Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.10.2018, Side 11

Bjarmi - 01.10.2018, Side 11
STRÍÐ OG BARÁTTA ERU EIN ÞEKKTUSTU ÞEMUN EÐA MYNDMÁLIÐ SEM SÉRA FRIÐRIK NÝTIRSÉR Þér heiti'eg mínu hjarta, þér helga' eg tungu og mund. Ó, verhjá mérþú milda blóm, að minni banastund. Söngurinn Þér Jesús, hef ég heitið er á líkum nótum en reyndar þýddur síðar á lífsleið séra Friðriks að beiðni Gunnars Sigurjónssonar og með starf meðal fullorðinna í huga, en þar er Jesús einnig ávarpaður m.a. sem „Herra og hjartans vinur" og er vörður, hirðir, einka von, hlíf og vinur trúr, þess sem syngur. Þessi áhersla, ef hún telst einhæf, höfðar trúlega ekki að fullu til ungra manna og drengja. Það bætir séra Friðrik upp með annarri áherslu, baráttunni. STRÍÐ Stríð og barátta eru ein þekktustu þemun eða myndmálið sem séra Friðrik nýtir sér. Hernaður og stríð voru þekkt og hafa fylgt mannkyninu um langa hríð. Söngvarnir sem séra Friðrik orti og þýddi vísa þó í annars konar stríð, andlegan hernað, þar sem farið er með sigurvegaranum Jesú Kristi „til að mölva myrkrahliðin" og vonin er sterk ef við gerum það, því „næsta dag við náum sigri." Þó svo sjá megi fyrir sér bókstaflegan hernað með þessum tilvísununum eru hlið myrkursins andleg og myrkravald syndarinnar í mannheimi og í manni sjálfum sem sigra þarf: „Myrkraherinn, syndasveimur, sígur móti oss. Óttumst ekki, hátt skal hefja, Herrans blóðga kross.“ Trúlega hefur áherslan á þennan þátt minnkað á liðnum áratugum með baráttu fyrir friði og afvopnun frekar en stríðsrekstri hér á Vesturlöndum. Einna þekktastir söngvar séra Friðriks sem vísa í stríð eru „Sjáið merkið Kristur kemur“ og „Áfram Kristsmenn krossmenn“. En þeireru fleiri og má þar nefna t.d. „Til stríðs!" en þannig er fyrsta erindið: Til stríðs! Við krossinn stendur, hið sterka æskulið. Lyft hátt Guðs fagra fána og fyikjum oss þar við. Lát hljóma sigursöngva, því sigurinn er nær, svo allir fjendur falla og friður kemur skær. í söngnum „Unglingafjöld, ífylking Guðs þú stendur" er vísað í kallið til kristniboðs með orðunum „kjörin þú ert að kristna víðar lendur, kærleikans heilagt sigurmál.” Við erum kölluð til að beygja okkur djúpt fyrir dýrðarmerkinu, sigrandi krossi Jesú Krists. í framhaldinu yrkir séra Friðrik um karlmennskuna sem vex á brattri hættubraut og að sumir hníga að velli ef Herrann Jesús er ekki með á ferð og lýkur með þessu versi: Krossmerkta sveit, í fylking fram þú brunar, frelsarinn Jesús kveður þig með sér. Yfir þér háar himinklukkur duna Hermerki lífsins sveiflast undan þér. Svipaða áherslu má sjá í söngnum „Guðs alvæpni taktu“ sem fylgir þessari grein í sér ramma. Þar er að sjálfsögðu þein tilvísun í Efesusbréfið 6:10 og áfram. SIGURHETJAN JESÚS Nátengd hugsuninni um andlegt stríð er myndin af sigurhetjunni Jesú. Er þar um að ræða vísun í Opinberunarbókina um lokasigurinn og sigurvegarann Jesú Krist. Gott dæmi um þá mynd í söngvum séra Friðriks eru t.d. „Nú sonur Guðs á sigurför" og „Sigrandi og til sigurfara:“ Sigrandi'og til sigurfara sigurhetjan fer um storð. Til að mölva myrkrahliðin máttugt á hann sigurorð. Hann er krýndur sigursveigum - sólin bliknar í hans glans. - Fetum í hans fótspor glaðir, frelsi'og líf svo öðlumst hans. í viðlaginu er hinn ungi hvattur til að vera með á sigurbraut, krossins leið sem er konungsvegur. Og í öðru versi segir: „Því í krafti Krists vér sterkir keppum fram í von og trú!" Hetjumyndin af Jesú var mikilvæg skírskotun til fyrirmyndar fyrir drengina sem sungu söngvana. Hetjuaðdáun er mikilvæg í bókmenntum og kvikmyndum og má þar nefna þekktar persónur eins og Rambó, Súpermann og Kóngulóarmanninn fyrir utan allar óteljandi hetjurnar í baráttu við illmenni og skúrka af ýmsu tagi. Einn af söngvum séra Friðriks hefst einmitt svona: „Kristur hinn sterki, kóngur allra lýða! Krossins und merki veit oss náð að stríða.“ Jesús uppfyllir hlutverk hinnar klassísku hetju. Fæðing hans erleyndardómsfull, hann yfirgefur öruggan móðurfaðminn 12 ára er hann segir henni að hann verði að huga að bjarmi | apríl 2018 | 11

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.