Morgunblaðið - 30.12.2021, Síða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2021
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
sl
ík
u
595 1000
Alicante
u.
At
h.
t 5. janúar, önnur leið
Flugsæti til
9.900
Flug aðra leið frá
Flugsæti
MANNDÝRIÐ
EINAR
ÞORGRÍMSSON
MANN
DÝRIÐ
er beint
framhald
af Óðali óttans
sem seldist vel
Fæst í Eymundsson
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Maður sem varð fyrir verulegu tjóni á bíl sín-
um þegar hann ók þjóðveginn um Kjalarnes,
þar sem unnið er að tvöföldun vegarins, sættir
sig ekki við að bera tjónið sjálfur. Efni sem
verið var að vinna með fauk yfir bíl hans svo
nauðsynlegt er talið að heilsprauta bílinn, sem
gæti kostað tvær milljónir. Vegagerðin og
tryggingafélag verktakans
hafna því að bæta tjónið og
hefur maðurinn ákveðið að
leggja það fyrir úrskurð-
arnefnd í vátrygginga-
málum.
Ístak vinnur að breikkun
Vesturlandsvegar á Kjal-
arnesi fyrir Vegagerðina.
Ólafur H. Knútsson prestur
býr á Akranesi en vinnur í
Reykjavík og ekur því
þarna um tvisvar á dag. „Ég er farinn að
þekkja leiðina eftir að hafa ekið þarna um dag-
lega í tólf ár og reiknaði með að það yrði tals-
vert hvasst þegar ég ók af stað í vinnuna 7.
október, þótt engar viðvaranir hafi verið fyrir
Kjalarnes í veðurfréttum kvöldið áður,“ segir
Ólafur. Raunin varð sú að talsvert hvasst var á
Kjalarnesi en eigi að síður voru starfsmenn
verktakans við vinnu. Ólafur segir að þeir hafi
verið að ýta grófri og þurri möl upp í hrúgur á
framkvæmdasvæðinu sem stendur mun hærra
en þjóðvegurinn.
„Skyndilega virtist koma vindhnútur sem
feykti upp malarskafli, ekki sandi, og gekk yfir
veginn og nokkra bíla. Skaflinn var svo þéttur
að það dimmdi. Ég hélt að rúðurnar ætluðu inn
úr bílnum þegar skaflinn skall á. Ég vissi strax
að þetta myndi ekki fara vel en vegna umferðar
og aðstæðna hafði ég ekki aðstöðu til að stoppa.
Fór því beint á lögreglustöðina á Vínlandsleið,
fékk lögregluþjón til að skoða bílinn og gera
skýrslu. Bíllinn er allur úti í skellum, þetta var
stórtjón eins og lögreglumaðurinn staðfesti.
Fleiri fengu mölina yfir sig og lögreglumað-
urinn sagði að einhverjir hefðu hringt inn og
tilkynnt um tjón. Maður sem var þarna stadd-
ur gaf sig á tal við mig og sagðist sjálfur hafa
lent í tjóni á Kjalarnesi og vissi um fleiri.“
„Vítavert gáleysi“
Bíll Ólafs er ársgamall. Skellur eru í lakki á
vélarhlíf bílsins, allri vinstri hliðinni og eitt-
hvað uppi á þaki einnig. Þá sjást að minnsta
kosti tvær dældir eftir grjót. Hann er með bíl-
inn í kaskótryggingu en sættir sig ekki við að
bera tjónið vegna sjálfsábyrgðar trygging-
arinnar eða hækkunar iðgjalda þar sem hann
hafi verið að aka um opinn veg, eins og hundr-
uð ökumanna geri daglega, og ekki sé um aðra
leið að ræða. Hann tilkynnti tjónið til Vega-
gerðarinnar sem vísaði honum á verktakann,
Ístak. Þaðan var honum vísað á VÍS sem er
tryggingafélag Ístaks.
VÍS hafnaði kröfum um bætur úr frjálsri
ábyrgðartryggingu fyrirtækisins á þeim for-
sendum að ekki hefði verið um að ræða sak-
næma eða ólögmæta háttsemi hjá starfs-
mönnum Ístaks sem þarna voru við vinnu, þar
sem skilti hefði verið sett upp til að vara öku-
menn við sandfoki og grjótkasti á þessu svæði.
Ólafur er ósammála þessu. Telur að það hafi
verið vítavert gáleysi hjá verktakanum að vera
við umrætt verk við þessar aðstæður. Starfs-
mennirnir hefðu getað bleytt í efninu eða lagt
niður vinnu. Hann bendir á að viku síðar hafi
þeir verið búnir að jafna út efninu og þjappa og
binda efnið í veginum. Þá hafi þeir lagt niður
vinnu 19. október þegar stormur gekk yfir
Kjalarnes. Hann hafi ekki fengið eitt sandkorn
á bílinn þegar hann ók þar um þann dag.
Ólafur vísar einnig til þess að Vegagerðin
beri sína ábyrgð sem veghaldari og er ósáttur
við að hún vísi málinu frá sér. Vitnar hann sér-
staklega til yfirlýsinga forstjóra Vegagerð-
arinnar um bætt regluverk og auknar kröfur til
verktaka og eftirlitsaðila en hörmulegt slys
varð á nýlögðu slitlagi á veginum um Kjalarnes
í júní á síðasta ári.
Vegagerðin hefur fengið samtals átta tjóns-
tilkynningar, í gegnum rafræna tilkynn-
ingasíðu, sem rekja má til framkvæmda á Kjal-
arnesi á bilinu 19. febrúar til 19. október. Í
svari frá Vegagerðinni kemur fram að verktak-
ar þurfi að svara fyrir þau tjón sem orðið hafi
innan vinnusvæðis og rekja megi til fram-
kvæmdarinnar. Sex af átta tilkynntum tjónum
hafi orðið innan vinnusvæðis verktaka og tjón-
þolum því vísað á þá.
Leðja á malbikinu
Á þjóðveginum við vinnusvæðið er stundum
leirlag á malbikinu eftir stóra malarflutn-
ingabíla verktakans sem fara þar um. Ólafur
segir að til að mynda hafi vegurinn verið eitt
svað í tvær vikur á aðventunni og ekkert gert
til að hreinsa það af. Það skapi hættu vegna
bremsuskilyrða og leðjan hlaðist utan á og
undir bílana. Nóg var að gera hjá bílaþvotta-
stöðvum vegna þess.
Ólafur segist vita að fleiri bílar hafi lent í
malarskaflinum 7. október og einhverjir hafi
tilkynnt það til lögreglu. Þá hafi hann frétt af
mörgum ökumönnum sem orðið hafi fyrir tjóni
á bílum sínum á þeim tíma sem framkvæmd-
irnar hafa staðið yfir.
Sættir sig ekki við að bera tjónið
- Möl sem vegaverktaki var að vinna með við þjóðveginn um Kjalarnes fauk á bíla sem fóru þar um
- Þarf að heilsprauta bílinn - Vegagerðin vísar á verktakann og tryggingafélag hans neitar ábyrgð
Tjón Skellur eru í lakki á vélarhlíf, vinstri hlið
og þaki eins árs gamals bíls Ólafs.
Ólafur H.
Knútsson
Snjó kyngdi niður í fyrrinótt á Akur-
eyri, sem varð til þess að dagurinn
byrjaði snemma, klukkan fjögur, hjá
Guðna Þóroddssyni, snjómoksturs-
manni á Akureyri.
„Ég hef unnið við þetta síðan ’83 og
hef séð miklu meira en þetta. Ég er
ekki að segja að þetta sé lítið, þetta er
með því meira á svona stuttum tíma,“
segir Guðni.
Að sögn Guðna eru tuttugu snjó-
mokstursvélar kallaðar út þegar mest
snjóar, en nú hafi þurft að kalla út tíu
aukavélar.
Spurður hvort ökumenn hafi mikið
verið að festast í gær svarar Guðni
því neitandi en segir að þó séu alltaf
nokkrir óheppnir sem lenda utan veg-
ar, sérstaklega minni bílar.
„Það er ekki hált, það er bara
leiðinlegt færi. Þetta gerist sjálfkrafa
eftir svona hret. Ég held að það hafi
allir farið upp Gilið í morgun þegar
búið var að moka.“
Að sögn Guðna er fólk mistillits-
samt í garð snjómokstursvéla.
„Sumir eru mjög pirraðir ef þeir
lenda á eftir okkur en aðrir sýna
þessu skilning og eru tillitssamir.“
Guðni segir veturinn í ár hafa verið
þægilegan fram að þessu, sérstaklega
miðað við síðustu tvo vetur þar sem
snjóaði óhemjumikið. „Veturinn er
búinn að vera fínn þangað til núna.
Þetta er í fyrsta skipti sem það kem-
ur alvöruhret.“ logis@mbl.is
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Hret Þegar Akureyringar vöknuðu við snæviþakta jörð í gærmorgun, þá var snjómoksturinn þegar hafinn.
Snjó kyngdi niður á Akur-
eyri og bílar hurfu í fönn
- Gærdagurinn hófst snemma hjá snjómokstursmönnum