Morgunblaðið - 30.12.2021, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 30.12.2021, Qupperneq 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2021 ✝ Þorgerður María Gísla- dóttir fæddist í Stykkishólmi 9. september 1925. Hún lést á Hrafnistu Hafnarfirði 17. des- ember 2021. Foreldrar henn- ar voru Gísli Gísla- son, f. 1890, d. 1974, og Sigríður Guð- mundsdóttir, f. 1891, d. 1981. Systir hennar var Kristín G. Gísladóttir. Hinn 9.9. 1952 giftist Þorgerð- ur Jóni Ólafi Bjarnasyni frá Bol- ungarvík, f. 1.10. 1925, d. 14.3. 2019. Þau áttu eina dóttur, Sig- ríði, f. 1953. Börn hennar: 1) Jón Ólafur Gestsson, maki Katrín Ásta Stefánsdóttir. Börn þeirra Ólafur Vilhelm, Bjarney María og Bjarni Friðrik. 2) Þorgerður María Halldórsdóttir. Áður átti Jón Bentínu, maki Halldór Ár- mannsson. Þriggja mánaða flutti Þorgerð- ur til Hafnarfjarðar og bjó þar æ síðan. Lengst af á Austurgötu 31, en flutti á Hringbraut 5 er þau Jón hófu búskap. Þau byggðu svo á Klettahrauni 23 og bjuggu þar í tæp 30 ár. Síðast var heimili maður félagsins frá stofnun og til 1978. Þótt formennskan tæki enda rofnuðu ekki tengslin við fé- lagið. Þorgerður hélt áfram að kenna nýjum fánaberum rétt handbrögð, enda hafði hún ætíð metnað fyrir því að íslenska fán- anum væri sýnd tilhlýðileg virð- ing. Þorgerður kom að stofnun Fé- lags áhugafólks um íþróttir aldr- aðra, ásamt fleiri eldri íþrótta- kennurum. Þorgerður hlaut fjölmargar viðurkenningar fyrir störf sín; gullmerki ÍBH 1985, gullmerki FSÍ 1986, heiðursfélagi í Hafn- arfjarðardeild RKÍ 2001. Árið 2002 hlaut Þorgerður heið- urskross ÍSÍ sem er æðsta við- urkenning sambandsins. 2015 var hún gerð að heiðursfélaga Fim- leikafélagsins Bjarkar, fyrst til að hljóta þann heiður. Henni þótti einna vænst um þá viður- kenningu vegna tengslanna við félagið. Áður var hún sæmd silf- ur- og gullmerkjum Bjarkanna. Þorgerður lét að sér kveða og sat í mörgum nefndum. Síðustu árin nutu Kvenfélag Fríkirkj- unnar og Hringurinn krafta hennar. Þorgerður og Jón ferðuðust mikið. Útför Þorgerðar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, 30. desember 2021, klukkan 13. Hlekkir á streymi: https://youtu.be/sNyz1pzX4-U https://www.mbl.is/andlat þeirra á Hjallabraut. Þorgerður gekk í Barnaskóla Hafnar- fjarðar og Flens- borg. Útskrifaðist frá Íþróttakenn- araskólanum á Laugarvatni 1944, fyrsti árgangur eftir að skólinn varð rík- isskóli. Þorgerður kenndi leikfimi og sund við skóla Hafnarfjarðar og lauk kennsluferlinum í Flensborg 1985. Síðast kenndi hún sund á Hrafnistu í Hafnarfirði. Fyrstu starfsárin sinnti hún aukakennslu í Verzlunar- og Kvennaskólanum. Hún fór jafnvel oft á dag á milli bæja, en á kvöldin æfði hún fim- leika í Ármanni. Árið 1945 fór Þorgerður í íþróttaskóla á Snohoj í Dan- mörku. Var sú sigling ein af fyrstu farþegaferðum eftir seinna stríð. 1948 fór hún til London að horfa á Ólympíuleikana ásamt stórum hópi frá Íslandi. Eftir þá snerist lífið um fimleika. 1951 tók hún þátt í að stofna Fimleika- félagið Björk, átti m.a. hugmynd að nafninu. Þorgerður var for- Það er ekki auðvelt mál að gera ömmu minni skil í fáum orðum. Ég var svo heppin frá fyrstu stund að fá að vera nafnan. Það eru stór fótspor að feta í. Amma mín var nefnilega svo margt. Hún var þessi klass- íska amma sem eldar og bakar, saumar og prjónar, er í kven- félaginu og fer í sólarlandaferð- ir. En amma var svo miklu meira. Hún var frumkvöðull. Fór ung í Íþróttakennaraskól- ann á Laugarvatni og var orðin íþróttakennari fyrir tvítugt. Kenndi stelpum sem voru bara nokkrum árum yngri. Aðeins tvítug fór hún á íþróttaskólann á Snohoj í Danmörku. Seinni heimsstyrjöldinni var rétt ný- lokið og hún sigldi bara á vit ævintýranna! Þremur árum síð- ar, 1948, flaug hún ásamt stórum hópi frá Íslandi til Lond- on að fylgjast með Ólympíuleik- unum. Hún æfði fimleika. Fyrst með Ármanni. Seinna tók hún þátt í að stofna fimleikafélag og varð fyrsti formaður þess. Fim- leikafélagið Björk er enn starf- andi og þar æfa næstum þúsund iðkendur. Hún kenndi sund og leikfimi, þjóðdansa og fimleika og sýndi innanlands og utan, æfði handbolta og margt fleira og þegar hún var sjálf um sex- tugt tók hún þátt í að setja á fót íþróttastarf fyrir eldri borgara, þótt reyndar yrði hún aldrei nógu gömul til að taka þátt í slíku (að eigin mati). Fyrir allt þetta starf fékk hún fjölmargar viðurkenningar, meðal annars heiðurskross ÍSÍ. Samt fannst henni hún ekki hafa gert margt merkilegt um dagana. Amma var glæsileg og gekk bein í baki. Hún gat þekkt fólk á göngulaginu einu saman. Hún hafði líka skoðanir á göngulagi. Það var ekki sama hvernig fólk gekk. Það á að rétta úr sér. Ég var svo lánsöm að vera nafna. Því fylgdu ýmis fríðindi. Ég var varla farin að ganga þegar hún var byrjuð að kenna mér. Þegar ég byrjaði að æfa fimleika naut ég góðs af því að eiga ömmu sem þekkti til. Seinna tók ég smá við keflinu hennar þar. Amma reyndi líka að vekja hjá mér sundáhuga þótt það hafi ekki tekist eins vel og með fim- leikana. Heima hjá ömmu og afa var gott að vera. Gæfa okkar systk- inanna var að búa nálægt þeim. Því var hægur leikur að koma í hádegismat. Þar var lítilli mat- vandri stelpu gert til geðs, oft- ast. Maturinn hjá ömmu var alltaf aðeins betri. Þegar ég var lasin fékk ég stundum að vera hjá ömmu. Ef ég kom nógu snemma gat ég kúrt í afaholu við hlið ömmu. Og þá var dekrað við nöfnuna sína. Síðustu árin snerust hlut- verkin okkar aðeins við. Elli- kerling fór að hrella ömmu. Þá fékk ég tækifæri til að endur- gjalda örlítið allt sem hún hafði gert fyrir nöfnuna sína. Fyrst var það oftast eitthvert skutl en síðustu árin fór það meira út í dekur. Reyndar kannaðist amma aldrei við að hún ætti þetta skilið. En hún kunni að taka við og var þakklát. Og ég er þakklát fyrir að hafa átt þessar ómetanlegu gæðastundir með ömmu að dedúa við hana og gera fína. Það var svo gott að koma til ömmu og sitja með henni. Þetta voru óneitanlega tóm- legri jól án ömmu. Og skrítin til- hugsunin að geta ekki framar lagt höfuðið í hálsakotið eða kysst mjúka ömmukinn. Takk elsku amma. Ljósið af ljósi þínu lifi í hjarta mínu. Þín nafna, Þorgerður María Halldórsdóttir. Núna á dimmustu dögum árs- ins þegar gróðurinn hefur lagst í dvala og konungur vetrar sýnir vald sitt með kulda og myrkri hafa laufin fallið af trjánum og „björkin“ sem stóð í heimilis- garðinum við Austurgötuna hjá Þorgerði Maríu Gísladóttur kveður hana ásamt okkur í Fim- leikafélaginu Björk, en Þorgerð- ur nefndi félagið eftir bjarkar- trénu þegar hún stofnaði Fimleikafélagið Björk 1. júlí 1951. Frá barnæsku áttu íþróttir hug Þorgerðar allan. Fimleikar og sund voru hennar aðaláhuga- greinar. Að loknu námi í Flens- borg fór Þorgerður í Íþrótta- kennaraskólann á Laugarvatni og lauk þaðan íþróttakennara- prófi 1944. Þorgerður gekk ung til liðs við FH. Hún kynntist fimleikum og sundi í skóla hjá Hallsteini Hinrikssyni. Í FH var hún í fimleikaflokki árin 1938- 1940 og lék einnig handknattleik með meistaraflokki FH. Hún var sunddrottning Hafnarfjarð- ar um árabil. Þorgerður var í fimleikasýningarflokki Ármanns undir stjórn Guðrúnar Nielsen en eftir íþróttakennaraprófið starfaði Þorgerður sem þjálfari hjá FH en sneri sér síðan alfar- ið að eigin fimleikaflokki. Þor- gerður vildi að fimleikar yrðu fyrir allan almenning og til að tryggja tíma í íþróttahúsum í Hafnarfirði varð hún að stofna félag. 25 ungar stúlkur mættu á stofnfund sem haldinn var í Flensborg og var Þorgerður kosinn formaður og gegndi hún formennsku í félaginu til 1978 eða í 27 ár. Árið 1971 fékk Þor- gerður Hlín Árnadóttur til fé- lagsins og saman unnu þær að því að auka virðingu og við- urkenningu á fimleikum innan íþróttahreyfingarinnar sem keppnisgreinar og var fyrsta Ís- landsmótið haldið 1974 þar sem Bjarkarstúlkan Björk Sverris- dóttir varð fyrst til að vinna Ís- landsmeistaratitilinn. Fáninn og fánavenjur voru Þorgerði mik- ilvægar. Fyrir mót og sýningar mætti hún í salinn og fór yfir göngu og fánakveðju með stúlk- unum en þjóðfáninn var notaður þar til félagið eignaðist félags- fána. Á meðan Þorgerður var formaður félagsins var skrif- stofa félagsins við eldhúsborðið heima hjá henni þar sem málin voru rædd yfir kaffibollum. Þorgerður hlaut margar við- urkenningar fyrir störf sín, meðal annars Gulllauf frá Fim- leikafélaginu Björk og gullmerki ÍBH, FSÍ og ÍSÍ ásamt því að á 65 ára afmæli félagsins var hún útnefnd fyrsti heiðursfélagi hjá Fimleikafélaginu Björk og þar var einnig ákveðið að einn dag- ur á ári yrði tileinkaður henni og nefndur „Þorgerðardagur“ þar sem færi fram kynning á starfsemi félagsins. Á 65 ára af- mæli félagsins var sett upp í anddyri félagsins myndræn minning um starf Þorgerðar fyrir og í þágu Fimleikafélags- ins Bjarkar. Félagadeild sendir ættingjum Þorgerðar og félagsmönnum öll- um samúðarkveðjur með von um að algóður Guð haldi áfram verndarhendi sinni yfir því starfi sem Þorgerður vann svo ötullega að í þágu æsku og fim- leika í Hafnarfirði og á lands- vísu. Fyrir hönd Félagadeildar hjá Fimleikafélaginu Björk, Hafsteinn Þórðarson Anna Kristín Jóhannesdóttir. Þorgerður María Gísladóttir Sálm. 16.1-2 biblian.is Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig.” Ástkær móðir okkar, fósturmóðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ERNA SIGURVEIG JÓNSDÓTTIR, Skálagerði 13 / Sóltúni, lést 9. desember á B5 á Landspítalanum í Fossvogi. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 4. janúar kl. 13. Kirkjugestir eru beðnir að framvísa neikvæðu hraðprófi sem er ekki eldra en 48 klst. gamalt. Streymt verður frá útförinni á https://youtu.be/H0x9ljHC-50 Erna Dagbjört Stefánsdóttir Dagbjört H. Guðm. Manzone Rodolfo Manzone Björg Lárusdóttir Sigurður Þorbjörnsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Elsku bróðir okkar, mágur og frændi, HANS WÍUM ÓLAFSSON lögfræðingur, lést á gjörgæsludeild Landspítalans þriðjudaginn 21. desember. Í ljósi aðstæðna mun jarðarförin fara fram í kyrrþey. Eyjólfur Ólafsson Kirstine Ólafsson Magdalena M. Ólafsdóttir Kristján Ásgeirsson Gyða Ólafsdóttir Kjartan Sigurðsson og frændsystkini Okkar ástkæra vinkona, REGÍNA BERNDSEN, lést sunnudaginn 19. desember. Útför verður tilkynnt síðar. Bergþór Ingi Leifsson Bogi Halldórsson Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, LEIFS ÞORLEIFSSONAR, bifreiðasmíðameistara og verslunarmanns, Hörgslundi 19, Garðabæ. Marta Pálsdóttir Erla Leifsdóttir Páll Þór Leifsson Helga María Fressmann og barnabörn Eiginmaður minn og faðir okkar, SIGURÐUR GÚSTAVSSON hagfræðingur, Víðihlíð 33, Reykjavík, lést á Landspítalanum 18. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Auður Torfadóttir Sigurður Þór Sigurðsson Torfi Sigurðsson Gústav Sigurðsson og fjölskyldur Ástkær eiginmaður minn, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og bróðir, ÓLAFUR P. SVEINSSON leigubílstjóri, Rjúpnasölum 10, lést 27. desember. Útför hans fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Marít Davíðsdóttir Grímur H. Pálsson Kristjana Sigurðardóttir Marít Grímsdóttir Daníel Grímsson Lárus Sveinsson Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN JÓNSSON, gjaldkeri, bridgespilari og laxveiðimaður, lést í faðmi fjölskyldunnar á Landakoti föstudaginn 24. desember. Útförin fer fram frá Lindakirkju föstudaginn 7. janúar klukkan 13. Í ljósi aðstæðna geta einungis nánustu aðstandendur verið viðstaddir. Streymt verður frá útförinni á slóðinni: https://youtu.be/HXrnRun5guM Þökkum starfsfólki Landakots fyrir hlýja og góða aðhlynningu. Ingibjörg Ásgeirsdóttir Ásgeir Guðjón Stefánsson Kristín Alfreðsdóttir Stefán Örn Stefánsson Kristjana Ólafsdóttir Orri Stefánsson Björk Filipsdóttir Hákon Stefánsson Ása Fríða Kjartansdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.