Morgunblaðið - 30.12.2021, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 30.12.2021, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2021 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 & "!(%'$# "$&'%#! "-+ ! !" &,'*)%(!$# Kæli- & frystiklefar í öllum stærðum BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Afli frystitogarans Sólbergs ÓF 1 á árinu var 11.216 tonn (13.164 tonn af óslægðu), sem er 708 tonnum minni afli en í fyrra. Aflaverðmæti (CIF) Sólbergs var rúmlega 5,5 milljarðar, sem er 177 milljónum minna en met- árið 2020, samkvæmt upplýsingum frá Ramma hf. sem gerir skipið út. Mun það vera mesta aflaverðmæti hjá fiskiskipi í íslenska flotanum á árinu og það næstmesta sem skip hefur skilað í aflaverðmæti á einu ári í krónum talið. Skipið var þrjár vik- ur í slipp á þessu ári, en ekkert á síð- asta ári. Sólbergið kom nýtt til landsins 2017, smíðað í Tyrklandi. Allur afli er fullunninn og frystur um borð í Sólberginu, en skipið er tæplega 80 metrar að lengd og 15,4 metrar á breidd. Skipstjórar eru Sigþór Kjartansson og Trausti Kristinsson. Ævintýri á Dhorn-banka Tveir ísfisktogarar Samherja veiddu yfir átta þúsund tonn á árinu. Björgúlfur EA 312 var með 8.654 tonn og var aflaverðmætið 1.972 milljónir. Kaldbakur EA var með 8.379 tonn, aflaverðmætið 1.891 milljón. Þar sem skipin voru á sjó þegar tölurnar voru teknar saman var afli áætlaður síðasta veiðidaginn. Einnig má nefna að Harðbakur fisk- aði 6.733 tonn á árinu, að verðmæti um 1.500 milljónir. Skipið er 29 metra langt og ein af sjö systrum, sem smíðaðar voru hjá Vard-Aukra í Noregi 2019. Árið var um margt gott til sjávar- ins og yfirleitt góð aflabrögð, að mati viðmælenda. Í haust tregaðist þorskafli tímabundið hjá togurunum á heimamiðum, en í nóvember veidd- ist vel á Dhorn-banka við miðlínuna milli Íslands og Grænlands, rúmlega hundrað sjómílur vestur af Látra- bjargi. Talað var um ævintýralegan afla á skömmum tíma eftir að Ásgeir Pálsson og hans menn á Björgvini EA létu reyna á veiði þar. Fiskifræðingar telja líklegast að þessi þorskur sé af íslenskum upp- runa fremur en að hann sé úr klaki grænlensks þorsks. Ekki liggur hins vegar fyrir hvort hér var á ferðinni þorskur sem ólst upp á Íslands- miðum eða hvort hann rak sem lirfur yfir til Grænlands og óx upp þar. Loðna í hæstu hæðum Af veiðum uppsjávarskipa má nefna að loðnuvertíðin síðasta vetur skilaði yfir 20 milljörðum í útflutn- ingsverðmæti. Kvóti íslenskra skipa var aðeins um 70 þúsund tonn, en verðmæti afurða í hæstu hæðum. Stóra frétt ársins var síðan kvóti upp á samtals 900 þúsund tonn á yfirstandandi fiskiveiðiári, þar af koma um 670 þúsund tonn í hlut ís- lenskra skipa. Heildarkvótinn í loðnu hefur ekki verið jafn hár síðan í byrjun aldarinnar og er búið að veiða tæp 75 þúsund tonn. Langt var að sækja makríl í ár, en hann veiddist að stórum hluta í Síld- arsmugunni langt austur af landinu. Norsk-íslenska síldin veiddist hins vegar að stórum hluta við bæjar- dyrnar út af Austfjörðum. Þá má nefna að af 190 þúsund tonna kol- munnaafla ársins veiddust 38 þús- und tonn í íslenskri lögsögu. Nýsmíðar í ár og fram undan Meðal nýsmíða sem bættust í upp- sjávarflotann í ár má nefna að nýr Börkur NK kom til Síldarvinnsl- unnar og Vilhelm Þorsteinsson EA til Samherja og fleiri útgerðir styrktu flota sinn á árinu. Þá var skrifað undir nýsmíði uppsjávar- skips fyrir Skinney-Þinganes. Af togurum má nefna að nýr Bald- vin Njálsson GK kom til Nesfisks í Garði og stefnt er að því að nýr ís- fisktogari hefji veiðar fyrir Ramma hf. á Siglufirði haustið 2023, en skip- ið verður smíðað í Tyrklandi. Gott ár til sjávarins að kveðja - Aflaverðmæti Sólbergsins um 5,5 milljarðar - Vel veiddist af þorski af íslenskum uppruna á Dhorn-banka - Mesti loðnukvóti síðan í upphafi aldarinnar - Langt var að sækja makrílinn Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Aflaskip Sólbergið ÓF öslar sjóinn í Barentshafinu í febrúar 2019. Aflinn í ár var yfir 13 þúsund tonn upp úr sjó. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Veghald ákveðinna þjóðvega í þétt- býli, svokallaðra skilavega, færist frá Vegagerðinni til sveitarfélaganna um áramót þótt ekki hafi náðst full sátt um yfirfærsluna. Ágreiningi um kostnað við viðhald og rekstur skila- vega á höfuðborgarsvæðinu verður vísað til samstarfsnefndar sveitarfé- laganna og ríkisins sem fjallar um tekjustofna sveitarfélaganna. Umræddir vegir eru um allt land, alls um 70 kílómetrar. Vegagerðin hefur byggt þá og kostað viðhald og rekstur alla tíð. Vegirnir eru í raun orðnir hluti af gatnakerfi viðkomandi sveitarfélaga. Á árinu 2007 var gert samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga og sam- þykkt lög um yfirfærslu veganna til sveitarfélaganna. Síðar var ákveðið að Vegagerðin myndi annast veghaldið til loka árs 2019 á meðan samið væri við sveitarfélögin um yfirfærsluna og hefur fresturinn tvisvar verið framlengdur. Sigurður Ingi Jóhannsson innviða- ráðherra segir að öll sveitarfélögin hafi samþykkt yfirtökuna nema Sam- tök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð- inu. Eins og fram hefur komið hefur SSH áréttað við ráðherra þá afstöðu að flutningur veganna eigi ekki að hafa í för með sér aukinn rekstrar- kostnað fyrir sveitarfélögin. Sigurður Ingi segir ekki gert ráð fyrir því í lög- unum að sveitarfélög fái hluta af fjár- veitingum til Vegagerðarinnar til rekstrar vegakerfisins enda væri það galin nálgun. Hann segist ekki þekkja upphaf málsins en telur ekki eðlilegt að Vegagerðin sitji uppi með rekstur þessara vega þótt hún hafi af einhverjum ástæðum byggt þá í upp- hafi. Sveitarfélögin hljóti að hafa séð sér hag í að taka yfir veghaldið. Sigurður Ingi segir að starfshópur sveitarfélaganna og ríkisins hafi komist að þeirri niðurstöðu að það kostaði rúma tvo milljarða að koma þessum vegum í gott stand og Vega- gerðin mætti vinna verkið á fjórum árum. Segist ráðherra sáttur við þá tillögu fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga í starfshópnum að vísa ágreiningi SSH til umfjöllunar í sam- starfsnefnd um tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Vegir færast til sveitarfélaga - Ágreiningi SSH vísað til nefndar um skiptingu tekjustofna Sigurður Ingi Jóhannsson Þór Þórarinsson, skipstjóri á frysti- togaranum Örfirisey RE, skipi Brims, tekur undir það að heilt yfir hafi aflabrögð togaraflotans verið góð í ár. Hann segir að Örfirseyin hafi komið með yfir tíu þúsund tonn að landi og sé í þriðja sæti í tonnum talið á eftir Sólbergi og Vigra RE. „Góður kvóti er á skipinu og hefur verið síðan Brim tók við útgerðinni,“ segir Þór. „Við megum hins vegar ekki veiða mikið af þorski, kannski um 100 tonn í mánaðartúr, sem get- ur gefið samtals um þúsund tonn. Hann hafi því ekki verið að veiðum á Dhorn-banka þegar mest veiddist þar af þorski í haust. „Þetta var mjög gott og spennandi fréttir. Menn hafa lengi verið að hugsa um þetta og svo lét einn vaða og það gaf fínustu veiði.“ Þór segir að þeir hafi mikið verið í ufsa og gengið vel í haust. Sömu- leiðis væri karfi ofarlega á blaði, bæði gull- og djúpkarfi. Það hefði verið ánægjulegt að í sumar hafi meira sést af djúpkarfa á Reykja- neshryggnum heldur en í langan tíma. Ekki væri lengur um karfaveið- ar á Hryggnum utan landhelgi að ræða vegna ástands stofna þar. Eftir meira en hálfa öld til sjós er Þór nú kominn í land. Hann varð sjö- tugur í maímánuði síðastliðnum og þegar Örfirisey kom að landi fyrir jól gekk Þór niður landganginn í síð- asta skipti sem skipverji. Illa sjóveikur í fyrstu Hann byrjaði sem ungur maður á bátum frá Reyðarfirði, sínum heimabæ, m.a. Gunnari og Snæfugli. „Ég var illa sjóveikur í fyrstu túr- unum, en það var eitthvað sem tog- aði í mig og ég hélt áfram.“ Þór lauk prófi frá Stýrimannaskól- anum 1975 og var um tíma á Klakki frá Vestmannaeyjum. Síðan lá leiðin til Reykjavíkur og hjá Brimi og for- verum þess fyrirtækis, Granda og HB Granda, hefur hann verið frá 1989. Hann tók við sem stýrimaður á Örfirisey þegar skipið var keypt frá Færeyjum 1992 og hefur verið þar síðan. Lengst af sem stýrimaður og afleysingaskipstjóri, en skipstjóri síðustu tvö ár. Hann segir að ævinlega gangi á ýmsu í veiðiskapnum og ekki sé allt- af á vísan að róa með afla. Síðustu ár hafi þó ekki þurft að kvarta. Á Ör- firisey hafi hluti áhafnarinnar verið móti einum í landi, en núna sé það yfirleitt 1/1. Þetta hafi verið miklar útilegur, en áður fyrr hafi lengur verið stoppað í landi eða einn dag á móti hverri viku á sjó. Nú sé aðeins stoppað í landi í um einn sólarhring til að landa, taka kost og olíu og skipta um áhöfn. -Og hvað tekur við eftir 50 ár til sjós? „Nú fer ég bara að leika mér á Spáni, það verður ekki vandamál. Kannski fer maður í golfið,“ segir Þór Þorfinnsson. um borð frá því að skipið kom til landsins fyrir 30 árum og aðrir í um 20 ár. „Það hefur ekki verið mikið rót á mannskapnum. Þetta er góð áhöfn og sami kjarninn lengi. Menn sem kunna til verka,“ segir Þór. Túrar frystiskipanna eru langir eða um mánuður, en Þór segist að það hafi fljótlega komist upp í vana. Fyst var kerfið þannig hjá yfirmönnum að róið var í tvo túra, en frí í einn. Fyrir nokkrum árum hafi verið farið að róa annan hvern túr. Hjá öðrum í áhöfn hafi kerfið lengi verið þrír á Sækja í ufsa og karfa frekar en þorsk ÞÓR ÞORFINNSSON, SKIPSTJÓRI Á ÖRFIRISEY, LÆTUR AF STÖRFUM EFTIR HÁLFA ÖLD TIL SJÓS Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Í landi Þór Þorfinnsson skipstjóri. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðar Örfirisey RE Sami kjarni hefur verið í áhöfninni í áratugi. „Menn sem kunna til verka.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.