Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.2018, Síða 28

Bjarmi - 01.10.2018, Síða 28
GLS í tíiinda §inn á Islandi VIÐTALVIÐ LÁRUS ÞÓR JÓNSSON OG SIGURÐ BJARNA GÍSLASON RAGNAR GUNNARSSON f nóvember verður ráðstefnan Global Leadership Summit (GLS) haldin í tíunda sinn hér á landi. GLS er að jafnaði haldið í Bandaríkjunum í ágúst ár hvert, dagskráin tekin upp, þýdd og textuð. Ráðstefnan er svo haldin aftur með þeim hætti úti um allan heim. Tilgangur ráðstefnanna er að byggja upp og efla fólk til forystu, hvort sem er í kirkjulegu samhengi eða veraldlegu og í nærumhverfi, s.s. heimili eða vinnustað hvers og eins. Fulltrúi Bjarma hitti þá Lárus Þór Jónsson heimilislækni og Sigurð Bjarna Gíslason verkfræðing, sem báðirhafaverið lykilmenn í undirbúningi og framkvæmd ráðstefnunnar hér á landi frá upphafi. En fyrst var að fræðast um upphafið. Hver var aðdragandinn að fyrsta GLS á íslandi? Þetta hófst með því að sr. Kjartan Jónsson (bróðir Lárusar) hafði sótt svona ráðstefnu nokkrum árum áður og var í sambandi við undirbúningsnefnd GLS í Noregi. Hann hvatti okkur nokkur í Salti kristnu samfélagi til að fara til Osló á norska GLS. Við vorum fimm úr Salti sem fórum út árið 2007 og í stuttu máli má segja að við vorum rosalega ánægð og hugsuðum okkur að gaman og gott væri að fá þessa ráðstefnu til íslands. Og það þurfti meira en bara að ákveða það, reikna ég með? Já, þegar við ræddum þetta í hópnum sem var úti fékk ég (Lárus) hvatningu til að hefja undirbúning að ráðstefnuhaldi á íslandi og fékk ég Sigurð Bjarna í lið með mér. Þvi var farið að huga að því að undirbúa íslenska ráðstefnu og Bill Hybels, þáverandi forstöðumaður Willow Creek kirkjunnar og Willow Creek samtakanna, kom til landsins og hélt kynningarfund fyrir um 50 manns í Digraneskirkju. Um kvöldið snæddu nokkrir leiðtogar úr mismunandi kirkjum/ trúfélögum kvöldverð með Bill á Hótel Loftleiðum. Allir þar viðstaddir sammæltust um að halda GLS á íslandi. Við báðum þá um að tilnefna fulltrúa í undirbúningsnefnd til að fá sem breiðasta kirkjulega skírskotun og eignarhald hér heima. Fyrsta ráðstefnan var síðan haldin í byrjun nóvember árið 2009 í Neskirkju. Við fengum aðstoð að utan, mann frá Willow Creek kirkjunni, til að hjálpa með dagskrárgerðina, tæknimál og framkvæmd. Við ákváðum að vera á ódýrum stað, í kirkju og vissum svo sem ekki um undirtektir en það voru um 180 manns sem mættu á fyrsta GLS á íslandi. Síðan hefur þetta haldið áfram hvert ár? Já, við prófuðum að vera í Digraneskirkju árið 2010, vorum í Salnum árið 2011, og aftur í Neskirkju 2012-2014, og náðum nánast að fylla kirkjuna, með rúmlega 2Ö | bjarmi | apríl 2018

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.