Bjarmi - 01.10.2018, Síða 4
Afram áhersla á
perjsónulega trn og
eftirfylgd
VIÐTALVIÐ HELGA GÍSLASON FORMANN KFUM OG KFUKÁ ÍSLANDI
RAGNAR GUNNARSSON
Leið mín lá í Fellaskóla í Breiðholti að finna
Helga Gíslason, aðstoðarskólastjóra en
á síðasta áratug liðinnar aldar unnum við
saman fyrir KFUM og KFUK í Reykjavík.
Helgi hefur um árabil unnið í skólakerfinu
og flutti sig um set fyrir ári síðan og tók
nýrri áskorun, eða réttara sagt áskorunum,
enda skólinn með óvenjuhátt hlutfall barna
sem er af erlendu bergi brotið.
Tilgangurinn var þó ekki að ræða
skólastarfið heldur þau tímamót á þessu
ári að minnst er 150 ára frá fæðingu
séra Friðriks Friðrikssonar sem fæddist
að Hálsi í Svarfaðardal 25. maí 1868. Við
vígslu Birkiskála II í Vatnaskógi, síðustu
helgi í maí, sem var helgin þegar 150 ára
fæðingarafmælis séra Friðriks var minnst,
afhenti Helgi Vatnaskógi fyrir hönd KFUM
og KFUK á íslandi veggspjald eða mynd
með tilvitnun í séra Friðrik: „Gefðu Guði
algjörlega hjarta þitt, elskaðu hann, treystu
honum og hlýddu honum." Sagði Helgi við
það tækifæri að þessi hvatning væri tilvísun
í ævi og starf séra Friðriks og að það væri
von stjórnar félagsins að hún yrði sýnileg
og það sem gert yrði í skálanum miðaði
að því að ungt fólk tæki það skref að geta
sagt: „Já, þetta vil ég gera." Við þetta
tækifæri sagði Helgi enn fremur: „Afrakstur
ævistarfs séra Friðriks má rekja til þess að
hann fékk trúarlegt uppeldi - hlutverk sem
verður æ mikilvægara í íslensku samfélagi
og mikilvægt að Skógarmenn ræki það
hlutverk sitt. Hitt var að sr. Friðrik ákvað
sem fullorðinn maður að gerast lærisveinn
Jesú og hlýða kalli hans. Kalli um að koma
til íslands og hefja kristilegt æskulýðsstarf."
En talið berst fyrst að kynnum
Helga af starfi KFUM á yngri árum,
hvernig kynntist þú starfi félagsins?
Vinur minn og nágranni, 8 ára, kom til
mín og sagði að sér hefði verið boðið á
fund í KFUM og spurði hvort ég vildi koma
með. Sá drengur var reyndar skyldur
leiðtoganum í KFUM og við fórum á fund
og síðan fleiri fundi. Þá var við líði sá
skemmtilegi siður að drengir hittust efst í
götunni minni, og gengu síðan niður eftir
og menn bættust í hópinn. Þá var endað
hjá leiðtoganum eða sveitarstjóranum
sem svo hét þá, og gengið með honum á
fund, í hús félaganna við Holtaveg en þar
sótti ég fundi. Ég varð síðan sérstaklega
virkur er kom í unglingadeildina. f yngri
deild KFUM á Holtavegi man ég eftir
Ragnari Baldurssyni, Halla bróðir hans,
Árna Sigurjónssyni, Grími Péturssyni, Gísia
Sígurðssyni og fleirum. Unglingadeildin var
síðan undirforystu Sveins Guðmundssonar
og Gunnars Sandholts ásamt fleirum.
Hverju breyttu þessi kynni þín af
starfi KFUM fyrir þig?
Jú, þeir sem þekkja mig vita að þetta
hafði mikil áhrif á líf mitt og starfsferil.
Sextán ára varð ég sjálfur leiðtogi í
æskulýðsstarfinu, vann svo seinna í
Vatnaskógi og síðar í fleiri sumarbúðum.
4 | bjarmi | apríl 2018