Morgunblaðið - 30.12.2021, Side 48
ILVA Korputorgi
Lau. og sun. 12-18
Virkir dagar 11-18.30
ILVA Akureyri
Lau. 10-17 Sun. 13-17
Virkir dagar 11-18
30-60%
afÚTSÖLU-
vörum
SKOÐAÐU
ÖLL T I L BOÐ I N Á
I LVA . I S
40%
50%
40%
Útsala27. DESEMBER -
7. FEBRÚAR
40%
FRÍ HEIMSENDING
Þegar keyptar eru smávörur
fyrir 9.900 kr. eða meira.Hæstiréttur Belgíu hefur snúið við ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar þess efnis að loka menningarhúsum á
borð við leikhús og kvikmyndahús til að stemma stigu
við útbreiðslu Covid-19. Frá þessu greinir tímaritið Var-
iety. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar var kynnt 22. desem-
ber, en það sem fór fyrir brjóstið á forsvarsfólki menn-
ingarhúsa var að þeim væri gert að loka á sama tíma og
barir og veitingastaðir máttu hafa opið til kl. 23 og
töldu að slíkt stæðist ekki jafnræðisregluna. Í niður-
stöðu dómsins kemur fram að ekki verði séð að
almenningi stafi sérstök heilsufarsleg hætta af því að
hafa menningarhúsin opin né að smit sé útbreiddara í
þeim húsum en annars staðar í landinu.
Menningarhús opnuð á ný í Belgíu
FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 364. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Englandsmeistarar Manchester City eru með átta stiga
forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 1:0-sigur
gegn Brentford á útivelli, en Chelsea, sem er í öðru
sæti deildarinnar, tapaði dýrmætum stigum gegn
Brighton á heimavelli á sama tíma. »40
Meistararnir með átta stiga forskot
ÍÞRÓTTIR MENNING
síðan með prófunum aðallega fyrir
mig þar sem ég vildi hafa yfirsýn
yfir fyrri próf.“ Tilgangurinn hafi
verið að reyna að sjá fyrir hvað
hann þyrfti að læra, en síðan gagn-
ist öllum laganemum. Hann er
meðal annars í málefnahópi
Öryrkjabandalagsins um atvinnu-
og menntamál og skoðunarmaður
reikninga hjá Íslensk-japanska fé-
laginu. „Að morgni 1. janúar ár
hvert minni ég formann félagsins á
að senda mér ársreikninginn.“
Áramót eru algengur tími fyrir
markmiðasetningu en frá 2015 hef-
ur Svavar sett sér markmið á vor-
dögum fyrir sumarið. Hann segir
að þegar skóla ljúki á vorin hafi
hann meiri frítíma og því setji
hann sér sumarmarkmið. „Auk
þess er meira í boði á þessum
tíma,“ segir hann og bætir við að
hann óski alltaf eftir tillögum frá
öðrum, því þannig verði markmiðin
fjölbreyttari. „Það sárasta er þegar
ég næ ekki einhverju markmiði.“
Skilgreiningin sé stundum ekki
nógu góð, þótt hann reyni alltaf að
setja sér raunhæf markmið. Hann
hafi til dæmis einsett sér að gefa
blóð en hafi ekki fengið það. „Á
þeim tíma tók ég lyfið concerta og
þegar það er tekið má ekki gefa
blóð.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hafnfirðingurinn Svavar Kjarrval
Lúthersson, tölvunarfræðingur og
starfandi formaður Einhverfu-
samtakanna, er með mörg járn í
eldinum. Hann er langt kominn
með að endurskanna registur
hæstaréttardóma og í vor gerir
hann ráð fyrir að útskrifast með
BA-gráðu í lögfræði frá Háskóla
Íslands, en að loknu síðasta prófinu
hefst hann handa við að setja sér
markmið fyrir sumarið.
Svavar greindist með Asperger-
heilkennið fyrir rúmum áratug og
er fyrsti formaður Einhverfu-
samtakanna með slíka greiningu.
Hann hefur verið í stjórninni í ára-
tug og var varaformaður frá 2019
til 2. desember síðastliðins. Þá fór
Inga Aronsdóttir, formaður sam-
takanna, í leyfi og gegnir Svavar
formennskunni meðan á því stend-
ur.
Helstu baráttumál Einhverfu-
samtakanna eru stytting biðlista
eftir greiningu, búsetumál, atvinnu-
mál og skólamál. „Við erum í sam-
skiptum við hið opinbera til að ýta
á réttindi fólks á einhverfurófinu,“
segir Svavar og leggur áherslu á
að innri málefni séu ekki síður mik-
ilvæg, að fólk á einhverfurófi geti
hist og rætt málin. „Nýlega hafa
samskiptin aðallega verið rafræn af
skiljanlegum ástæðum,“ segir hann
og bætir við að auk þess séu hitt-
ingar fyrir aðstandendur.
Margir hattar
Hattar Svavars eru margir.
Lengi hefur hann unnið við að
skanna inn ýmislegt af útgefnum
ritum, eins og til dæmis Stjórnar-
tíðindi og dómasafn Hæstaréttar
(urlausnir.stuff.is). „Stjórnartíð-
indin eru stærsta verkefnið en þau
ná aftur til 1874 og líklega lýk ég
verkinu á næsta ári.“ Skömmu eftir
að hann byrjaði í laganáminu útbjó
hann síðu þar sem hann setti inn
gömul próf á einfaldan hátt og
dómsmál (urlausnir.stuff.is og
gomulprof.stuff.is). „Fyrst var vef-
Skönnun og sumar-
markmið Svavars
- Starfandi formaður Einhverfusamtakanna önnum kafinn
Formaður Hafnfirðingurinn Svavar Kjarrval Lúthersson hefur nóg að gera.
Vinna Svavar er nær búinn að endurskanna registur hæstaréttardóma.