Morgunblaðið - 30.12.2021, Síða 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2021
Á
sælgætisbásnum í Smárabíó völdu aðdá-
endur Köngulóarmannsins sér ýmislegt
góðgæti fyrir bíómyndina sem þeir
höfðu lengi hlakkað til að sjá. Eftir-
væntingin lá í loftinu, sumir veltu fyrir sér kenn-
ingum um fléttu kvikmyndarinnar á meðan aðrir
brugðu sér í hlutverk Köngulóarmannsins og
mættu í búningi, mörgum til mikillar skemmt-
unar. Starfsmenn báðu íslensku Köngulóarmenn-
ina að þrífa vefina eftir sig og hætta að sveifla sér
í ljósakrónum.
Áður er lengra er haldið er rétt að vara við því
að þessi gagnrýni inniheldur spillingarefni.
„Með miklum mætti fylgir mikil ábyrgð,“ segir
May (Marisa Tomei), frænka Peters Parker (Tom
Holland), og eru orðin eins konar einkunnarorð í
nýju Köngulóarmannsmyndinni, Engin leið heim,
sem er framhald af kvikmyndunum Heimkoma
(2017) og Langt að heiman (2019) og 27. myndin
sem á sér stað í Marvel-heiminum (MCU). Þessa
sterku setningu má sjá í fyrri Köngulóarmanns-
myndum og hefur alltaf öfluga þýðingu fyrir aðal-
söguhetjuna. Því fylgir þó ekki einungis mikil
ábyrgð að búa yfir mætti ofurhetju heldur einnig
því að fullorðnast og er kvikmyndin í raun þroska-
saga Peters Parker/Köngulóarmannsins úr því að
vera unglingur í fullorðinn einstakling. Í kvik-
myndinni má sjá skýran aldursmun milli hans og
annarra ofurhetja úr Marvel-heiminum. Það er
ekki skrýtið enda er kjánaskapur hans, sem fylgir
oft ungdómnum, það sem heillar áhorfendur.
Peter Parker tekur sig ekki of alvarlega enda er
hann bara unglingur. Hins vegar getur kjána-
skapurinn líka orðið honum að falli.
Kvikmyndin hefst á upprifjun úr síðustu mynd
þegar Quentin Beck, betur þekktur sem Mystéríó
(Jake Gyllenhaal), deilir því á samfélagsmiðlum
að Köngulóarmaðurinn sé sekur um að myrða
hann og sviptir um leið hulunni af því hver
Köngulóarmaðurinn er. Peter Parker verður um
leið frægasti maður í heimi og almenningur skipt-
ist í tvo hópa eftir því hvort fólk trúir að Könguló-
armaðurinn sé góður eða vondur. Í kjölfar ásak-
anna er Peter Parker yfirheyrður af lögreglunni
ásamt öllum sem honum standa næstir. Kærurnar
eru fljótlega felldar niður en Köngulóarmaðurinn
hlýtur ekki lengur sama lof í samfélaginu og verð-
ur fyrir miklu áreiti. Peter reynir að láta sem ekk-
ert hafi í skorist og heldur áfram með líf sitt en
þegar honum og vinum hans, MJ (Zendaya) og
Ned (Jacob Batalon), er neitað um skólavist í MIT
vegna neikvæðra umfjallana er honum nóg boðið
og leitar hjálpar hjá galdrakarlinum Dr. Strange
(Benedict Cumberbatch). Dr. Strange er tilbúinn
að hjálpa honum og stingur upp á álögum sem
gera það að verkum að allir myndu gleyma því að
Peter væri Köngulóarmaðurinn sem Peter sam-
þykkir. En álög eru alltaf varasöm. Ákvörðun Pet-
ers er merki um fífldirfsku. Hann er tilbúinn að
fórna heiminum til þess að vinir hans geti komist í
MIT, háskólann sem þá langar að stunda nám við.
Þegar Dr. Strange er að leggja álögin á heiminn
truflar Peter hann í sífellu með því að bæta við
fleiri og fleiri einstaklingum sem hann vill ekki að
gleyma sér út af álögunum. Þetta verður til þess
að álögin mistakast og Dr. Strange dregur þau til-
baka í reiði sinni. Atriðið er skemmtilegt og minn-
ir helst á barn sem í sífellu truflar foreldrið sitt í
símanum til þess að fá það sem það vill. Bæði
áhorfendur og Dr. Strange eru minntir á það að
Peter er einungis unglingur og því ekki hægt að
ætlast til þess að hann taki alltaf réttar ákvarð-
anir.
Síðar kemur í ljós að álögin virkuðu öfugt. Álög-
in kölluðu á þá einstaklinga og verur úr öðrum
víddum alheimsins sem þekktu Köngulóarmann-
inn.
Rétt eins og áhorfendurnir í myrka bíósalnum í
Smárabíó höfðu margir aðdáendur Köngulóar-
mannsins myndað sér skoðanir um hverjir myndu
láta sjá sig í kvikmyndinni og meðal þeirra voru
fyrrum fjendur Köngulóarmannsins og aðrar út-
gáfur af Köngulóarmanninum leiknar af Andrew
Garfield og Tobey Maguire. Þegar ljóst var að
kenningar aðdáenda voru réttar heyrðist mikið
fagnaðarhóp í áhorfendasal Smárabíós.
Kvikmyndin tekur snögga beygju þegar óvinir
úr öðrum víddum, sem margir þekkja úr fyrri
myndum með Köngulóarmanninum, mæta til
leiks og þrjár útgáfur af Köngulóarmanninum,
sem leiknar eru af Tobey Maguire, Andrew Gar-
field og Tom Holland, mynda lið gegn þeim. Þeir
fjendur sem láta sjá sig eru Græni púkinn, eða illa
hlið Norman Osborn (Willem Dafoe), Dr. Kol-
krabbi eða vísindamaðurinn Dr. Ottó Oktavíus
(Alfred Molina), Eðlan eða eðlisfræðingurinn Dr.
Curt Connors (Rhys Ifans), Straumi eða Max
Dillon (Jamie Foxx) og Sandmaðurinn eða glæpa-
maðurinn Flint Marko (Thomas Haden Church).
Eins og sjá má í ofangreindri setningu eiga allir
fjendur Köngulóarmannanna sér tvær hliðar,
enginn þeirra er alslæmur en allir þurfa þeir að
borga fyrir gjörðir sínar með sínu eigin lífi í sinni
veröld. Peter Parker (Tom Holland) er ekki tilbú-
inn til að senda illmennin aftur heim í sína vídd og
opinn dauðann og fer gegn vilja Dr. Strange sem
vill losa sig sem fyrst við illmennin. May hvetur
Peter til að hjálpa þeim og ákveður hann að gera
það með hjálp hinna Köngulóarmannanna. Þessi
ákvörðun á hins vegar eftir að kosta hann allt rétt
eins og eldri Köngulóamennirnir þekkja af eigin
reynslu. Loks fær nýi Peter Parker að finna fyrir
þeirri miklu ábyrgð sem fylgir því að vera ofur-
hetja og um leið að vera fullorðinn.
Þegar kvikmyndinni var lokið sátu áhorfendur
fastir í sætum sínum. Örfáir einstaklingar yfir-
gáfu salinn á meðan aðstandendalistinn rúllaði,
fákunnandi um Marvel og að kvikmyndin sé í raun
og veru ekki búin fyrr en skjárinn verður svartur.
Í aukaatriðinu sem fylgir kvikmyndinni smeygði
sér síðan svört og slímug vera inn í heiminn sem
við þekkjum á skjá Marvel.
Hver vegur að heiman …
Pirringur Benedict Cumberbatch og Tom Holland í hlutverkum sínum sem Dr. Strange og Spider-Man.
Smárabíó
Spider-man: No Way Home / Köngulóarmaðurinn:
Engin leið heim bbbbn
Leikstjórn: Jon Watts. Handrit: Chris McKenna, Erik
Sommers. Aðalleikarar: Tom Holland, Zendaya, Bene-
dict Cumberbatch, Marisa Tomei og Jamie Foxx.
Bandaríkin, 2021. 148 mín.
JÓNA GRÉTA
HILMARSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Bandaríska ljóðskáldið og tónlistar-
konan Patti Smith var heiðruð við
hátíðlega athöfn í vikubyrjun þegar
Bill de Blasio, borgarstjóri New
York, afhenti henni lyklana að
borginni. „Ég vildi óska að ég gæti
gefið New York lykilinn að mér, því
þannig líður mér gagnvart borginni
okkar. Þrátt fyrir allar sínar áskor-
anir og erfiðleika er borgin ávallt –
og ég ferðast mikið – fjölbreyttasta
borg í heimi. Að hljóta þennan heið-
ur 75 ára að aldri fær mig til að
hlakka enn meira til næstu 25 ár-
anna,“ sagði Smith þegar hún veitti
lyklunum viðtöku. Við athöfnina
flutti Smith ásamt Lenny Kaye,
samstarfsmanni sínum til margra
ára, lagið „Ghost Dance“.
Morgunblaðið/Kristinn
Heiðruð Patti Smith á tónleikum á Íslandi.
Patti Smith hlaut
lykil að New York
Keri Hulme, sem
fyrst Nýsjálend-
inga hlaut Book-
er-verðlaunin, er
látin, 74 ára að
aldri. Þessu
greinir The Gu-
ardian frá. Verð-
launin hlaut
Hulme 1985 fyrir
skáldsöguna The
Bone People, sem var frumraun
hennar. Bókinni hefur verið lýst
sem „einstöku dæmi um maóra
töfraraunsæi,“ en Hulme var sjálf
af maóri-ættum. Hún sagðist fá
hugmyndir úr draumum og rann-
sakaði í skrifunum hugmyndir um
sjálfsmynd og einangrun. Það tók
Hulme tólf ár að skrifa verðlauna-
bókina The Bone People, en enginn
vildi í framhaldinu gefa hana út
fyrr en Spiral, lítið femínískt for-
lag, gaf hana út í 2.000 eintökum
sem seldust hratt upp. Síðan hefur
bókin verið seld í milljónum eintaka
á heimsvísu.
Keri Hulme látin
Keri Hulme