrrverandi starfsmanna
Sælukots hefur valið að kasta rýrð
á sinn gamla vinnustað með ein-
hliða frásögnum í fjölmiðlum,“ seg-
ir í tilkynningu frá leikskólanum.
Þá segir að stjórnendur Sælukots
hafi fylgt ábendingum eftirlitsaðila
í gegnum árin. Enginn þeirra aðila
sem hafi eftirlit með starfsemi skól-
ans hafi þó gert alvarlegar athuga-
semdir við nokkuð í skólanum.
Máli starfsmannsins lokið án athugasemda