Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.2018, Blaðsíða 27

Bjarmi - 01.10.2018, Blaðsíða 27
HLJÓMUR KIRKJUKLUKKUNNARÁAÐ MINNA FÓLKÁAÐ MEÐTAKA ORÐ GUÐS OG ÍHUGA ÞAÐ og 14 öld — þróaðist áfram og tónfræðin henni tengd, greindu menn betur þennan sérleika kirkjuklukkna. Þá var byrjað að framleiða klukkur fyrir klukkuspil sem komið var fyrir í kirkjuturnum. Tónskáld hófu að semja sérstök tónverk fyrir þau, verk sem menn geta öldum síðar heyrt óma m.a. í Reykjavík úr Hallgrímskirkjuturni. Þar sem kirkjuklukkur eru að mestu steyptar úr kopar hefur það oft komið fyrir í sögunni að fulltrúar hergagnaframleiðslu hafi rennt hýru auga til kirkjuklukkna, tekið þær niður og brætt til að nota kopar þeirra til að steypa úr fallbyssur. Á sínum tíma var Napóleon (1769-1821) þekktur fyrir slíkt. Óneitanlega er hér illa farið með friðarboða, en einmitt öllum kirkjuklukkum er hringt þegar hætta steðjar að. En líka þegar gamla árið er kvatt og hið nýja boðið velkomið á gamlárskvöldi í von um að það verði friðsælt. 3. GUÐFRÆÐILEG MERKING KIRKJUKLUKKNA Kirkjuklukkur eru mögnuð hljóðfæri og innan kristninnar eru þær tákn hreinleika. Það kemur lítt á óvart að fólk á miðöldum eignaði þeim kynngimagnaðan kraft. Hljómur þeirra tengdi himin og jörð saman. Þegar þeim var hringt voru Guð, María og hin heilögu lofuð þar sem ómur þeirra náði til þeirra er himininn hýsir. Hreinleiki tóna þeirra verndaði fólk frá illsku heimsins, létti af ógnum helvítis og dómsins í lok tímanna. Hljómur þeirra miðlaði huggun og var tákn um þann ytri sem innri frið sem maðurinn þarfnast svo mjög. Klukkurnar og áletranir þeirra vitna vel um þennan skilning. Áletranirnar segja berum orðum hvert hlutverk og inntak þeirra er. Menn námu því í hljómi klukkna rödd sem hafði boðskap að flytja. Vissulega höfðu margar klukkur veraldlegu hlutverki að gegna eins og áður er getið en inntakið er þó hið sama. Hlutverkið erað minnafólká hjálpræði Guðs, sem fylgt hefur manni og heimi frá upphafi og nær hápunkti í holdtekju sonarins í Jesú Kristi. Þær vísa á fagnaðarerindið sem er mönnum styrkur og huggun í öllu þeirra lífi og Ijós sem lýsir mönnum i lífsbaráttunni. Á miðöldum undírbyggja menn þennan skilning með skírskotunum til Ritningarinnar. Kirkjuklukkunum er líkt við þá lúðra sem ísraelsmenn notuðu til forna til að kalla þjóðina saman til að verjast óvinum, en í þá var líka blásið í musterinu í Jerúsalem til að safna fólki saman til guðsþjónustu. Hljómur klukknanna var nú lagður að jöfnu við orð fagnaðarerindisins sem barst nú með ómi þeirra og kallaði söfnuðinn saman til messu. Hann styrkti jafnt söfnuðinn sem heild sem og hvern meðlim hans. Þessi skilningur var rökstuddur m.a. með tilvísun í vers úr 19. Davíðssálmi: „Og þá fer hljómur þeirra um alla jörðína og orð þeirra ná til endimarka heims" (Slm 19.5). Á miðöldum og einnig í kjölfar siðbótarmanna, var kennt að líkt og klukknahljómurinn kallar fólk til bæna, þá á predikarinn að fræða söfnuðinn um inntak orðs Guðs og Ijúka upp fyrir því þeirri huggun og þeim styrk sem það geymir. Klukkurnar eru hér ekki bara sem „hljómandi málmur eða hvellandi bjalla" heldur áminning um að taka við orði fagnaðarerindisins, vitandi að það eitt að geta talað tungum manna og engla gagnast lítið nema það taki á sig mynd kærleikans í breytni manna (1Kor 13.1). Guðfræðingar á miðöldum tóku saman nokkurt efni um hvernig mætti túlka veruleika klukknanna og tengja hann við líf hins kristna. í þeim hópi var t.d. Gregor páfi mikli (540-604). Við skulum huga hér aðeins að tengslum kirkjuklukkunnar við boðunarhlutverk kirkjunnar. Á miðöldum er að finna áherslur sem siðbótarmenn nýttu sér og tengdu við boðun fagnaðarerindisins um náð og fyrirgefningu Guðs í Kristi. Líkt og hamarinn eða kólfurinn, sem slæst í kirkjuklukkuna, á predikarinn að vera þegar hann útleggur fagnaðarerindið. Þverbjálkinn sem kirkjuklukkan er fest á er táknmynd fyrir þvertréð í krossi Krists. Grindinni í kirkjuturninum sem klukkan er sett í, ber að líkja við orð spámanna í Gamla testamentinu en þeir vísuðu á hjálpræði og miskunn Guðs en sögðu einnig til um komu Krists. Festingin, sem bindur klukkuna við bjálkann er kærleikurinn, sem heldur öllu saman. Fagnaðarerindið á að koma fram í boðuninni sem útlegging á orði Guðs og á að stuðla að því að kærleikurinn komi fram í verkum manna. Guðfræðingar á miðöldum vitnuðu hér gjarnan í orð Páls postula: „En það sé fjarri mér að hrósa mér af öðru en krossi Drottins vors Jesú Krists“ (Gal 6.14). Handarhald var oft fest á kaðalinn, til að hringja kirkjuklukkunni, en hann er bundinn bjöllunni sem er táknmynd fagnaðarerindisins. Haldið á að endurspegla þá sannfæringu og það hald sem predikarinn og söfnuðurinn á í fagnaðarerindinu og/eða Kristi. Kaðallinn er ofinn úr þremur meginþráðum sem geta vísað til hinna kristnu dyggða, trúar, vonar og kærleika, eða þrenningarinnar eða vitnisburðar Ritningarinnar. Hljómur kirkjuklukkunnar á að minna fólk á að meðtaka orð Guðs og íhuga það. Þegar klukkunum er hringt þá á hreyfingin þegar kaðallinn er togaður niður að minna hringjarann á að hann er af jörðu kominn og þegar sveiflan fer upp á hann að hugsa til þess veruleika sem hann stefnir til. Þannig er kirkjuklukkunum og öllu atferli í kringum þær gefin guðfræðileg merking og túlkun og stundum margar allt eftir því hvaða sjónarhorn er valið. bjarmi | apríl 2018 | 27

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.