Morgunblaðið - 24.12.2021, Qupperneq 14
SVIÐSLJÓS
Svanhildur Eiríksdóttir
Reykjanesbæ
Sóknarnefnd Keflavíkurkirkju hef-
ur endurnýjað helgiklæði kirkj-
unnar og má segja að það hafi ver-
ið lokapunkturinn í endurnýjun
kirkjunnar, sem hófst árið 2012 og
miðaði að því að færa kirkjuna í
upprunalegt horf fyrir 100 ára af-
mæli hennar árið 2015.
Endurnýjun orgels kirkjunnar
var einnig liður í endurbótunum og
var það tilbúið til notkunar fyrir
rúmu ári þótt vígsla þess hafi farið
fram nýverið.
Keflavíkurkirkja er orðin öll hin
glæsilegasta og orgeltónarnir
hreinni og kraftmeiri en áður. Það
var því mikil ánægja þegar Ívar
Valbergsson sóknarnefndarmaður
kynnti nefndinni mynd- og veflist-
arkonuna Elínu Stefánsdóttur sem
er þekkt fyrir helgiklæði sín og
ýmis kirkjulistaverk.
„Þannig var að þegar móðir mín
Ríta Prigge Helgason var jarð-
sungin frá Kálfatjarnarkirkju árið
2018 af séra Erlu Guðmunds-
dóttur, sóknarpresti í Keflavíkur-
kirkju, þá fengum við fjölskyldan
lánaða svarta stólu sem Erla not-
aði við útförina. Ég sá strax
hversu vönduð stólan var og fékk
upplýsingar um að Elín hefði unnið
hana. Ég varð heillaður af hand-
verki hennar og fór í framhaldi að
afla mér upplýsinga um hana,“
segir Ívar í samtali við fréttaritara
Morgunblaðsins.
Þakklát að kynnast
verkum Elínar
Ívar og bræður hans, Reynir og
Haraldur Valbergssynir, færðu
Keflavíkurkirkju í framhaldi
svarta stólu eftir Elínu að gjöf til
minningar um móður þeirra, Rítu.
Eftir kynningu á Elínu ákvað
nefndin að láta endurnýja helgi-
klæði kirkjunnar sem sum voru
orðin ónothæf eða komin til ára
sinna og hæfðu illa nýju útliti
kirkjunnar.
„Ívar var ekki lengi að telja okk-
ur hin í nefndinni á að fá ný helgi-
klæði hjá þessari frábæru lista-
konu sem er m.a. þekkt fyrir sín
fallegu helgiklæði. Við vissum að
þörf var á nýjum í kirkjuna og urð-
um því afar þakklát kynningu Ív-
ars,“ segir Ragnheiður Ásta Magn-
úsdóttir, formaður sóknarnefndar.
Sóknarnefnd valdi liti og tákn
Séra Fritz Már Jörgensson,
prestur í Keflavíkurkirkju, grípur
orðið og segir helgiklæðin ekki
bara falleg, heldur séu þau svo létt
og þægileg að vera í. „Það er fátt
eins vont og að vera í þungum og
óþægilegum helgiklæðum, að mað-
ur tali nú ekki um í miklum hita
því undir þeim erum við prestarnir
í skrúða.“
Helgiklæðin eru fern í fjórum
mismunandi litum og eru notuð á
mismunandi tímabilum í kirkju-
árinu. Á aðventu hefur fjólublár
litur verið ríkjandi en sá litur
táknar iðrun og yfirbót. Þyrnikór-
ónan sem skreytir klæðin er tákn
um þjáningu Jesú Krists og eru
klæðin einnig notuð á föstutím-
anum.
Núna um jólin verða hvítu helgi-
klæðin notuð en sá litur táknar
hreinleika, gleði og fullkomleika.
Framan á helgiklæðinu er lút-
ersrós og vísar hjartað í rósinni á
að trúin gefi frið og huggun. Hvítu
helgiklæðin eru einnig notuð um
páska og aðrar gleðilegar hátíðir.
Á rauða klæðinu er dúfa á leið
niður, sem er tákn heilags anda, en
liturinn táknar eldmóð, anda og
kærleika. Klæðin eru notuð um
hvítasunnu og á merkisdögum písl-
arvotta.
Síðustu helgiklæðin eru þau
grænu, en það er litur vonar, lífs
og vors. Þau prýðir lárviðargrein
sem er tákn um vöxt og ódauðleika
og á kirkjuárinu er græni liturinn
aðallega notaður sunnudaga eftir
þrenningarhátíð.
Krossar í klæðum og
stólum því enginn er
í kirkjunni sjálfri
Elín kom og heimsótti Kefla-
víkurkirkju áður en hún hófst
handa við verkið til þess að kynna
sér útlit hennar og umgjörð. Sókn-
arnefnd fékk sjálf að velja táknin
á helgiklæðin ásamt því að taka
þátt í litavali. Síðustu klæðin voru
afhent fyrr á þessu ári og hafa nú
öll verið vígð.
Ásamt þeim keypti kirkjan stól-
ur í sömu litum og klæðin, einnig
sakramentisdúka og prédikunar-
stólsklæði. Þá keypti sóknarnefnd
listaverk af helgiklæðunum fern-
um sem Elín gerði og rammaði inn
ásamt skýringartexta, sem vitnað
var í hér að ofan. Þau prýða fund-
arsal í safnaðarheimili en listaverk
þess litar sem ríkjandi er hverju
sinni er hengt upp í fordyri kirkj-
unnar, kirkjugestum til yndis og
fróðleiks.
Sóknarnefnd hefur einnig pant-
að djáknastólur hjá Elínu en
djákninn Heiða Björg Gústafs-
dóttir tók nýverið til starfa í
Keflavíkurkirkju. Séra Erla vekur
athygli á krossunum sem prýða
stólurnar og klæðin.
„Þannig er að það eru engir
krossar í kirkjunni þótt kirkju-
byggingin sjálf myndi kross og því
lögðum við áherslu á að vera með
krossa í klæðunum.“
Uppistaðan í klæðunum er sér-
litað silki, einnig í fóðri, og ull er í
ívafi og gullþráður þar sem við á.
Tæknin er damaskvefur og við
verkið naut Elín aðstoðar eigin-
manns síns, Gerts Madsens, sem
lærði vefnað af móður sinni. Í
klæðin fóru um 16 kílómetrar af
örfínum ullarþræði og 15 kílómetr-
ar af silkiþráðum.
Lokapunktur endurnýjunar
- Elín Stefánsdóttir var fengin til að endurnýja helgiklæði Keflavíkurkirkju - Orgelið var einnig
endurnýjað - Sóknarnefndarmaður og bræður hans gáfu kirkjunni stólu í minningu móður þeirra
Gjöf Ívar Valbergsson með svörtu
stóluna sem hann og bræður hans,
Reynir og Haraldur, færðu kirkj-
unni til minningar um móður sína
Rítu Prigge Helgason.
Keflavíkurkirkja Sr. Erla Guðmundsdóttir, Ragnheiður Ásta Magnúsdóttir, Ívar Valbergsson og sr. Fritz Már
Jörgensson með og í helgiklæðunum fernum sem Keflavíkurkirkja hefur keypt af Elínu Stefánsdóttur listakonu.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
14 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2021
ÁR
1921-2021
Í Y
KKA
R ÞJÓNUSTU
10%
afsláttur
fyrir 67 ára
og eldri
Elín Stefánsdóttir mynd- og veflistarkona hefur sérhæft sig í helgiklæð-
um og öðrum listmunum fyrir kirkjur. Verk hennar prýða nokkrar ís-
lenskar kirkjur og um 115 danskar.
Á vef Elínar Stefánsdóttur (https://elinstefansdottir.dk/) má lesa að
Elín hefur lengst af búið í Danmörku, þar sem hún starfrækir vinnu-
stofu og gallerí ásamt eiginmanni sínum í Mols, rétt austan Árósa, þar
sem þau njóta mikillar náttúrufegurðar. Hún segir stórkostlega náttúru
Íslands, litadýrð og andstæður í landslaginu, ekki síður hafa verið mik-
inn innblástur fyrir sig í listsköpuninni.
Ásamt vefnaði málar Elín og vinnur glerlistaverk, m.a. steint gler í
kirkjur. Sjá má sýnishorn af verkum Elínar á vefnum, ásamt nánari upp-
lýsingum um listakonuna.
ELÍN HEFUR SÉRHÆFT SIG Í HELGIKLÆÐUM
Helgiklæði Frá afhendingu helgiklæðanna fyrr á árinu. Ívar Valbergsson og Gert
Madsen halda á græna helgiklæðinu og Elín Stefánsdóttir og sr. Erla á því rauða.
Með verk í íslenskum
og dönskum kirkjum