Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.2018, Blaðsíða 30

Bjarmi - 01.10.2018, Blaðsíða 30
KIRKJAN UERIRAF MARKAÐNUM OG MARKAÐURINN AFKIRKJUNNI framúrskarandi árangri. Ráðstefnan er byggð á kristnum gildum, við erum minnt á og enduruppgötvum gildi sem þar eru sett fram. En um leið viljum við bjóða velkomna þá sem ekki eru kirkjuvanir. Mikið er lagt upp úr gæðum, bæði hvað varðar innihald og framsetningu alls efnis. Við teljum GLS bjóða upp á gott efni sem á erindi langt út fyrir kirkjuna. í þessu má segja að við fylgjum áherslum Willow Creek kirkjunnar, að vera ekki í klassískri kirkjubyggingu. Þetta er í takt við stefnu fleiri yngri kirkna, að hugsa sér húsnæðið þannig að yngra fólk geti hugsað sér frekar að koma og vera með. Sigurður Bjarni leggur áherslu á að GLS á íslandi líti á sig sem ráðsmenn yfir hvetjandi efni og tækni sem höfðar til svo margra, „að við viljum ekki búa til hindranir, helst taka þær í burtu. Oft er það ekki innihaldið heldur ytri aðstæður og þættir sem fæla fólk frá. Við viljum gera fólki auðveldara fyrír að koma og taka þátt. Sumir setja það fyrir sig að stíga inn fyrir kirkjuþröskuldinn, en það getur verið feimni, óöryggi eða einhver innri ótti sem hindrar það.“ Sama er með söngvaval, við notumst ekki bara við kristilega söngva, þó svo við höfum gert það í byrjun. Markmiðið erform sem ekki áað fælafólkfrá, sem hlutlausast. Þess vegna reynum við að blanda saman því sem fólk þekkir annars staðar frá og kristnum boðskap. Markmiðið er að sem flestir njóti dagskrárinnar. Við erum með staðarvali og þessum áherslum að reyna að ná út fyrir kirkjugeirann. Það er skýringin á ákveðinni gagnrýni á það að ráðstefnan gæti verið kristilegri? Já, ráðstefnan er til að efla hvern og einn, allir eiga að hafa áhrif í kringum sig, hvar svo sem fólk er, hvar get ég bætt mig, hvernig get ég staðið mig betur í samskiptum við aðra. Mikið af efninu á erindi við almenning, fólk hvar sem er í þjóðfélaginu og það má segja að sé annar markhópur, þ.e. fólk sem er velviljað kristinni trú og vill efla sig. í raun býður GLS upp á vandaða og góða leiðtogafræðslu á kristnum grunni, án þess að trúin sé neitt yfirgnæfandi og langt frá því að um sé að ræða ágenga boðun. En kirkjan þarf að nýta sé almenna þekkingu eins og aðrir á þessu sviði sem öðrum. Kirkjan lærir af markaðnum og markaðurinn af kirkjunni. Þessi ráðstefna brýtur niður fordóma, hún er öllum opin, óháð stöðu þeirra, eða hverrar trúar eða lífsskoðunar fólk er. GLS er því leið til að nálgast aðra og nýja hópa í samfélaginu með gæðaráðstefnu sem nýtist öllum. Nú er þetta 10. skiptið, verður eitthvað sérstakt af því tilefni? Ráðstefnuhaldið er í stöðugri þróun og erum við alltaf að leita leiða til að ná til nýrra hópa. Slíkar umleitanir eru líka í gangi á þessu starfsári og í fyrra kynntum við GLS Youth sem var viðburður 30 | bjarmi | apríl 2018

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.